Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
3. febrúar 2012 01:52

Ytra mat

Í desember sl. barst Stykkishólmsbæ og Grunnskólanum í Stykkishólmi boð frá Menntamálaráðuneytinu og Sambandi ísl. sveitarfélaga um þátttöku í tilraunaverkefni um ytra mat í skólastarfi. Ákveðið var að þiggja boðið og nú er komið að því. (sjá nánar í "Meira...")

 

Meira...
20. janúar 2012 01:34

Niðurstöður úr sjálfsmatskönnunum

 

Liður í sjálfsmati Grunnskólans í Stykkishólmi er að leggja spurningakannanir fyrir þá aðila sem standa næst skólanum, þ.e. nemendur, foreldra og starfsfólk. Í desember voru kannanir lagðar fyrir foreldra og starfsfólk og má sjá niðurstöður þeirra hér. Þessar spurningar eru úr kannanaflokknum „Almennt um skólann“ og eru þær unnar upp úr „Skólamati-Outcome“ sem er kannanakerfi fyrir mat á skólastarfi. Sömu kannanir voru lagðar fyrir vorið 2010 svo nú er hægt að gera samanburðarmat. Í heildina erum við ánægð með niðurstöðurnar. Breytingar eru í langflestum tilvikum jákvæðar (dregið fram með rauðu letri í foreldrakönnun) og virðist viðhorf foreldra til skólastarfsins vera gott. Við erum afskaplega ánægð með það og þökkum fyrir þá hvatningu sem það gefur okkur. En alltaf má bæta og þurfum við að huga sérstaklega að ákveðnum þáttum. Farið var yfir niðurstöðurnar með starfsfólki grunnskólans sl. miðvikudag og tekur nú við vinna við að móta áhersluatriði og markmið.

 

Niðurstöður kannananna má sjá hér

Meira...
20. janúar 2012 01:22

Bóndadagur hjá 3. bekk

 

Stelpurnar í 3. héldu upp á bóndadaginn með bekkjarbræðrum sínum. Uppákoman kom strákunum skemmtilega á óvart en þeir voru mjög ánægðir með framtak stelpnanna.

 

Í myndasafninu má sjá myndir frá 3. bekk.

Meira...
19. janúar 2012 08:22

Matarþema í dönsku

Nemendur 9. og 10. bekkjar eru nú á bólakafi í matarþema í dönsku. Eitt af verkefnum þeirra var að koma með matvöru og kynna á dönsku. Högna Ósk í 10. bekk var svo frumleg að koma með heimagert sushi og allt tilheyrandi til að leyfa kennara sínum og samnemendum að smakka.

 

 

Meira...
5. janúar 2012 10:40

Myndir úr skógarferð

Nokkrar myndir voru teknar í velheppnaðri skógarferð í morgun.

Myndirnar má sjá hér: MYNDASAFN 

Meira...
14. desember 2011 10:58

Kirkjuferðin

Nemendur í 1.-6. bekk fóru í kirkjuferð í gær ásamt nemendum leikskólans. Var stundin falleg og jólaleg, séra Gunnar ræddi um aðventuna og jólin, nemendur léku á hljóðfæri og hápunkturinn var svo helgileikur sem 3. bekkur sá um. Þeim fórst það afskaplega vel af hendi, sungu hátt og léku vel. Að lokum sungu allir saman „Heims um ból“ við undirleik Lazlo á nýja orgelið sem hljómaði aldeilis vel.

 

Fleiri myndir má sjá á myndasafni

Meira...
7. desember 2011 11:20

Jólaföndurshringekja

Ýmislegt fallegt var gert hjá nemendum 1.-5. bekkjar í morgun, en fyrstu fjórar kennslustundirnar voru notaðar fyrir jólaföndur.

Sjá má fleiri myndir inn á myndasafni

Meira...
2. desember 2011 10:31

Jólasöngsalur

Í morgun var jólasöngsalur hjá 1. - 5. bekk. Mikil stemning var hjá börnunum eins og sjá má á myndunum.

Meira...
30. nóvember 2011 12:11
28. nóvember 2011 08:35
21. nóvember 2011 01:24
8. nóvember 2011 11:55
3. nóvember 2011 01:04
28. október 2011 10:20
19. október 2011 12:17
14. október 2011 11:21
21. september 2011 08:29
20. september 2011 10:15
9. september 2011 10:48
30. maí 2011 08:13
9. mars 2011 10:18
8. febrúar 2011 10:09
14. desember 2010 08:26
10. ágúst 2010 10:23
11. mars 2010 09:02
5. mars 2010 08:39
2. mars 2010 05:32
16. desember 2009 03:13
2. desember 2009 11:55
Grunnskólinn í Stykkishólmi - Borgarbraut 6 - 340 Stykkishólmi - Sími 4338177 - Fax 4381045 - grunnskoli@stykk.is