31. maí 2010 08:07
Á ferð og flugi...
Þegar dregur nær skólalokum eru krakkarnir meira á ferð og flugi en venjulega. Það hefur verið farið í fjallgöngur, fjöruferðir, skógarferðir og í utikennslustofuna.
9. bekkur fór í síðustu viku í Skagafjörðinn í ferð sem heppnaðist vel og má sjá myndir úr ferðinni á facebook síðu Róberts Stefánssonar en hann var einn fararstjóra ásamt Moniku og Sólrúnu.
Í dag heldur svo 10. bekkur í sína vorferð og er þeirri för líka heitið norður.