Starfslýsingar – verksvið
Skólastjórar
Skólastjóri er forstöðumaður skólans og aðstoðarskólastjóri er staðgengill hans.
Skólastjórar starfa samkvæmt erindisbréfi. Þeir stýra skólahaldi, sinna daglegum rekstri, starfsmannahaldi og samskiptum við foreldra og aðila utan skóla. Skólastjóri og aðstoðarskólastjóri hafa forgöngu um skipulag náms og kennslu, um gerð skólanámskrár, skólaþróun og aðra áætlanagerð.
Kennarar
Kennari sem ráðinn er til starfa í grunnskóla skal gegna því starfi samkvæmt lögum, reglugerðum, Aðalnámskrá grunnskóla, erindisbréfi og kjarasamningum. Kennarar starfa eftir erindisbréfi sem sett er samkvæmt 6. gr. laga nr 72/1996 um réttindi og skyldur kennara og skólastjóra grunnskóla.
Kennarar gegna lykilhlutverki í skólastarfinu. Á þeim hvílir ekki aðeins sú skylda að miðla þekkingu til nemenda heldur einnig að veita nemendum tækifæri til að afla sér þekkingar og leikni, örva starfsgleði þeirra og frjóa hugsun. Kennara ber að sjá til þess að sérhver nemandi fái viðfangsefni við hæfi, aðstoða hvern og einn í náminu og hvetja til sjálfstæðra vinnubragða. Kennari leitast við að skapa réttlátar vinnu- og umgengnisreglur og hvetjandi námsumhverfi og stuðlar að því að nemendur tileinki sér heilbrigðar lífsvenjur.
Kennari skal leitast við að vera nemendum sínum til fyrirmyndar um háttvísi, stundvísi og reglusemi og gæta trúnaðar við nemendur og virða þann trúnað sem þeir sýna honum.
Kennari gæti þagmælsku um þau einkamál sem hann fær vitneskju um í starfi og þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi. Kennara ber að annast kennslu og nauðsynlegan undirbúning samkvæmt stundaskrá og sinna öðrum störfum við skólann sem honum eru falin af skólastjóra enda samræmast þau starfssviði hans.
Í starfi kennara felst meðal annars:
- að annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum aðalnámskrár og stefnu skólans;
- að skipuleggja kennslu sína í samræmi við markmið grunnskólalaga og með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda hverju sinni;
- að fylgjast með ástundun, framkomu og líðan nemenda og gera skólastjóra og forráðamönnum nemenda viðvart ef hann telur þörf á;
- að fylgjast með aðbúnaði til náms og kennslu og gera skólastjóra viðvart ef umbóta er þörf;
- að færa dagbækur reglulega, nemendaskrár, einkunnabækur og aðrar nauðsynlegar skýrslur;
- að veita umsjónarkennurum og námsráðgjöfum upplýsingar um námsgengi einstakra nemenda;
- að veita foreldrum sem gleggstar upplýsingar um skólann og skólastarfið og gengi viðkomandi nemanda;
- að hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju;
- að hafa jafnrétti nemenda í öllu skólastarfi að leiðarljósi.
Deildarstjóri sérkennslu
Deildarstjóri sérkennslu stjórnar og skipuleggur sérkennslu ásamt því að veita kennurum faglega ráðgjöf. Hann er einn af stjórnendateymi skólans ásamt skólastjóra og aðstoðarskólastjóra.
Hann
- safnar saman óskum um stuðnings- og sérkennslu, vinnur úr þeim og skipuleggur sérkennsluna í samráði við skólastjóra.
- fundar með þeim kennurum sem sinna sérkennslu, hefur yfirsýn yfir kennsluhætti og veitir kennurum ráðgjöf í gerð einstaklingsnámskráa.
- skipuleggur og stjórnar nýbúakennslu í skólanum.
- er almennum kennurum skólans til faglegs ráðuneytis varðandi skipulag kennslu nemenda með sérþarfir.
- hefur yfirsýn yfir störf stuðningsfulltrúa, skipuleggur þau og leiðbeinir þeim í samstarfi við umsjónarkennara.
- safnar saman upplýsingum um niðurstöður greininga, bréfum og öðrum gögnum sem varða nemendur með sérþarfir.
- situr fundi í nemendaverndarráði skólans ásamt öðrum fulltrúum.
- sinnir fundarsetu ef þess er þörf vegna nemenda með sérþarfir.
- skipuleggur og stjórnar reglulegum foreldrafundum, skráir og miðlar upplýsingum.
- situr skilafundi með starfsfólki Félags- og skólaþjónustu, foreldrum og öðrum aðilum eftir því sem við á þegar nýir nemendur koma í skólann.
- aflar, ásamt tilvonandi umsjónarkennara, upplýsinga frá leikskóla um verðandi nemendur 1. bekkjar ár hvert og skráir upplýsingar um sérþarfir.
- hefur umsjón með lestrarskimunum í árgöngum, kynnir fyrir bekkjarkennurum próf og greiningar sem leggja ber fyrir bekki og einstaka nemendur. Skráir niðurstöður og fylgir þeim eftir.
- hefur umsjón með gerð tengslakönnunar og eineltiskönnunar.
- er tengiliður skólans við starfsfólk Félag- og skólaþjónustu Snæfellinga.
- sækir um undanþágur og frávik í samræmdum prófum fyrir nemendur sem þess þurfa.
- skipuleggur ásamt aðstoðarskólastjóra prófafyrirkomulag og aðstæður í samræmdum prófum vegna nemenda með frávik.
- sinnir öðrum þeim störfum er skólastjóri kann að fela honum og falla innan eðlilegs starfssviðs hans.
Árgangastjórar
Árgangastjóri stýrir faglegu starfi á ákveðnu aldursstigi og tryggir þannig að samfella verði í kennslu stigsins. Hann fundar reglulega með kennurum viðkomandi stigs, hann er fundarstjóri á þeim fundum, undirbýr þá og sér um að rita fundargerð. Árgangastjóri vinnur með kennurum að bekkjarnámskrárgerð og námsmati. Hann er tengiliður við skólastjóra, kennararáð og kennara.
Stuðningsfulltrúar
Stuðningsfulltrúi er kennara til aðstoðar við að sinna einum eða fleiri nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð. Starfið miðar fyrst og fremst að því að auka færni og sjálfstæði þessara nemenda, félagslega, námslega og í daglegum athöfnum. Starfið tekur mið af þar til gerðri áætlun sem hefur það að markmiði að draga smám saman úr þörf nemanda á stuðningi í þeim tilvikum þar sem það er hægt.
Stuðningsfulltrúi starfar innan almennra bekkja og eða innan sérdeildar.
Yfirmaður stuðningsfulltrúa er skólastjóri en dagleg verkstjórn er í höndum umsjónakennara og deildarstjóra sérkennslu.
Stuðningsfulltrúi
- aðstoðar nemanda / nemendur við daglegar athafnir og virkjar til þátttöku í skólastarfi.
- vinnur eftir áætlun sem bekkjarkennari hefur útbúið í samráði við deildarstjóra sérkennslu, sálfræðing eða annan ráðgjafa.
- aðstoðar nemanda / nemendur við að ná settum markmiðum samkvæmt aðalnámskrá eða einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara.
- aðlagar/vinnur verkefni að getu nemandans samkvæmt leiðbeiningum kennara.
- ýtir undir færni og sjálfstæði nemenda í námi og daglegum athöfnum t.d. með því að hvetja þá til að gera sem mest sjálfa og hrósa þeim fyrir viðleitni í þá átt.
- aðstoðar nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð.
- styrkir jákvæða hegðun nemenda samkvæmt umbunarkerfi og vinnur gegn neikvæðri hegðun, t.d. með áminningum.
- fylgist með og leiðbeinir um rétta líkamsbeitingu nemenda, notkun skriffæra o.s.frv.
- aðstoðar nemanda við að klæðast, matast og aðrar athafnir daglegs lífs ef þeir eru ófærir um það sjálfir.
- leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustofu.
- veitir nemendum félagslegan stuðning með því að hlusta á frásagnir og reynslu þeirra og spjalla við þá þegar aðstæður leyfa.
- fylgir einum eða fleiri nemendum á ferðum þeirra um skólann, í frímínútum og vettvangsferðum og aðstoðar þá eftir þörfum.
- situr fag- og foreldrafundi eftir því sem við á.
- skrifar í samskiptabók daglegar lýsingar á hegðun, athöfnum og gengi nemandans í góðri samvinnu við umsjónakennara.
- getur eftir aðstæðum einnig sinnt öðrum nemendum í bekknum, m.a. til að kennari geti aðstoðað nemanda sem þarf séraðstoð og til að draga úr sérstöðu nemanda með sérþarfir.
- annast önnur þau störf sem honum kunna að verða falin af yfirmanni og falla innan eðlilegs starfssviðs hans.
Skólaritari
Skólaritari starfar á skrifstofu skólans og tekur þannig þátt í því uppeldisstarfi sem fram fer innan skólans. Skólaritari starfar undir stjórn skólastjóra. Skólaritari veitir skrifstofu skólans forstöðu. Skrifstofan þjónar öllum starfsmönnum og nemendum skólans og er tengill milli skóla og heimilis. Skólaritari skal gæta trúnaðar um þau málefni sem hann verður áskynja í starfi sínu og helst sú skylda þótt látið sé af starfi.
Í starfi skólaritara eru mikil samskipti við nemendur og starfsfólk auk foreldra og annarra aðila utan skóla.
Helstu verkefni skólaritara eru:
- sinnir daglegri afgreiðslu og annast símsvörun á skrifstofu skólans.
- afgreiðir ýmis erindi nemenda eða vísar nemendum til þeirra aðila sem nauðsyn ber til hverju sinni.
- annast móttöku þeirra sem erindi eiga við starfsfólk skólans.
- annast undirbúnings- og frágangsvinnu við upphaf og lok skólaárs.
- pantar ýmis efni og áhöld s.s. pappír, ritföng og aðrar rekstrarvörur fyrir skrifstofu og kennarastofu.
- er tengiliður við Námsgagnastofnun og hefur ásamt aðstoðarskólastjóra umsjón með pöntun bóka og bókalager.
- afgreiðir gögn til kennara og annarra starfsmanna skólans.
- annast sölu mjólkurmiða og tekur við greiðslum fyrir ýmsa þætti skólastarfsins.
- getur annast peningauppgjör vegna hinna ýmsu þátta skólastarfsins.
- annast bréfaskriftir, skýrslugerð, ljósritun og annað sem til fellur fyrir skólastjóra og aðstoðarskólastjóra.
- annast skjalavörslu.
- sér um skráningu á nemendaspjöldum og innritun nemenda.
- sér um upplýsingamöppur eins og bekkjalista, stundaskrár og annað sem starfsfólk þarf að hafa aðgang að og er uppfært reglulega.
- skráir forföll nemenda.
- aðstoðar kennara með uppsetningu prófa, ljósritun og þess háttar.
- mannar þau forföll sem upp koma eins og kostur er í samráði við skólastjóra og aðstoðarskólastjóra.
- sinnir öðrum þeim störfum sem skólastjóri kann að fela viðkomandi.