Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
Leiðin þín: Stykkisholmur.is - Leikskólinn - Ás - Val

 

                Valið á Ási    

Valið er umgjörð um frjálsan leik barnanna.  Þar geta börnin valið um ýmis svæði og viðfangsefni og æfast í því að standa við sitt val og að bíða, því ekki er alltaf laust pláss í því sem þau vilja.

Valsvæðin fyrir hádegi eru 4-6 talsins hverju sinni, allt eftir því hversu mörg börn og starfsmenn er um að ræða í það skiptið. Það er innandeildar val og sett upp í ákveðnu valkerfi á Ási og Nesi og stendur fram að hópastarfinu (söngstund á föstudögum). 

Eftir hádegi blandast svo Ás og Nes saman í vali og er þá gjarnan valið um útiverkefni líka. Er þá amk. einn starfsmaður með hvern valhóp í ákveðnu verkefni.

 

Hér er verið að velja fyrir hádegi á Ási. Svæðin eru merkt með spjaldi með lýsandi mynd og texta. Fjöldi á svæði er merktur með NUMICON táknum og börnin setja mynd af sér á það svæði sem þau langar að vinna á í það skiptið. Þau athuga sjálf hvort að ennþá sé pláss á svæðinu, ef ekki þá þarf að velja eitthvað annað.

Hér er verið að velja eftir hádegi. Börnin hafa spjöld með nafninu sínu og setja í vasa merktu verkefninu sem þau velja sér. þarna eru fjöldatakmarkanir á svæðum, svo stundum þarf að velja það næst besta :)

Annað efni

 

 

 

Leikskólinn í Stykkishólmi - Búðanesvegi 2 - 340 Stykkishólmi - Sími 433-8128 - leikskoli@stykkisholmur.is