Síðast uppfærð í desember 2011.
Heimilisfang:
Leikskólinn í Stykkishólmi
Búðanesvegi 2
340 Stykkishólmi
Símar: 433-8130 (Vík) Eldhús 4338134
433-8129 (Ás) Skólastj. 4338128
433-8131 (Nes)
Netfang leikskólans er leikskoli@stykkisholmur.is
Slóð heimasíðu er: http://www.stykkisholmur.is/leikskolinn
Starfsfólk leikskólans:
Leikskólastjóri: Sigrún Þórsteinsdóttir
Auður Vésteinsdóttir leiðbeinandi í afleysingu
Birta Antonsdóttir leiðbeinandi Ási
Elín Dóra Sveinbjörnsdóttir ræsting
Elín Guðrún Pálsdóttir deildarstjóri Vík
Elín Helga Guðmundsdóttir matráðskona
Elísabet Lára Björgvinsdóttir aðst.leikskólastj/deildarstj. Ási
Ingibjörg Ólafsdóttir leiðbeinandi Ási
Joanna Szerszen ræsting
Jóhanna Ómarsdóttir aðstoðar á öllum deildum
Jónína Arnfríður Víglundsdóttir leiðbeinandi Vík
Kristín Ósk Sigurðardóttir leiðbeinandi Ási
Magðalena Hinriksdóttir deildarstjóri Nesi
María Jónasdóttir leiðbeinandi Nesi
Nanna Einarsdóttir leiðbeinandi/stuðningsfulltrúi Ási
Ólöf Edda Steinarsdóttir leiðbeinandi Vík
Rósa Krístín Indriðadóttir leiðbeinandi Vík
Sara Diljá Hjálmarsdóttir leiðbeinandi Nesi
Sigrún Anna Jónsdóttir leikskólakennari Nesi
Sigurdís Gísladóttir aðstoð í eldhúsi / leiðbeinandi Nesi/Vík
Sólbjört S. Gestsdóttir leikskólakennari Vík
Rekstur
Leikskólinn er fyrir börn frá tólf mánaða aldri til grunnskólaaldurs. Rekstaraðili leikskólans er Stykkishólmsbær. Starfið fer fram á þremur aldursskiptum deildum. Yngsta deildin, Vík, er fyrir 12. mánaða til 3 ára, Nes er fyrir 3 – 4 ára og elsta deildin, Ás, fyrir 4 – 6 ára börn. Aldursskiptingin fer að nokkru leiti eftir stærð árganga.
Leikskólinn starfar undir faglegri yfirstjórn Menntamálaráðuneytis og starfar samkvæmt lögum um leikskóla nr. 90/2008. Menntamálaráðuneytið gefur út Aðalnámskrá leikskóla. Í henni eru markmið og leiðir sem leikskólar starfa eftir, en útfæra eftir eigin stefnu og áherslum. Í lögum um leikskóla segir m.a. “Leikskólinn skal í samráði við foreldra eða aðra forráðamenn veita börnum á leikskólaaldri uppeldi og menntun.”
Nánast enginn biðlisti er í leikskólann, en vegna skipulagningar á uppeldisstarfinu eru foreldrar beðnir um að huga að umsóknum í tíma. Einnig getur þurft að jafna fjölda barna á milli deilda, vegna mis stórra árganga, svo deildirnar eru ekki alltaf hreint aldursskiptar.
Aðaláherslur
Meginmarkmið með leikskóla skal vera “að búa börnum örugg leikskilyrði og hollt uppeldisumhverfi.” Leikskólinn er réttur barna, en val foreldra. Í leikskólanum fer starfið fram á forsendum barnanna og áhersla er lögð á að efla sjálfstraust þeirra og sjálfsmynd. Einnig er lögð mikil áhersla á skapandi starf og að börnin þroski með sér sína eigin sköpunarhæfni og sköpunarkraft.
Leikskólinn er fyrsta skólastig barnsins og þar fer kennslan fram í gegnum leikinn. Í leikskólanum er lítið um beina kennslu, heldur eru börnin að æfa sig undir lífið, í gegnum leik. Þau þurfa að taka tillit til annarra, bæði barna og fullorðinna, þau þurfa að læra að deila með öðrum og skiptast á. Það getur verið mjög erfitt fyrir lítið barn sem sér heiminn út frá sjálfu sér. Börnin læra að vinna í hóp og koma sér saman um lausnir. Þau læra að vinna að sama verkefni í langan tíma, þurfa að skipuleggja tímann og hugsa fram á við. Þau læra að velja sér viðfangsefni og þurfa að standa við sitt val. Þau fá holla hreyfingu á hverjum degi og í valinu eru einnig í boði gönguferðir.
Leikskólauppeldi kemur aldrei í staðin fyrir foreldra uppeldi, heldur er holl og góð viðbót.
Opnunartími og vistgjald
Leikskólinn er opinn frá kl. 7:45 – 17:00 alla virka daga. Kl. 7:45 er tekið á móti börnum á Vík og Nesi. Lokað er á aðfangadag og gamlársdag.
Í boði er sveigjanlegur vistunartími, 4 – 9 1/4 tímar á dag. Vistunartími hvers barns er sá sami alla daga vikunnar. Eftirtaldir vistunartímar eru í boði, en unnt er að athuga með aðra möguleika ef brýn nauðsyn krefur.
Frá klukkan: Til klukkan:
7:45 12:00
8:00 12:15
9:00 13:00
9:45 14:00
10:00 14:15
15:00
16:00
16:15
17:00
Mikilvægt er að sá vistunartími sem samið er um sé virtur. Starfsfólk skráir komu- og brottfarartíma barnanna.
Uppsagnarfrestur er einn mánuður og miðast við mánaðamót eða miðjan mánuð. Systkinaafsláttur er 25% af vistgjaldiannars barns, 50% af vistgjaldi þriðja barns og 30% afsláttur er til einstæðra foreldra. Ef breyta á vistunartíma barnsins, verður sú breyting að gilda í minnst þrjá mánuði og vera gerð með mánaðar fyrirvara. Allar breytingar eru skriflegar og gerðar hjá leikskólastjóra. Ef farið er ítrekað fram yfir vistunartíma er innheimt sérstaklega fyrir það.
Starfið
Leikskólinn í Stykkishólmi leggur aðaláherslu á skapandi starf í sinni víðustu mynd. Starfið tekur m.a. mið af hugmyndafræði Piaget, fjölgreindarkenningu Howard Gardners og kenningu John Deweys ,,learning by doing” þ.e. lært með því að framkvæma. Litið er á börnin sem virka, hugmyndaríka og skapandi einstaklinga sem hvert um sig hefur úr sínum hæfileikum að spila.
Dagskipulagið er örlítið breytilegt eftir deildum, en heildar ramminn er sá sami. Börnin fá í byrjun hvers skólaárs nýtt dagskipulag með sér heim svo hægt sé að fylgjast sem best með starfinu. Einnig má sjá skipulagið fyrir framan hverja deild og á heimasíðunni.Helstu stundir í dagskipulagi eru ýmsir hópatímar og val. Auk þess vinna elstu börnin í sérstökum skólastundum, í nánu samstarfi við Grunnskólann. Samverustundir með lestri og söng koma einnig fyrir nokkrum sinnum yfir daginn á hverri deild.
Í hópastarfi vinna börnin í ákveðnum hópum að ákveðnum verkefnum sem ná yfir langan tíma. Undanfarið hefur verið unnið með þemað ,,Náttúran og við”, í stórum verkefnum sem taka jafnvel yfir heilan vetur. Inn í þetta fléttast ýmsir þroskaþættir og börnin þjálfa bæði huga og hönd. Yfirleitt er svo endað með sýningu eða opnu húsi um vorið.
Kennsluaðferðin sem unnið er eftir í hópastarfi, sérstaklega á elstu deildinni, er svokölluð könnunaraðferð (Project approach). Hún byggir á þrepaskiptingu, upphafi, miðbiki og þemalokum. Með aðferðinni er leitast við að samþætta öll námssvið leikskólastarfsins, tónlist, hreyfingu, menningu og samfélag, náttúru og umhverfi, myndsköpun og málrækt, svo úr verði heilsteypt vinna. Aðferðin gerir ráð fyrir virku námi barnanna, þ.e. námi þar sem lært er af reynslunni, með því að framkvæma. Börnin eru hvött til frumkvæðis í vinnu sinni og að nota eigin virkni til þess að byggja upp og bæta við þekkingu sína, undir leiðsögn og hvatningu þeirra fullorðnu. Gert er ráð fyrir því að nám sé mun líklegra til árangurs ef áhugi barnanna ræður ferðinni. Áhugahvötin spilar því stórt hlutverk. Það að börnin hafi ákveðið val um viðfangsefni, innan þess sviðs sem unnið er á, er talið eitt af lykilatriðum að því að vekja áhuga barnsins fyrir náminu. Vinnan er ferli sem felst í því að spyrja og rannsaka.
Á yngstu deildinni hefst þróun á átt að könnunaraðferðinni með ,,könnunarleiknum” sem nefnist á ensku “Heuristic Play with Objects”. “Heuristic” er að uppruna gríska orðið “eurisko” sem þýðir að uppgötva eða öðlast skilning á. Þessi merking lýsir nákvæmlega því sem börnin eru að gera í þessum leik. Hlutirnir sem börnin fá í könnunarleik eru alls konar hversdagslegir hlutir og ílát s.s. stórar dósir, kökubox, öskjur úr pappa eða tré, þvottaklemmur úr tré (gamaldags, ekki með gormi), ullardúskar, rör og pappahólkar, könglar, skeljar og margt, margt fleira. Það er ekki nýtt að börn leiki sér með það sem við köllum verðlaust efni en hér er á ferðinni sérstök útfærsla á því að nálgast efniviðinn með ákveðinn tilgang í huga.
Val er á hverjum morgni, innan deilda, á Ási og Nesi og tvisvar til þrisvar í viku e.h. þar sem deildirnar blandast. Valið er umgjörð um frjálsan leik barnanna. Þar geta börnin valið um ýmis svæði og viðfangsefni og æfast í því að standa við sitt val og að bíða, því ekki er alltaf laust pláss í því sem þau vilja. Í val fara fjórir elstu árgangarnir.
Málörvunartímareru fastur liður í Ási og Nesi. Í þeim er unnið í litlum hópum með ýmis verkefni eftir aldri og getu barnanna. Þessir tímar eru í dagskipulaginu innan hópastarfsins.
Sameiginlegar söngstundirallra deilda eru tvisvar í viku, fyrir og eftir hádegi.
Leikskólinn hefur komið sér upp endurvinnslustefnu og hefur nú fengið Grænfánann í annað sinn, sem er alþjóðleg viðurkenning veitt til skóla. Leikskólinn hefur einnig forvarnarstefnu sem er hluti af forvarnarstefnu Stykkishólmsbæjar.
Grænfáninn
Þann 30 maí 2007, var leikskólanum fyrst afhentur grænfáninn af aðilum frá Landvernd og svo í annað sinn 4. nóvember 2010.
Umhverfismarkmið leikskólans í Stykkishólmi 2010 – 2011 eru að:
1. kynnast umhverfi skólans á sem fjölbreyttastan hátt
2. nýta pappír sem best
3. flokka allt sorp
4. rækta grænmeti og fleira, t.d. kartöflur og krydd
5. fara sparlega með vatn og rafmagn
Leikskólinn gerði sér einnig umhverfissáttmála sem við keppumst við að halda í heiðri.
Umhverfissáttmálinn
Leikskólinn í Stykkishólmi ætlar að leggja sitt af mörkum til jarðarinnar. Það gerum við með því að tileinka okkur umhverfisvæna starfshætti og kenna börnunum að ganga vel um gróður í kringum okkur, gróðursetja og rækta í garðinum við leikskólann. Að endurnýta pappír, jarðgera matarleifar og nota umhverfismerkt hreinlætisefni.
Þannig læra börnin smátt og smátt að ganga vel um og nýta betur það sem við höfum og að ganga ekki á höfuðstól náttúrunnar.
Upplýsingatafla
Auglýsingar og skilaboð til foreldra eru hengd á töflu í forstofum. Skilaboð frá foreldrafélaginu eru einnig hengd á þessa staði. Gott er að skoða það reglulega til þess að fylgjast með því sem er að gerast. Einnig má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar og skilaboð fyrir framan deildirnar, matseðla, hópaskiptingar og fl. sem viðkemur hverri deild.
Fréttabréf
Stefna er að gefa út fréttabréf og ýmis skilaboð einungis á rafrænu formi. Á heimasíðunni okkar, www.stykkisholmur.is/leikskolinnmá sjá nýjustu upplýsingar, fréttir, myndir o.fl.
Aðlögun
Mikilvægt er að aðlögun gangi vel og að góð samvinna verði á milli foreldra og leikskóla. Það er forsenda þess að barninu líði vel í leikskólanum og það verði öruggt og geti þannig notið dvalarinnar í leikskólanum. Aðlögun er einstaklingsbundin, miðað er við að aðlögun taki 5 daga. Aðlögun getur tekið styttri tíma og einnig lengri tíma. Í upphafi aðlögunar fá foreldrar aðlögunarskipulag frá starfsfólki sem er svo sniðið að þörfum barnanna. Gott er að nota aðlögunina til að kynnast starfsfólkinu og starfsemi leikskólans. Börnin koma með ljósmynd af sér að heiman til að merkja fatahólfið sitt með.
Fjarvistir og veikindi
Nauðsynlegt er að foreldrar láti vita um fjarvistir barnanna, hvort sem er vegna veikinda eða annars. Það er til þess að auðvelda okkur skipulagningu á starfinu, hafa aukna yfirsýn yfir fjölda barna og auka þar með öryggi þeirra. Í leikskólanum er boðið upp á að hafa börnin inni í tvo daga eftir veikindi. Ef barnið veikist meðan það er í leikskólanum er hringt í foreldra, svo þeir geti sótt barnið.
Leikskólataskan / fatahólfin
Nauðsynlegt er að hafa tösku með aukafötum í leikskólanum. Þó barnið sé löngu hætt með bleiu geta orðið óhöpp, þau hellt ofan á sig, blotnað við útiveru og þ.h. Gott er að vera með inniskó og allan algengan skjólfatnað, s.s. útigalla, pollaföt, leista, vettlinga, húfur og skófatnað eftir veðri. Yfirfarið því töskuna reglulega.
Til að koma í veg fyrir fatarugling er nauðsynlegt að merkja föt barnanna vel, skrifa á þau með fatatússi eða sauma í þar til gerða borða, með nafni barnsins.
Foreldrar eru beðnir um að aðstoða við að laga til í fatahólfi barna sinna í lok dagsins. Á föstudögum þarf að tæma öll fatahólf. Það er nauðsynlegt til þess að hægt sé að þrífa hólfin vel og einnig gott tækifæri fyrir foreldra til þess að yfirfara leikskólatöskuna.
Matmálstímar
Í morgunmat er boðið upp á súrmjólk, hafragraut og ýmiskonar morgunkorn til skiptis, lýsi og ávexti á eftir. Morgunmatur er kl. 8:15 og verða börnin á Vík að vera komin þá ef þau ætla að fá morgunmat. Á Ás og Nes, þurfa þau að vera komin fyrir kl. 8:45 ef þau ætla að borða morgunmatinn í skólanum.
Í hádeginu er boðið upp á heitan mat. Með matnum er grænmeti/salat og vatn. Í eftirmat eru alltaf ávextir. Matseðill er á upplýsingatöflu í fataherbergi og einnig við deildir. Hann má einnig finna á heimasíðunni. Ef börnin eru ekki komin fyrir kl. 11:00 og ekkert verið látið vita, er ekki gert ráð fyrir þeim í hádegismat.
Í síðdegishressingu, kl. 15:00, er ýmist brauð eða ósætt kex og álegg og ávextir á eftir.
Börnin eru hvött til sjálfshjálpar eftir því sem aðstæður leyfa og stefnt er að því að endurvinnslustefna leikskólans endurspeglist í matmálstímum, með því að flokka afgangana og setja í viðeigandi tunnu.
Lyf
Lyf eru ekki gefin í leikskólanum nema til komi vottorð frá lækni um að lyfjagjöf sé nauðsynleg þann tíma sem barnið dvelur í leikskólanum.
Foreldraviðtöl /foreldrafundir
Boðið er upp á foreldraviðtöl einu sinni á vetri, venjulega í mars. Að öðru leyti er starfsfólkið tilbúið til að hitta og ræða við foreldra þegar þeir óska. Í skipulögðum foreldraviðtölum er farið yfir þroskaþætti barnsins og rætt um hvernig barninu gengur og líður. Foreldrafundir eru einu sinni til tvisvar á ári. Þeir eru ætlaðir til kynningar og fræðslu fyrir foreldrana.
Starfsdagar
Leikskólinn á þrjá starfsdaga á ári, ýmist er tekinn hálfur eða heill dagur og leikskólinn þá lokaður. Þeir dagar eru merktir inn á skóladagatalið og auglýstir sérstaklega. Þá er starf leikskólans skipulagt til langs tíma, fengið námskeið eða farið yfir eitthvað efni sem tengist starfsemi leikskólans. Starfsmenn hafa einnig farið í náms- og kynnisferðir erlendis.
Sumarlokun
Leikskólinn er að öllu jöfnu lokaður í 24 virka daga yfir sumartímann, þá fara börn og starfsfólk í sumarfrí. Tíminn er notaður til hreingerningar á húsnæði og einnig til viðgerða og annarra framkvæmda sem ekki er hægt að gera á meðan börnin eru í skólanum.
Ljósmyndir
Mikið er tekið af ljósmyndum í leikskólanum af börnunum við leik og störf, m.a. stafrænar myndir sem settar eru á heimasíðuna. Það kemur fyrir að myndir úr starfinu birtast einnig á heimasíðu Stykkishólmsbæjar eða í Stykkishólmspóstinum. Ef foreldrar vilja alls ekki að myndir af þeirra börnum fari inn á veraldarvefinn, þá vinsamlegast látið leikskólastjóra vita. Annað hvert ár, eða svo, kemur ljósmyndari og tekur hópmyndir.
Samstarfsaðilar
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga hefur séð um sérkennslu- og sálfræðiþjónustu fyrir leikskólann. Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá leikskólastjóra.
Gott samstarf er við grunnskólann, eins og kveðið er á um í lögum um leik- og grunnskóla. Tónlistarskólinn hefur nú bæst í það samstarf og unnið er markvisst að því að efla það enn frekar. Leikskólinn fékk styrk úr þróunarsjóði leikskóla haustið 2003 til þess að vinna að því verkefni. Samstarfið felur m.a. í sér sameiginleg verkefni skólanna, gagnkvæmar heimsóknir nemenda, auk samstarfs kennara og samnýtingar námsgagna. Vorskóli elstu barna leikskólans hefur verið í grunnskólanum undanfarin ár, þar kynnast þau starfinu í grunnskólanum í um viku tíma.
Foreldrafélag
Við leikskólann er starfandi foreldrafélag, sem allir foreldrar eru sjálfkrafa aðilar að. Félagið fundar að jafnaði einu sinni í mánuði og er yfirleitt einn fulltrúi starfsmanna leikskólans á fundunum. Starfsemi félagsins hefur verið með ýmsum hætti, það hefur séð um fjöruferð, jólaföndur, sleðaferð, leiksýningar, íþróttadaga og vorferð. Gjaldið í foreldrafélagið er núna kr. 240,- á mánuði. Aðalfundur er haldin að hausti.
Stjórn foreldrafélagsins 2010 – 2011 skipa:
Arna Sædal Andrésdóttir formaður
Birta Antonsdóttir ritari
Fríða Hrund Kristinsdóttir gjaldkeri
Elín Elísabet Hallfreðsdóttir meðstjórnandi
Iben Leth Riishuus meðstjórnandi
Nadine E. Walter meðstjórnandi
Kristín Anna Oddsdóttir varamaður
Sigrún Anna Jónsdóttir, fulltrúi starfsmanna leikskólans.
Afmæli
Haldið er upp á afmæli síðasta föstudag í mánuði og þá er haldið upp á afmæli allra þeirra barna sem hafa átt afmæli í þeim mánuði, leikskólinn sér um veisluföng. Á sjálfan afmælisdaginn er útbúin kóróna, sungið fyrir afmælisbarnið og það heiðrað á ýmsan hátt.
Jól og jólafasta
Undirbúningur jólanna er með hefðbundnu sniði. Það er föndrað, sungið og leikið og leitast við að skapa rólegt og afslappað andrúmsloft. Börnin útbúa jólagjöf fyrir foreldra sína og farin er kirkjuferð, sem er sameiginleg með 1 – 4 bekk grunnskóla. Á jólaföstunni hefur skapast hefð fyrir því að skoða jólin í Norska-húsinu. Jólaball er haldið hér með helgileik sem elstu börnin leika. Búningarnir hafa verið notaðir við leikskólann frá því ,,elstu menn muna” en þeir eru saumaðir af St. Franciskus systrunum.
Aðrar hefðir
Undanfarin ár hefur verið haldið upp á dag íslenskrar tungu, 16. nóvember, með því að fara í heimsókn á bókasafnið eða að kynna fyrir börnunum íslenskar bækur á annan hátt.
Þorrablót eru haldin á öllum deildum á þorranum, yfirleitt á bóndadaginn. Þar er smakkað á algengasta þorramatnum, leikið, sungið og dansað.
Á öskudaginn hefur skapast hefð fyrir grímuballi. Ekki er farið í grímugöngu út í bæ frá leikskólanum.
Opið húser yfirleitt að vori, þar sem afrakstur vetrarstarfsins er sýndur og hefð er orðin fyrir ömmu og afadegi.
Foreldrakaffi er yfirleitt á hverri önn þar sem foreldrum er í upphafi dags boðið að staldra við, fá sér hressingu og spjalla áður en haldið er í amstur dagsins.
Í lok skólastunda í maí er farið í stutta ferð með elstu börnin upp í Nýrækt. Við tökum með okkur nesti og eigum góða stund í skóginum við fjársjóðsleit og fleira skemmtilegt. Formleg útskrift elstu barna úr skólastundum er einnig í lok maí. Þá koma elstu börnin og þeirra nánustu saman og fagna þessum áfanga í lífi barnanna. Börnin sýna eitthvað sem þau hafa unnið að og bjóða upp á hressingu. Þau fá svo afhentar möppur sínar og útskriftarskjal.
Ýmsar upplýsingar og reglur
Engir fastir “dótadagar” eru við leikskólann. Yngri börnin þurfa gjarnan að hafa með sér einhvern lítinn hlut sér til halds og trausts, aðallega fyrstu dagana. Með eldri börnin er æskilegast að þau komi ekki með dót en taki með sér bók til að lesa eða geislaplötu til að hlusta á, ef þau þurfa að taka eitthvað. Að öðru leyti er þetta á ábyrgð foreldranna og þau verða að taka ákvörðun með börnunum sínum. Leikskólinn tekur enga ábyrgð á leikföngum barnanna.
Vinsamlegast gangið vel um umhverfi leikskólans. Skiljið bílana ekki eftir í gangi á meðan þið komið með eða sækið börnin.
Vinsamlegast fylgið börnunum alla leið að deildinni þeirra eða yfirgefið þau ekki fyrr en starfsmaður hefur tekið við þeim.
Starfsmenn leikskólans bjóða ykkur velkomin til samstarfs og vonast til þess að leikskóladvölin verði ykkur ánægjuleg.Við hlökkum til að kynnast ykkur !
Lög Foreldrafélags Leikskólans í Stykkishólmi
1. Félagið heitir Foreldrafélag Leikskólans í Stykkishólmi. Félagsmenn eru foreldrar og forráðamenn barna í leikskólanum og ganga sjálfkrafa í félagið.
2. Markmið félagsins er að tryggja sem best velferð barna í Leikskólanum í Stykkishólmi.
3. Markmiði sínu hyggst félagið m.a. ná með eftirfarandi leiðum:
- Að hvetja alla foreldra til þess að taka þátt í og hafa aukin áhrif á aðbúnað og störf leikskólans í fullu samráði við starfsfólk.
- Að bjóða upp á fræðslufyrirlestra sem nýtast við uppeldi barna.
- Að bjóða upp á afþreyingu og skemmtun til þess að lífga upp á tilveruna og byggja upp góðan félagsanda innan félagsins.
1. Stjórn félagsins skal kosin á aðalfundi og skal skipuð 5 manns. Starfsfólk leikskólans á sér einn áheyrnarfulltrúa. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum og kýs formann, ritara og gjaldkera. Æskilegt er að ný stjórn skuli vera skipuð að minnsta kosti 2 fulltrúum úr fráfarandi stjórn.
2. Aðalfundur skal haldinn árlega og vera til hans boðað með viku fyrirvara.
3. Tillögur til lagabreytinga verða að hafa borist stjórn skriflega í síðasta lagi 5 dögum fyrir auglýstan aðalfund.
4. Lagabreytingar ná því aðeins fram að ganga að 2/3 hlutar fundarmanna greiði þeim atkvæði.