Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
30. janúar 2012 02:32

Öskudagurinn nálgast

Öskudagurinn nálgast og í leikskólanum er vinna hafin við grímubúningagerðina. Við gerðum tilraun á síðasta ári með það að gera alla búninga sjálf og heppnaðist það svo vel að leikurinn er endurtekinn í ár. Hugmyndavinnan er í gangi og er fróðlegt að sjá hvernig hugmyndir þróast. Hér má sjá drengi sem eru allir ákveðnir í því að vera dreki, eldspúandi með vængi, brodda og hala. Og þá er bara að finna leiðir til að það geti orðið að veruleika. Í morgun voru þeir að þæfa halann úr íslenskri ull. 

 

meira...
30. janúar 2012 02:22

Snjór-Snjór-Snjór

Það hefur ekki farið fram hjá neinum að töluvert af snjó hefur verið í bænum undanfarið. Reyndar svo mikið að þau 5 ár sem við höfum verið á Búðanesveginum hafa skaflar ekki sést eins háir og nú. Þessu hafa börnin tekið með mikilli gleði og ýmislegt brallað.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Snjór flæddi yfir girðingar og þá var auðvitað ekkert annað í stöðunni en demba sér í skaflinn fyrir utan og grafa með öllum þeim verkfærum sem við hendina voru.

 

Svo er líka gaman að taka smá sýnishorn inn í hús og hér er verið að gera tilraun með snjó og matarlit.

 

meira...
30. janúar 2012 02:10

Skógarferð leikskólans

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Daginn fyrir þrettándann fóru þrír elstu árgangar leikskólans í skógarferð. Lagt var af stað upp úr kl. 10 þegar ennþá var myrkur og gengið sem leið lá upp í Nýrækt í útikennslustofuna. Þar beið okkar bál og luktir sem grunnskólakrakkarnir höfðu skilið eftir fyrir okkur, en þau voru búin að vera á ferðinni þar fyrr um morguninn. Okkur þótti ægilega gott hvað stóru krakkarnir voru búnir að troða snjóinn í göngustígunum þar sem sum okkar eru með ansi stuttar fætur ennþá. Í skóginum er alltaf gaman að leika sér, við sungum líka nokkur lög og borðuðum nesti, sem er ómissandi þáttur í slíkum ferðum. Við höfðum með okkur kakó og kleinur og svo fengum við líka lummur sem Magda heimilisfræðikennari í GSS hafði skilið eftir fyrir okkur þar. Takk Magda :) Veður var eins og best verður á kosið á þessum árstíma og allir komu glaðir og endurnærðir heim aftur. Það er svo gaman að upplifa veturinn í skóginum.

meira...
23. janúar 2012 11:42

Þorrablót í Leikskólanum

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þorrablót var haldið í Leikskólanum á bóndadaginn, líkt og undanfarin ár. Dagskráin hófst með samsöng, þar sem sungin voru þorralög og fleiri vetrarlög. Síðan fræddust börnin um ,,gamla daga“ með hjálp myndasýningar. Þar var m.a. fjallað um matarvenjur og áhöld, leikföng, fatnað og húsakost. Eftir það var skellt á balli í stutta stund og endað á því að horfa á stutta leikna mynd eftir þjóðsögunni um Gilitrutt, eina frægustu tröllkonu landsins. Þorrablótið endaði svo á hádegisverði þar sem boðið var upp á þorramat, en líka grjónagraut svo allir færu nú örugglega saddir frá borði.

 

meira...
4. janúar 2012 10:56

Skógarferðin

Vegna veðurútlits munum við flýta skógarferðinni okkar á þrettándanum og stefnum á að leggja af stað upp í Nýrækt kl. 10 á morgun, fimmtudag.  

meira...
23. desember 2011 11:19

Rauður dagur í leikskólanum

Rauður dagur í leikskólanum og börnin á Nesi voru flest rauklædd í tilefni dagsins 

meira...
21. desember 2011 02:13

Jólakveðja frá Leikskólanum í Stykkishólmi

 

meira...
16. desember 2011 11:37

Aðventan í leikskólanum.

Á aðventunni höldum við í margar gamlar hefðir og aðrar nýrri sem hafa orðið til undanfarin ár.

Litlu jólin og helgileikurinn eru líklegast elsta hefðin, hefur fylgt leikskólanum svo lengi sem elstu menn hér muna. Í ár var það árgangur 2006 sem sá um helgileikinn en hópurinn er óvenju lítill þetta árið eða einungis 7 börn. Þau stóðu sig með miklum sóma, sungu eins og englar og alltaf eru börnin jafn ánægð með gömlu búningana okkar.

Jólaföndur foreldrafélagsins á sinn stað í upphafi aðventu og í þetta sinn voru bakaðar piparkökur nokkrum dögum áður og þær svo skreyttar með foreldrum á föndurdaginn.

Í nokkuð mörg ár höfum við útbúið allt skraut á jólatréið okkar. Sameiginleg jólaskrautssmiðja allra deilda er sett upp snemma í desember og þar vinna börnin á nokkrum svæðum margvíslegt skraut á tréið s.s. úr pappír, ullarkembu, málningu, könglum og ýmsu verðlausu efni.

Skólarnir í Stykkishólmi þ.e. leikskólinn, grunnskólinn og tónlistarskólinn standa að sameiginlegri aðventustund í Stykkishólmskirkju í desember. Þriðji bekkur grunnskólans sér jafnan um helgileikinn og er gaman að sjá hvað leikurinn hefur þróast á þeim þremur árum sem liðin eru frá því þessi sami hópur sýndi okkur helgileik í leikskólanum. Í ár fengum við að heyra organistann spila á nýja orgelið í kirkjunni og krakkar úr tónlistarskólanum spiluðu líka fyrir okkur jólalög.

Nemendur og kennarar tónlistarskólans eru duglegir við að halda tónleika fyrir okkur. Litla lúðrasveitin kom í nóvember og nú á aðventunni fengum við í heimsókn gítarleikara, þverflautu og blokkflautu leikara.

Börnin eru búin að útbúa jólagjafir sem þau ætla að gefa foreldrum sínum og hafa farið drjúgar stundir í það að útbúa gjöfina, skreyta umbúðir og kort. Mikið leyndó og stundum erfitt að segja ekki frá því hvað er í pakkanum.

Afmælishátíð desemberbarnanna var í dag og sameiginlegur jólamorgunmatur í salnum á uppdúkuðu skreyttu langborði. Á þriðjudaginn ætlum við svo að hafa ,,rauðan dag“ en þá mæta allir eins rauðir og þeir geta.

Við viljum benda á myndasíður deildanna þar sem finna má myndir frá flestum atburðum.

 

 

meira...
15. desember 2011 01:05
14. desember 2011 11:38
1. desember 2011 10:37
25. nóvember 2011 10:31
24. nóvember 2011 01:46
24. nóvember 2011 11:28
21. nóvember 2011 01:59
15. nóvember 2011 01:32
8. nóvember 2011 08:26
7. nóvember 2011 10:27
7. nóvember 2011 09:03
1. nóvember 2011 10:04
28. október 2011 04:03
7. október 2011 03:28
4. október 2011 08:27
4. október 2011 08:17
3. október 2011 02:32
28. september 2011 11:41
26. september 2011 03:30
26. september 2011 11:32
26. september 2011 10:10
15. september 2011 01:53
15. september 2011 01:24
6. september 2011 02:05
21. ágúst 2011 04:02
19. ágúst 2011 02:33
8. ágúst 2011 03:45
1. júlí 2011 03:28
22. júní 2011 03:07
22. júní 2011 02:54
7. júní 2011 02:35
31. maí 2011 10:46
31. maí 2011 10:35
26. maí 2011 01:58
20. maí 2011 02:59
19. maí 2011 09:55
16. maí 2011 11:23
28. apríl 2011 09:39
19. apríl 2011 10:07
8. apríl 2011 11:54
4. apríl 2011 10:52
15. mars 2011 02:24
11. mars 2011 10:53
9. mars 2011 04:40
8. mars 2011 02:25
8. mars 2011 02:24
Annað efni

 

 

 

Leikskólinn í Stykkishólmi - Búðanesvegi 2 - 340 Stykkishólmi - Sími 433-8128 - leikskoli@stykkisholmur.is