Stuðningur - Hvert á að leita?

 

Sérfræðiþjónusta

Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga annast sérfræðiþjónustu við Grunnskólann í Stykkishólmi. Forstöðumaður er Sveinn Þór Elínbergsson .

Félags- og skólaþjónustan er til húsa að Klettsbúð 4 á Hellissandi. Sími : 430 7800, Fax : 430 7801

 

Starfsfólk:

Sálfræðingur er Inga Stefánsdóttir og kemur hún að jafnaði tvisvar í mánuði.

  • Kennarar geta óskað eftir tíma fyrir sig og foreldrar fyrir börn sín.
    Greining, viðtöl, ráðgjöf.

Talmeinafræðingur er Ásta Sigurbjörnsdóttir (kemur eftir þörfum)

Námsráðgjafi, (sér)kennsluráðgjafi er Hulda Skúladóttir. Hún kemur vikulega í skólann (miðvikudagar) Verkefni hennar eru m.a. námsráðgjöf, kennsluráðgjöf, og greining námserfiðleika.

 

Félags– og skólaþjónustan er með vef þar sem hægt er að nálgast frekari upplýsingar um starfsemina. Slóðin á vefinn er: http://www.fssf.is/

 

Deildarstjóri sérkennslu í Grunnskólanum í Stykkishólmi, og tengiliður við Félags- og skólaþjónustuna, er Elín Bergmann Kristinsdóttir.

 

Hafið samband við umsjónarkennara eða Elínu ef óskað er eftir tímum hjá ofangreindum.

Ef grunur leikur á einelti á tafarlaust að hafa samband við umsjónarkennara. 

 

Heilsugæsla

  • Heilsugæsla í Grunnskólanum felst í reglubundnu eftirliti með líkamlegu ástandi nemenda sem og sálfélagslegum þroska þeirra.
  • Skólahjúkrunarfræðingur hefur fasta viðverutíma í skólanum á þriðjudögum og fimmtudögum. Þá hittir hann einstaka nemendahópa, kemur inn í bekkjarkennslu og er til viðtals fyrir nemendur, foreldra og kennara um ýmis mál sem snúa að almennri líðan nemenda í skólanum.
  • Á þriðjudögum er fastur viðtalstími frá kl: 9–12 fyrir nemendur, foreldra og kennara.
     
Grunnskólinn í Stykkishólmi - Borgarbraut 6 - 340 Stykkishólmi - Sími 4338177 - Fax 4381045 - grunnskoli@stykk.is