Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
3. febrúar 2012

Í desember sl. barst Stykkishólmsbæ og Grunnskólanum í Stykkishólmi boð frá Menntamálaráðuneytinu og Sambandi ísl. sveitarfélaga um þátttöku í tilraunaverkefni um ytra mat í skólastarfi. Ákveðið var að þiggja boðið og nú er komið að því. (sjá nánar í "Meira...")

 

20. janúar 2012

 

Liður í sjálfsmati Grunnskólans í Stykkishólmi er að leggja spurningakannanir fyrir þá aðila sem standa næst skólanum, þ.e. nemendur, foreldra og starfsfólk. Í desember voru kannanir lagðar fyrir foreldra og starfsfólk og má sjá niðurstöður þeirra hér. Þessar spurningar eru úr kannanaflokknum „Almennt um skólann“ og eru þær unnar upp úr „Skólamati-Outcome“ sem er kannanakerfi fyrir mat á skólastarfi. Sömu kannanir voru lagðar fyrir vorið 2010 svo nú er hægt að gera samanburðarmat. Í heildina erum við ánægð með niðurstöðurnar. Breytingar eru í langflestum tilvikum jákvæðar (dregið fram með rauðu letri í foreldrakönnun) og virðist viðhorf foreldra til skólastarfsins vera gott. Við erum afskaplega ánægð með það og þökkum fyrir þá hvatningu sem það gefur okkur. En alltaf má bæta og þurfum við að huga sérstaklega að ákveðnum þáttum. Farið var yfir niðurstöðurnar með starfsfólki grunnskólans sl. miðvikudag og tekur nú við vinna við að móta áhersluatriði og markmið.

 

Niðurstöður kannananna má sjá hér

20. janúar 2012

 

Stelpurnar í 3. héldu upp á bóndadaginn með bekkjarbræðrum sínum. Uppákoman kom strákunum skemmtilega á óvart en þeir voru mjög ánægðir með framtak stelpnanna.

 

Í myndasafninu má sjá myndir frá 3. bekk.

19. janúar 2012

Nemendur 9. og 10. bekkjar eru nú á bólakafi í matarþema í dönsku. Eitt af verkefnum þeirra var að koma með matvöru og kynna á dönsku. Högna Ósk í 10. bekk var svo frumleg að koma með heimagert sushi og allt tilheyrandi til að leyfa kennara sínum og samnemendum að smakka.

 

 

5. janúar 2012

Nokkrar myndir voru teknar í velheppnaðri skógarferð í morgun.

Myndirnar má sjá hér: MYNDASAFN 

Grunnskólinn í Stykkishólmi - Borgarbraut 6 - 340 Stykkishólmi - Sími 4338177 - Fax 4381045 - grunnskoli@stykk.is