3. júní 2010 23:46
Grænfáni og brautskráning nemenda

Skólaslit og brautskráning nemenda fóru fram við hátiðlega athöfn í kirkjunni í dag. Athöfnin hófst með söng yngstu nemendanna og síðan tóku þau eldri við og fluttu söngatriði úr verkinu sem þau sýndu nú á vordögum um tónlistarlíf fyrri tíma.
Fleir myndir eru hér að neðan ("meira") og á myndasafninu.

Grænfáninn var afhentur skólanum og tók Sigurborg Sturludóttir verkefnastjóri umhverfisverkefnisins við honum af Orra Páli Jóhannsyni frá Landvernd sem hefur umsjón með verkefninu Skólar á grænni grein.
Nemendur komandi fyrsta bekkjar voru boðnir velkomnir en þeir eru að þessu sinni 14 talsins. Síðan voru 10. bekkingar brautskráðir. Það er fríður hópur, 21 nemandi, og allt mikið hæfileikafólk eins og þau hafa sýnt undanfarin ár. Krakkarnir tóku virkan þátt í athöfninni eins og sjá á á myndum og settu skemmtilegan svip á hana.

Námsárangur 10. bekkjar var mjög góður og það voru stoltir kennarar sem kvöddu nemendur sína með söknuði en fullvissir þess að þeir væru vel undir það búnir að takast á við nám og störf á mörgum sviðum.