Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
11. mars 2010 09:02

Skemmtileg vika á Laugum

 

 

Vikuna 1-5. mars dvöldum við 8. bekkur og Magga Ebba í skóla og frístundabúðunum á Laugum.  Þarf ekki að fara mörgum orðum um það að vikan var í alla staði frábær.  Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg, brjóstsykurgerð, kjarkur og þor, blaðamennska, galdrar og spádómar, félagsvist, GÖGL ( sirkustækni), gönguferðir, heimsókn á byggðasafnið, ferð á sauðfjárbúið að Stóra Vatnshorni, Erpsstaði og Eiríksstöðum svo eitthvað sé nefnt.  Svo verður nú að minnast á kvöldóvissuferðina þar sem ansi margir komu heim með fölan vangann.

Krakkarnir voru í alla staði til fyrirmyndar svo vikan varð hálfgert húmæðraorlof fyrir mig.   Krakkar takk fyrir skemmtilega viku.

 

PS. Albúm með 100 myndum er komið á MYNDASAFNIÐ

 

 

Grunnskólinn í Stykkishólmi - Borgarbraut 6 - 340 Stykkishólmi - Sími 4338177 - Fax 4381045 - grunnskoli@stykk.is