5. mars 2010 08:39
Stóra upplestrarkeppnin
Í gær voru valdir þátttakendur 7. bekkjar í Stóru upplestrarkeppnina hér á Snæfellsnesi. Krakkarnir buðu foreldrum sínum og kennurum að hlusta á ljóðalestur og sögukafla og á milli atriða var boðið upp á léttar veitingar. Dómnefnd lagði svo mat sitt á lesarana og valdi þau Halldóru K. Lárusdóttur, Silju K. Davíðsdóttur og Viktor M. Alexandersson til þess að keppa fyrir hönd bekkjarins á lokahátíðinni sem verður í Grundarfirði í næstu viku.
