Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
7. maí 2012

Nú er hún Sara Diljá farin í veikindaleyfi og í framhaldi af því í fæðingarorlof. Í hennar stað réðum við Þórkötlu Valþórsdóttur fram að sumarfríi. Við bjóðum Þórkötlu velkomna og óskum Söru Diljá alls góðs í leyfinu. 

4. maí 2012

Á dögunum komu þær Sesselja og María frá Rauðakrossinum og færðu okkur tré bíla að gjöf. Við færum Rauða krossinum bestu þakkir fyrir bílana sem hafa verið mikið notaðir inn á Vík.
 

26. apríl 2012

Opið hús verður í leikskólanum í Stykkishólmi á morgun, föstudaginn 27. apríl frá kl 14:00-16:00. Þar sýna börnin vinnu vetrarins og boðið verður upp á veitingar. Allir velkomnir, sérstaklegar væntanlegir nemendur og fjölskyldur þeirra.

 

Starfsfólk leikskólans.

20. apríl 2012

Elín Ragna Þórðardóttir íþróttakennari mun hefja hér störf n.k. mánudag, 30. apríl. Hún mun vera hér í afleysingum fram að sumarfríi og þá aðallega inn á Nesi.

17. apríl 2012

 

Miðvikudaginn fyrir páska vorum við svo heppin að fá litla sæta hænuunga í heimsókn. Þeir vöktu mikla athygli hjá börnunum og viljum við þakka Krístínu og Jóhönnu fyrir að koma með þá til okkar.

Annað efni

 

 

 

Leikskólinn í Stykkishólmi - Búðanesvegi 2 - 340 Stykkishólmi - Sími 433-8128 - leikskoli@stykkisholmur.is