Foreldrafélag Grunnskólans í Stykkishólmi
Starfsreglur
1. gr. Foreldrafélag Grunnskólans í Stykkishólmi
Við Grunnaskólann í Stykkishólmi starfar foreldrafélag, sbr. 9. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008,
og er skólastjóri ábyrgur fyrir stofnun þess og sér til þess að félagið fái nægan stuðning til starfsemi sinnar frá skólanum eftir því sem þörf krefur.
2. gr. Félagsmenn
Foreldrum og forsjáraðilum nemenda í Grunnskólanum í Stykkishólmi er heimil aðild að félaginu.
3. gr. Bekkjardeildir og stjórn
Foreldrar nemenda hvers bekkjar mynda deildir innan félagsins og sér hver deild um starf í þágu síns bekkjar. Hver deild velur sér tvo bekkjarfulltrúa sem jafnframt eru stjórnarmenn í foreldrafélagi skólans.
Í upphafi skólaárs skal umsjónarkennari hvers bekkjar boða viðkomandi foreldra og forsjáraðila til fundar þar sem bekkjarfulltrúar eru valdir.
Eigi síðar en 10. september skulu fráfarandi og nýir fulltrúar bekkjardeilda funda og skulu fráfarandi embættismenn(formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri) skýra þar frá högum félagsins.
Á fundinum skulu bekkjarfulltrúar velja sér formann, gjaldkera, ritara og staðgengil formanns og varamenn þeirra. Embættismenn (formaður, varaformaður, gjaldkeri og ritari) séu ekki starfsmenn grunnskólans. Embættismenn skulu valdir til tveggja ára í senn, þannig að a.m.k. tveir embættismenn úr stjórn sitji áfram.
Eigi síðar en 20. september skal skólastjóri boða stjórn foreldrafélagsins til fundar, þar sem farið verður yfir starf vetrarins.
4. gr. Hlutverk
Lögbundið hlutverk foreldrafélagsins er þríþætt;
1. að styðja skólastarfið
2. að stuðla að velferð nemenda
3. að efla tengsl heimila og skóla.
Stjórn félagsins ber að sjá til þess að félagið sinni skyldum sínum og fer það eftir ákvörðunum hennar hverju sinni hvernig það er gert.
Félagið fjallar ekki um mál einstakra nemenda eða foreldra eða starfsfólks skólans.
5. gr. Félagsgjöld
Félagsgjöld skulu ekki innheimt nema samkvæmt ákvörðun félagsfundar hverju sinni.
6. gr. Kosning fulltrúa í skólaráð og skólanefnd.
Stjórn foreldrafélagsins kýs tvo fulltrúa í skólaráð þannig að einn fulltrúi er kosinn ár hvert til tveggja ára. Þegar kosið er í skólaráð í fyrsta skipti eða þegar forföll verða er annar fulltrúi foreldra kosinn til eins árs og hinn til tveggja ára. Sama hátt skal hafa á við kosningu varamanna.
Stjórn foreldrafélagsins kýs einn fulltrúa í skólanefnd Stykkishólmsbæjar á hverju hausti, skv. reglum sveitarfélagsins þar um. Fulltrúi foreldrafélagsins hefur á fundi skólanefndar málfrelsi og tillögurétt. Formaður foreldrafélagsins skal tilkynna til bæjaryfirvalda val stjórnar. Boðun á fundi skólanefndar er á ábyrgð bæjaryfirvalda.
7. gr. Stjórnarfundir
Stjórnarfundi skal halda mánaðarlega á starfstíma skólans. Formaður stjórnar boðar til stjórnarfunda með tryggilegum hætti og hæfilegum fyrirvara.
Stjórnarfundur er ályktunarfær ef meirihluti embættismanna sækir fund. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum. Nú eru atkvæði jöfn og ræður þá atkvæði formanns úrslitum.
Ákvarðanir stjórnar skulu færðar í fundargerð sem staðfestar skulu af stjórn.
Stjórnarfundir eru öllum félagsmönnum opnir.
8. gr. Félagsfundir
Félagsfundi má halda samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni eða að kröfu tíunda hluta félagsmanna. Stjórn félagsins skal með viku fyrirvara boða til félagsfunda með tryggilegum hætti. Dagskrá skal liggja fyrir eigi síðar en þremur dögum fyrir félagsfund.
9. gr. Breyting á starfsreglum
Tillaga um breytingar á starfsreglum þessum skal tekin til meðferðar á stjórnarfundi og skal efni hennar lýst í dagskrá. Samþykki 2/3 fundarmanna þarf til að breyta starfsreglum félagsins.
Samþykkt á stjórnarfundi Foreldrafélags Grunnskólans í Stykkishólm 2. Maí 2011.