|
Málreynsla barna fyrir lestarnám skiptir miklu máli. Sagt hefur verið: ,,Svo læra börnin málið að það er fyrir þeim haft”. Mörg börn fá málörvun strax á fyrstu ævidögum þegar þau eru hvött til að taka þátt í samræðum með hjali sínu. Það að byrja snemma að fara með vísur og þulur, syngja og segja börnunum sögur er talið skipta miklu máli. Vert er hafa í huga að fyrsta lestarkennsla á sér stað þegar litla barnið er tekið í fangið, opnuð bók og rætt um myndirnar.
Í vetur munum við flétta málörvunina inn í hópastarfið þar sem unnið er eftir aldri og getu barnanna. Auk þess eru skilgreindir sérkennslutímar þegar þörf er á fyrir þau börn sem hafa notið leiðsagnar Ástu Sigurbjörnsdóttur talmeinafræðings hjá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga og fyrir tvítyngd börn. Í málörvunartímum er unnið með ýmis verkefni af fjölbreyttum toga m.a.:
- Litina.
- Talningu.
- Andstæður.
- Eintölu og fleirtölu.
- Hugtök.
- Stuttar frásagnir og spurningar út frá þeim. Einnig út frá myndum.
- Ýmsar munn- og tunguæfingar sem ætlaðar eru til þess að styrkja munnsvæðið, fyrir þau börn sem þurfa á því að halda.
- Æfingar og leikir til að styrkja hljóðkerfisvitund barnanna.
- Almenna vitneskju/umræður um t.d. veðrið, dagana, mánuðina, afmælisdaga, hátíðisdaga, fingurna, nöfnin okkar og okkar nánustu og fleira sem tengist nánasta umhverfi barnanna.
- Rím og atkvæði orða og hlustum þá eftir þeim hljóðum sem við heyrum í orðunum.
- Heilar setningar. Við hvetjum börnin til þess að tala (spyrja/svara) í heilum setningum.
- Rétta lestarátt. Börn fæðast ekki með þá vitneskju í hvaða átt skuli lesið eða skrifað. Því er gott að láta fingurinn stundum fylgja línunni þegar verið er að lesa fyrir börnin.
Við notumst við bókina ,,Markvissa málörvun” eftir Helgu Friðfinnsdóttur, Sigrúnu Löve og Þorbjörgu Þóroddsdóttur og einnig ýmis spil, myndir, spjöld og texta sem við höfum komið okkur upp. |