Mat á skólastarfi
Samkvæmt grunnskólalögum skal hver grunnskóli innleiða aðferðir til að meta skólastarfið, þar á meðal kennslu og stjórnunarhætti, samskipti innan skólans og tengsl við aðila utan skólans.
Mati á skólastarfi er yfirleitt skipt í ytra og innra mat. Með ytra mati er átt við úttekt á starfsemi stofnunar sem unnin er af utanaðkomandi aðilum. Með innra mati er átt við sjálfsmat stofnunar og er það unnið af starfsfólki hennar.
Sjálfsmat er leið til þess að vinna kerfisbundið að gæðum og umbótum í skólastarfi. Það er einnig leið til að miðla þekkingu og upplýsingum um skólastarf. Í sjálfsmati skal koma fram stefna og markmið skóla, skilgreining á leiðum til að ná þeim, greining á sterkum og veikum hliðum skólastarfsins og áætlun um úrbætur. Megintilgangur þess er að gera starfsfólki skóla auðveldara að vinna að framgangi markmiða skólans, meta hvort þeim hafi verið náð, endurskoða þau og stuðla að úrbótum.