Fréttir
Tónleikar
	<description>Söngskemmtun í Grundarfjarðarkirkju 8.febrúar kl. 20:00
Ásgeir Páll Ásgeirsson barintón og
Agnieszka Lis Mezzosopran. Miðaverð kr. 1500</description>
Félagsráðgjafi
	<description>Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir lausa til umsóknar stöðu félagsráðgjafa  við stofnunina.  
Starfssvið: Barnavernd og félagsþjónusta
Umsækjendur þurfa að hafa:
·       Starfsbundin réttindi félagsráðgjafa. 
·       Samstarfsvilja til þverfaglegs starfs starfsmanna FSS
·       Getu til að hefja störf sem fyrst! 
Umsóknir er tilgreini menntun, persónuupplýsingar, fyrri störf og 2 umsagnaraðila berist á póstfangið: 
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga 
Sveinn Þór Elinbergsson, forstöðumaður
Klettsbúð 4
360  Snæfellsbæ
ellegar á netfangið sveinn@fssf.is.
Umsóknarfrestur er til 23. febrúar 2012</description>
Súpa hjá 60+
	<description>Við byrjum aftur með hádegissúpuna í kirkjunni þriðjudaginn 7. febrúar kl. 12.  
Mætum sem flest og eigum saman notalega stund.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi.</description>
Tilkynning frá Íþróttamiðstöðinni.
	<description>Frá og með mánudeginum 6. febrúar verður útilaugin lokuð í óákveðinn tíma vegna viðgerða.
Áætlaður viðgerðatími er tvær vikur.
Nánari upplýsingar hjá starfsfólki íþróttamiðstöðvar.
Vignir Sveinsson
forstöðumaður.</description>
Lífshlaupið af stað á morgun
	<description>Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands verður ræst í fimmta sinn á morgun, miðvikudaginn 1. febrúar. 
Hægt er að taka þátt í vinnustaðakeppni, hvatningarleik grunnskólanna og einstaklingskeppni.  Markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til að hreyfa sig og huga að sinni daglegu hreyfingu í frítíma, heimilisstörfum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. 
Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum embætti landslæknis um hreyfingu. Börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og fullorðnir a.m.k. 30 mínútur á dag.
Á síðasta ári tóku um 16.400 landsmenn þátt í Lífshlaupinu og var mikil og góð stemninga jafnt á vinnustöðum sem skólum í febrúar. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á vefslóðinni http://www.lifshlaupid.is/ 
Vinnustaðir, grunnskóli og einstaklingar í Stykkishólmi eru hvattir til þátttöku og nota þannig tækifærið til að skapa létta stemningu og efla í leið líkama, sál og félagsandann með því að hreyfa sig daglega.
Samstarfsaðilar ÍSÍ vegna Lífshlaupsins eru: Mennta- og menningarmálaráðuneytið, velferðarráðuneytið, embætti landslæknis, Advania, Rás 2 og Ávaxtabíllinn.
www.lifshlaupid.is</description>
Tónlistarnám nemenda sem stunduðu tónlistarnám utan Stykkishólms skólaárið 2010-2011, en með lögheimili í Stykkishólmi
	<description>Á fundi bæjarráðs Stykkishólmsbæjar sem haldinn var fimmtudaginn 12. janúar 2012 var samþykkt að styrkja nemendur með lögheimili í Stykkishólmi sem stunduðu tónlistarnám utan Stykkishólms skólaárið 2010-2011 um allt að kr. 171.792. 
Hér með er bent á að umsóknarfrestur er til 1. maí 2012. 
Hægt er að senda inn umsókn um styrk til Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3 í pósti eða í tölvupósti á netfangið: baejarstjori@stykkisholmur.is. 
Nánari upplýsingar veitir Gyða Steinsdóttir, bæjarstjóri í síma 433 8100, netfang: gyda@stykkisholmur.is.
Stykkishólmsbær</description>
Fallegt veðrið í Stykkishólmi í dag
	<description>Séð yfir höfnina. Mynd: Pálmi.F.S.</description>
Viðtalstími bæjarfulltrúa D-lista
	<description>Bæjarfulltrúar D-lista verða með viðtalstíma í Ráðhúsinu,
miðvikudaginn 25. janúar frá kl. 17:00 til 18:00.
Bæjarfulltrúar D-lista</description>
Styrkir til atvinnumála kvenna
	<description>Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna er velferðarráðherra veitir árlega. Styrkir þessir hafa verið veittir síðan árið 1991 og er markmið þeirra að efla atvinnulíf og auka aðgengi kvenna að fjármagni.
Til ráðstöfunar að þessu sinni eru 30 milljónir og er hámarksstyrkur að þessu sinni kr. 3.000.000.
Sérstök ráðgjafanefnd metur umsóknir og er umsóknarfrestur til og með 14. febrúar og  mun úthlutun fara fram í apríl. 
Styrkhæf verkefni skulu vera í eigu kvenna (amk 50%) og stjórnað af konum og skulu fela í sér atvinnusköpun til frambúðar.  Um nýnæmi skal vera að ræða og kröfur eru gerðar um að verkefni skekki ekki samkeppnisstöðu á markaði.  
Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, áætlanagerðar, þróunarkostnaðar og markaðssetningar (innanlands og erlendis).  Auk þess geta konur sem hafa nýlega stofnað fyrirtæki eða eru að stofna fyrirtæki, sótt um styrk til að koma fyrirtækinu í framkvæmd (launastyrkur).  Með þeirri umsókn þarf að fylgja fullgerð viðskiptaáætlun.Ekki eru veittir styrkir vegna stofnkostnaðar, framkvæmda, stærri fjárfestinga né rekstrarstyrkir.  Vakin er athygli á því að styrkir eru skattskyldir og þarf að telja fram kostnað á móti. Ekki eru veittir hærri styrkir en sem nema helming kostnaðar við verkefni  en þetta á þó ekki við um gerð viðskiptaáætlunar.
Allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar um útfyllingu umsóknar má finna á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.isen þar er að auki rafrænt umsóknareyðublað.</description>
Til hamingju Snæfellingar - EarthCheck 2012
	<description>Eins og vonandi allir vita hafa sveitarfélögin á Snæfellsnesi státað sig af umhverfisvottun á starfsemi sinni frá árinu 2008 og hefur starfsmaður verkefnisins verið vistaður á Náttúrustofu Vesturlands. Til þess að viðhalda slíkri vottun er krafist vöktunar á auðlindanýtingu og ýmsum umhverfisþáttum auk stöðugra úrbóta í umhverfis- og samfélagsmálum. Árlega er starfsemin tekin út af óháðum aðila vegna endurnýjunar á vottun. Rétt fyrir jólin kom á svæðið úttektaraðili, Haukur Haraldsson frá Almennu verkfræðistofunni, til þess að fara yfir vinnu síðasta árs og meta svæðið með mögulega endurnýjun á vottun í huga. Þann 16. janúar sendu svo EarthCheck vottunarsamtökin tilkynningu um að vottun hefði náðst fyrir árið 2012. Nú skartar Snæfellsnes því nýju merki fyrir árið 2012.
Með þessu hefur grunnur verkefnisins verið treystur enn frekar. Framtíðarsýn verkefnisins er sterk hvað varðar fjölbreytt verkefni, kynningarstarf og mögulega útvíkkum til fleiri sveitarfélaga, meira um það síðar. Frekari árangri verður þó vart náð nema með nema með virkri þátttöku starfsfólks sveitarfélaganna og íbúa á svæðinu.</description>
277. fundur bæjarstjórnar
	<description>Næsti bæjarstjórnarfundur verður fimmtudag 19. janúar n.k. og hefst hann kl. 17.00. Dagskrá fundarins má nálgast hér.</description>
Opnunartími bæjarskrifstofu yfir áramótin.
	<description>Bæjarskrifstofan opnar kl. 12, mánudaginn 2. janúar 2012. Aðra virka daga verður opið eins og venjulega.</description>
Jólakveðja frá Stykkishólmsbæ
Útskrift Fjölbrautaskóla Snæfellinga
	<description>Útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla Snæfellinga verður haldin laugardaginn 17. desember í hátíðarsal skólans í Grundarfirði. Hátíðin hefst kl.14:00 og að henni lokinni verða kaffiveitingar í boði skólans.
Allir velunnarar skólans eru velkomnir.                                                  
Skólameistari</description>
276. fundur bæjarstjórnar
	<description>Næsti bæjarstjórnarfundur verður fimmtudag 15. desember n.k. og hefst hann kl. 19.30. Dagskrá fundarins má nálgast hér.</description>
Sorphirðudagatal 2012
	<description>Sorpirðudagatalið 2012 er komið á vefinn, þú getur nálgast það hér. 
Einnig er komið nýtt flokkunartafla fyrir Grænu tunnuna, hægt er að nálgast hana hér. 
Jólapappír er hægt að endurvinna, ekki má flokka hann með öðrum pappír því þarf að setja hann í gegnsæjan poka áður en hann fer í Grænu tunnuna
Slaufur og borðar eru hins vegar úr mismunandi hráefni og bendum við því fólki á að setja það í Gráu tunnuna.
Einnig viljum við minn á að gler má ekki fara í grænu tunnuna, því skal skila í móttöku í gámastöð við Snoppu eða setja í Gráu tunnuna.</description>
Deiliskipulag við Nónvík/Hjallatangi
	<description>Deiliskipulagið við Nónvík/Hjallatanga hefur öðlast lagalegt gildi samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010, hægt er að nálgast það hér.</description>
Eden kynningarfundur
	<description>Markaðsstofa Vesturlands og Sveitafélagið Stykkishólmur boða til kynningarfundar í Stykkishólmi þriðjudaginn 6. des. klukkan 17:00. Fundurinn verður í fundarsalnum í Ráðhúsi bæjarins að Hafnargötu 3, Stykkishólmi.
Edenverkefnið verður kynnt, reglur í kring um notkun á merkinu ásamt því að farið verður yfir hvað þessi verðlaun þýða fyrir Eden gæðaáfangastaði og þeirra nærumhverfi. 
Einnig mun  Halldór Arinbjarnarson frá Ferðamálastofu kynna Vakann, nýja gæða- og umhverfismerki Íslands. 
Eden á Íslandi. Halldór Arinbjarnarson 
Vestfirðir gæðaáfangastaður. Halldór Arinbjarnarson í stað Gústafs Gústafssonar frá Markaðsstofu Vestfjarða 
Stykkishólmur gæðaáfangastaður á Vesturlandi. Rósa Björk kynnir tækifærin í tengslum við gæðavottunina
Fundarstjóri  Gyða Steinsdóttir bæjarstjóri
 Hlakka til að sjá sem flesta,
Rósa Björk Halldórsdóttir,
framkvæmdarstjóri Markaðsstofu Vesturlands</description>
Helgistund og súpa fyrir 60+
	<description>Súpa verður þriðjudaginn 6. desember frá kl. 12:00-13:00 fyrir 60+ í kirkjunni. Endilega mætið sem flest og eigið saman notalega stund á aðventunni</description>
Aðventustund 60+
	<description>Aðventustund eldri borgara verður haldin í Setrinu í dag fimmtudaginn 1. desember 2011 frá kl.17:00-19:00. Dagskráin verður öll á léttu nótunum og m.a. ætlum við að hlusta á:
Nemendur Tónlistarskólans spila nokkur lög um kl. 17:30
Guðrún Marta Ársælssdóttir verður með lestur og skemmtilegheit.
Söngur
Mætum sem felst og eigum saman notalega stund í upphafi aðventunnar.
Íþrótta-og tómstundafulltrúi</description>