Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
16. maí 2012

Sérstakir prófdagar verða hjá 7. - 10. bekk 23. - 25. maí.

6. bekkur fær líka prófdag föstudaginn 25. maí.

Þessa daga verður engin kennsla hjá nemnedum heldur mæta þeir í próf sem hefjast kl. 8.05 og 10.15.

Próftöfluna má skoða með því að smella: HÉR

2. maí 2012

Eftirfarandi breyting hefur verið gerð á skóladagatali þessa skólaárs:

Prófum í öllum bekkjum verður lokið fyrir hvítasunnu. Sérstakir prófdagar verða hjá eldri bekkjum í þeirri viku og verður próftafla hvers bekkjar gefin út fljótlega.

Síðasti skóladagur nemenda er svo föstudagurinn 1. júní og skólaslitin þriðjudaginn 5. júní.

25. apríl 2012

Á fundi í dag kynntu Óskar Sandholt og Gunnar Kristjánsson niðurstöður úttektar sem þeir gerðu fyrir hönd menntamálaráðuneytisins og Sambands sveitarfélaga á Grunnskólanum í Stykkishólmi.

 

Lesa má um tilgang matsins, aðferðir og niðurstöður með því að smella á þennan tengil: Matsskýrsla - Grunnskólinn í Stykkishólmi

17. apríl 2012

Nemendur í 7. bekk brunuðu af stað í skíðaferð þriðjudaginn 27. mars s.l. því þeir höfðu heyrt að snjórinn á Dalvík væri í þann mund að yfirgefa svæðið. Vel var tekið á móti hópnum og augljóst að skemmtilegir dagar voru í vændum. 
Mikið var skíðað þótt færið hafi verið ansi ævintýralegt. 
Frábær ferð í alla staði og stóð hópurinn sig rosalega vel. Hér má sjá fleiri myndir úr skíðaferðinni.

 

 

 

21. febrúar 2012

Í næstu viku lýkur miðönninni með prófum og öðrum skilum á námsmati. Sérstakir prófdagar eru hjá fjórum elstu árgöngunum og hér má skoða próftöfluna sem kemur í stað stundaskrár hjá 7. - 10. bekk þessa daga.

 

Grunnskólinn í Stykkishólmi - Borgarbraut 6 - 340 Stykkishólmi - Sími 4338177 - Fax 4381045 - grunnskoli@stykk.is