30. janúar 2012
Öskudagurinn nálgast og í leikskólanum er vinna hafin við grímubúningagerðina. Við gerðum tilraun á síðasta ári með það að gera alla búninga sjálf og heppnaðist það svo vel að leikurinn er endurtekinn í ár. Hugmyndavinnan er í gangi og er fróðlegt að sjá hvernig hugmyndir þróast. Hér má sjá drengi sem eru allir ákveðnir í því að vera dreki, eldspúandi með vængi, brodda og hala. Og þá er bara að finna leiðir til að það geti orðið að veruleika. Í morgun voru þeir að þæfa halann úr íslenskri ull.

30. janúar 2012
Það hefur ekki farið fram hjá neinum að töluvert af snjó hefur verið í bænum undanfarið. Reyndar svo mikið að þau 5 ár sem við höfum verið á Búðanesveginum hafa skaflar ekki sést eins háir og nú. Þessu hafa börnin tekið með mikilli gleði og ýmislegt brallað.

Snjór flæddi yfir girðingar og þá var auðvitað ekkert annað í stöðunni en demba sér í skaflinn fyrir utan og grafa með öllum þeim verkfærum sem við hendina voru.
Svo er líka gaman að taka smá sýnishorn inn í hús og hér er verið að gera tilraun með snjó og matarlit.

30. janúar 2012

Daginn fyrir þrettándann fóru þrír elstu árgangar leikskólans í skógarferð. Lagt var af stað upp úr kl. 10 þegar ennþá var myrkur og gengið sem leið lá upp í Nýrækt í útikennslustofuna. Þar beið okkar bál og luktir sem grunnskólakrakkarnir höfðu skilið eftir fyrir okkur, en þau voru búin að vera á ferðinni þar fyrr um morguninn. Okkur þótti ægilega gott hvað stóru krakkarnir voru búnir að troða snjóinn í göngustígunum þar sem sum okkar eru með ansi stuttar fætur ennþá. Í skóginum er alltaf gaman að leika sér, við sungum líka nokkur lög og borðuðum nesti, sem er ómissandi þáttur í slíkum ferðum. Við höfðum með okkur kakó og kleinur og svo fengum við líka lummur sem Magda heimilisfræðikennari í GSS hafði skilið eftir fyrir okkur þar. Takk Magda :) Veður var eins og best verður á kosið á þessum árstíma og allir komu glaðir og endurnærðir heim aftur. Það er svo gaman að upplifa veturinn í skóginum.
23. janúar 2012

Þorrablót var haldið í Leikskólanum á bóndadaginn, líkt og undanfarin ár. Dagskráin hófst með samsöng, þar sem sungin voru þorralög og fleiri vetrarlög. Síðan fræddust börnin um ,,gamla daga“ með hjálp myndasýningar. Þar var m.a. fjallað um matarvenjur og áhöld, leikföng, fatnað og húsakost. Eftir það var skellt á balli í stutta stund og endað á því að horfa á stutta leikna mynd eftir þjóðsögunni um Gilitrutt, eina frægustu tröllkonu landsins. Þorrablótið endaði svo á hádegisverði þar sem boðið var upp á þorramat, en líka grjónagraut svo allir færu nú örugglega saddir frá borði.
4. janúar 2012
Vegna veðurútlits munum við flýta skógarferðinni okkar á þrettándanum og stefnum á að leggja af stað upp í Nýrækt kl. 10 á morgun, fimmtudag.
Leikskólinn í Stykkishólmi - Búðanesvegi 2 - 340 Stykkishólmi - Sími 433-8128 - leikskoli@stykkisholmur.is