Í skólanum gilda allar almennar kurteisis- og umgengnisreglur. Nemendum ber að koma hreinir og snyrtilegir til fara í skólann og ganga þar vel um eigur sínar og annarra.
Ögun er hverjum einstaklingi holl því allir þurfa að læra að virða skráðar og óskráðar reglur samfélagsins. Skólinn leggur áherslu á góðar umgengnisvenjur og aga í framkomu og vinnubrögðum.
Samskipti nemenda og starfsfólks skólans þurfa að einkennnast af prúðmennsku, kurteisi og gagnkvæmri virðingu. Nemendum er kennt að fara eftir ákveðnum reglum en markmiðið er að hver einstaklingur þroski með sér sjálfsaga og ábyrgðartilfinningu sem hvetur hann til jákvæðra samskipta við aðra og að bera
virðingu fyrir umhverfinu. Góð umgengni stuðlar að fallegu og hlýlegu umhverfi sem er einn þeirra þátta sem hafa jákvæð áhrif á líðan nemendanna. Skólinn á að láta sig varða samskipti nemenda, gera allt sitt til að líðan þeirra verði sem best og bregðast við vandamálum eins og einelti og einangrun. Miklu skiptir að í skólanum mæti nemendur hlýju og glaðlegu viðmóti ásamt festu og öryggi.
Góð samskipti milli skóla og heimila eru aldrei eins mikilvæg og þegar nemandi verður fyrir áföllum sem hafa áhrif á andlega líðan hans. Þrátt fyrir fögur fyrirheit og viðleitni skólans á þessum sviðum geta komið upp aðstæður sem teljast óæskilegar. Þá er mikilvægt að að brugðist sé eins skjótt við og kostur er við lausn mála til að koma þeim í rétt horf á ný.
Hér að neðan er getið nokkurra atriða í þessu sambandi og þeir aðilar tilgreindir sem ber að leita til.
|
Hvert á að leita |
Aðrir sem koma að málinu |
|
Einelti |
umsjónarkennari
skólastjórar |
sálfræðingur
nemendaverndarráð |
|
Hegðunarörðugleikar |
umsjónarkennari
skólastjórar |
nemendaverndarráð
sálfræðingur
námsráðgjafi |
|
Námsörðugleikar |
umsjónarkennari
sérkennari
námsráðgjafi |
sálfræðingur
skólastjóri |
|
Samskiptaörðugleikar |
umsjónarkennari
skólastjórar |
nemendaverndarráð
sálfræðingur |
|
Val á framhaldsnámi |
umsjónarkennari
námsráðgjafi |
|
|
Grunur um fíkniefnanotkun |
umsjónarkennari
skólastjórar |
lögregla
skólahjúkrunarfræðingur
nemendaverndarráð |
|
Óöryggi - veik sjálfsmynd |
umsjónarkennari
námsráðgjafi |
sálfræðingur
skólahjúkrunarfræðingur |
|
Sorg - ástvinamissir |
umsjónarkennari
skólastjórar |
sálfræðingur
prestur
skólahjúkrunarfræðingur |
|
Ofbeldi |
umsjónarkennari
skólastjórar |
sálfræðingur
lögregla
nemendaverndarráð |
Skólareglur
Meðferð mála - viðurlög
Réttindi og skyldur
Eineltisáætlun
Forvarnarstefna
Áfallaáætlun