Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi

Hlutverk umsjónarkennara

Umsjónarkennarar fylgjast öðrum fremur með námi og þroska allra nemenda sem þeir hafa umsjón með. Í þessu felst m.a. að leiðbeina nemendum í námi og mati á því. Umsjónarkennarar eiga að hlutast til um andlega og líkamlega velferð nemenda sinna og hafa samvinnu við foreldra og forráðamenn eftir þörfum.

 

Umsjónarkennari

  • er trúnaðarmaður sem nemendur geta leitað til með vandamál sem snúa að náminu, skólanum og öðru. Hann leysir á eigin spýtur smærri vandamál en leitar samráðs um önnur eða kemur þeim í réttan farveg;
  • er talsmaður nemenda við stjórnendur, aðra kennara, starfsmenn og nemendaverndarráð;
  • leitast við að skapa góðan bekkjaranda, réttlátar vinnu- og umgengnisreglur og hvetjandi námsumhverfi;
  • samræmir ásamt faggreinakennurum og árganga- og fagstjórum námsefni milli bekkjardeilda;
  • hefur umsjón með undirbúningi og framkvæmd bekkjarkvölda, skemmtiatriða á árshátíð, vettvangsferða og annarra viðburða í bekkjarstarfinu í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir því sem við á hverju sinni;
  • annast námsmat, skýrslugerð, einkunnafærslur og afhendingu einkunna.
Grunnskólinn í Stykkishólmi - Borgarbraut 6 - 340 Stykkishólmi - Sími 4338177 - Fax 4381045 - grunnskoli@stykk.is