Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi

Starfsmannastefna

Meginmarkmið starfsmannastefnu Grunnskólans í Stykkishólmi eru að auka gæði skólastarfsins jafnframt því að auka starfsánægju, almenna vellíðan og árangur starfsfólks.
Áhersla er lögð á að ráða að skólanum hæft, áhugasamt og traust starfsfólk. Til þess að svo megi verða þarf að vanda til starfsmannaráðninga og gæta þess að ávallt sé staðið við réttindi og skyldur starfsfólks.
Tryggja þarf að vinnuaðstaða og hollustuhættir séu í góðu horfi og að starfsfólk eigi kost á símenntun og fræðslu sem eykur þekkingu þess og eflir það í starfi.
Gagnkvæmt traust og gott samstarf þarf að ríkja meðal starfsfólksins og fylgst sé með líðan starfsfólks og gripið til viðeigandi ráðstafana ef þurfa þykir. Stjórnendur (og ýmsir ráðgjafar skólans) gegna lykilhlutverki í því að stuðla að jákvæðum starfsanda og efla liðsheildina og þurfa ávallt að vera aðgengilegir fyrir starfsfólkið.
Lögð er áhersla á að stjórnendur hvetji starfsfólk sitt og stuðli að heilbrigðum metnaði, ástundun og virðingu og aga í framkomu og vinnubrögðum.
Starfsfólk skólans hefur að baki margvíslega reynslu og þekkingu sem skólinn vill nýta sér. Með því að líta til sterkra hliða hvers starfsmanns geta stjórnendur leyft hverjum og einum starfsmanni að njóta sín betur í starfi og um leið nýtt hæfileika hans í þágu skólans.

Grunnskólinn í Stykkishólmi - Borgarbraut 6 - 340 Stykkishólmi - Sími 4338177 - Fax 4381045 - grunnskoli@stykk.is