Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
3. september 2010 14:42

Bréf til foreldra

Kæru foreldra/forráðamenn.

Nú er vetrarstarfið að byrja af fullum krafti. Börnin eru heldur færri í vetur en undanfarin ár, því verða ekki miklar breytingar á starfsmannahópnum. Vinnutími breytist lítillega og fólk færist aðeins á milli deilda.

Nanna fylgir 1. bekk í grunnskólann í nokkrar vikur og er þar f.h.

Sissa kemur í afleysingar inn á deildir og er einnig í eldhúsinu frá 10 – 12 alla daga.

Bryndís færir sig af Vík og verður  í eldri álmunni, aðallega á Nesi.

Nú er fyrirhuguð danskennsla sem byrjar föstudaginn 10. september.

Starfsdagur verður föstudaginn 8. október og er þá leikskólinn lokaður.

Aðalfundur foreldrafélagsins verður haldinn miðvikudaginn 15. september kl 18:00 hér í leikskólanum. Það þarf að kjósa nýja fulltrúa í stjórn foreldrafélagsins og svo verður spjallað um verkefni vetrarins.

Þann 1. október byrjar Jóhanna Ómarsdóttir að vinna hjá okkur í 4 tíma á dag. Hún er með sérstakan vinnusamning vegna skertrar starfsgetu og verður til aðstoðar á deildum á álagstímum í leikskólanum. Hennar vinnutími verður frá 10 – 14.

Að lokum þökkum við ykkur fyrir ánægjulegt samstarf nú sem áður.

f.h. starfsfólks leikskólans í Stykkishólmi, Sigrún Þórsteinsdóttir

 

 

Annað efni

 

 

 

Leikskólinn í Stykkishólmi - Búðanesvegi 2 - 340 Stykkishólmi - Sími 433-8128 - leikskoli@stykkisholmur.is