GÓÐUR SKÓLABRAGUR- GÓÐ LÍÐAN
Öllum á að líða vel í skólanum, bæði nemendum og starfsfólki.
Til að auðvelda það er nauðsynlegt að allir þekki skólareglurnar og fari eftir þeim.
Skólareglur
1. Hegðun og ástundun: Nemendur og fullorðnir sýna hverjir öðrum virðingu, kurteisi og tillitssemi. Nemendum ber að hlíta fyrirmælum starfsmanna skólans. Nemendum ber að stunda nám sitt samviskusamlega og virða rétt annarra til að hafa góðan vinnufrið í bekknum.
2. Stundvísi: Nemendum ber að mæta stundvíslega í allar kennslustundir. Forföll nemenda þarf að tilkynna strax að morgni. Hringt er heim til nemenda ef forföll eru ekki tilkynnt. Tilkynna þarf daglega um veikindi nemenda.
3. Umgengni: Nemendur fara úr útiskóm, útifötum og taka af sér húfur áður en farið er í kennslustund. Þeir ganga vel og snyrtilega um húsnæði skólans og eigur hans (bækur, kennsluáhöld og húsgögn).
4. Námsgögn o.fl. Nemendur hafa með sér þau gögn sem til þarf í skólann, svo sem bækur, ritföng, nesti og íþrótta-/sundföt. Nemendur bera ábyrgð á þeim námsbókum sem skólinn lánar þeim.
5. Notkun reiðhjóla, hlaupahjóla, línuskauta og hjólabretta er bönnuð á skólalóðinni á skólatíma.
6. Nemendum er óheimilt að fara út af skólalóð á skólatíma. Nemendum í 7. bekk og eldri er heimilt að fá undanþágu frá þessari reglu með leyfi umsjónarkennara.
7. Nemendur komi ekki með peninga í skólann að óþörfu og skilji verðmæti ekki eftir í fötum sínum á göngum eða í búningsklefum. Skólinn tekur ekki ábyrgð á persónulegum munum nemenda eða fjármunum.
8. Nemendur eiga að koma með hollt og gott nesti. Óheimilt er að vera með gosdrykki og sælgæti í skólanum nema við sérstök tilefni.
Um fartölvunotkun nemenda
Það hefur aukist að nemendur í 7.-10. bekk hafi með sér fartölvur í skólann. Tölvur geta verið gagnleg hjálpartæki við nám en þar sem margir nemendur nota þessi dýru verkfæri því miður fyrst og fremst sem leikföng, hvort sem er í kennslustundum eða frímínútum, hefur verið ákveðið að ekki verði lengur leyfilegt að nemendur komi með sínar eigin fartölvur í skólann.
Foreldrar nemenda með námsörðugleika geta sótt um undanþágu frá fartölvubanni, enda nýti nemandinn þá tölvuna eingöngu sem hjálpartæki við námið og þá í samráði við kennara.
Sjái kennari not fyrir fartölvur í einstökum tímum eru nemendur látnir vita af því fyrirfram og miðast notkun tölvanna þá eingöngu við kennslustundina.
Reglur um farsíma- og hljómtækjanotkun nemenda
Notkun truflandi tækja (farsímar, fartölvur o.fl.) er óheimil á skólatíma. Ef nemendur þurfa á síma að halda eftir skóla mega þeir hafa hann meðferðis ef tryggt er að hann sé hljóðlaus og ekki sýnilegur. Brjóti nemandi þetta bann verður síminn/spilarinn tekinn af honum og komið í vörslu skólastjóra. Það sama á við ef síminn hringir/pípir í töskunni. Í frímínútum má nota síma og iPod/mp3 ef notkunin truflar ekki aðra (án hljóðs).
• Við fyrsta brot getur nemandi fengið símann/spilarann afhentan á skrifstofu skólastjóra að skóladegi loknum.
• Við annað brot þarf foreldri/forráðamaður að nálgast símann/spilarann á skrifstofu skólastjóra.
• Við þriðja brot er haft samráð við foreldra um frekari aðgerðir.
Reglur um fjarvistir nemenda
Hver nemandi byrjar hverja önn með einkunnina 10,0 fyrir ástundun.
Við hverja óheimila fjarvist eru 0,4 dregnir frá einkunninni.
Í hvert sinn sem nemandi mætir of seint dragast 0,2 frá.
Sé nemanda vísað úr tíma eru 0,6 dregnir frá einkunninni.
Sé mætingum ábótavant, nemandi óstundvís eða skrópar, verður gripið til aðgerða sem hér segir: Strax og einkunn fyrir ástundun fer niður fyrir 9,0 er foreldrum sent bréf og síðan aftur ef einkunn fer niður fyrir 7,0. Fari einkunn niður fyrir 6,0 eru foreldrar boðaðir á fund umsjónarkennara. Ef einkunn í ástundun fer niður fyrir 5,0 eru foreldrar boðaðir á fund umsjónarkennara og skólastjóra. Beri þessar aðgerðir ekki tilætlaðan árangur er ástundun nemandans lögð fyrir nemendaverndarráð þar sem ákvörðun er tekin um framhald.
Góð skólasókn er nemandanum afar mikilvæg ef námið á að skila þeim árangri sem stefnt er að. Þessar reglur eru til þess gerðar að auðvelda nemendum, foreldrum og kennurum að halda utan um mætingu nemenda og hvetja þá til að vanrækja ekki þennan þátt skólastarfsins.
Góð hegðun nemanda
Nemandi:
• mætir stundvíslega í skólann, hefur það meðferðis sem honum ber og kemur vel undirbúinn.
• vandar öll vinnubrögð og frágang á verkefnum.
• fer vel með skólagögn og verðmæti sem honum er trúað fyrir.
• virðir eignarrétt annarra.
• gengur vel um skólann sinn og umhverfi hans.
• hlýðir fyrirmælum og virðir verkstjórnarhlutverk kennara.
• virðir skólareglur og aðrar samskiptareglur sem gilda í skólanum.
• leitast við að hafa stjórn á eigin hegðun, bæði í orðum og gjörðum.
• er tillitssamur og gerir sér far um að setja sig í spor annarra.
• leitast við að leysa úr ágreiningi sem upp kann að koma af skynsemi og án ofbeldis.
Óviðeigandi hegðun nemenda
Óviðeigandi hegðun er ekki í samræmi við skólareglur og almennar kurteisis- og samskiptareglur. Hegðunin veldur truflun á skólastarfi og/eða vanlíðan hjá öðrum nemendum.
Allir starfsmenn bregðast við óviðeigandi hegðun nemenda
samkvæmt aðgerðaráætlun skólans.
Meðferð mála- viðurlög