Leikskólinn í Stykkishólmi
- Áætlun um endurvinnslu og umhverfisverndarstarf -
Umhverfisstefna Leikskólans
Leikskólinn í Stykkishólmi hefur í skólastefnu sinni áætlun sem miðar að því að auka menntun og þekkingu og efla virðingu fyrir náttúru og umhverfi lands og hafs. Leikskólinn vill stuðla að góðri umgengni og sjálfbærri nýtingu allra auðlinda og vinna gegn hvers konar mengun og umhverfisspjöllum. Í maí 2006 gekk skólinn til liðs við verkefnið ,,Skólar á grænni grein” og þann 30. maí 2007, var Grænfáninn afhentur, af aðilum frá Landvernd.
Helstu markmið Leikskólans eru:
1. Að flokka og minnka sorp.
2. Að flokka og nýta pappír og pappa.
3. Að nota umhverfismerktar hreinsivörur.
4. Að versla sem mest í heimabyggð og lágmarka flutningsvegalengdir með magninnkaupum.
5. Að gera nemendur skólans meðvitaða um náttúruvernd og virka þátttakendur í ferlinu.
Umhverfissáttmáli Leikskólans í Stykkishólmi
Leikskólinn í Stykkishólmi ætlar að leggja sitt af mörkum til jarðarinnar. Það gerum við með því að tileinka okkur umhverfisvæna starfshætti og kenna börnunum að ganga vel um gróður í kringum okkur, gróðursetja og rækta í garðinum við Leikskólann. Að endurnýta pappír, jarðgera matarleifar og nota umhverfismerkt hreinlætisefni.
Þannig læra börnin smátt og smátt að ganga vel um og nýta betur það sem við höfum og að ganga ekki á höfuðstól náttúrunnar.
Leiðir að markmiðum:
- Endurvinnslunefnd.Nefndin er skipuð leikskólastjóra, matráði, fulltrúum deilda og foreldra. Endurvinnslunefnd hefur yfirumsjón með jarðgerðarkössum, endurvinnslutunnunni og framkvæmd áætlunarinnar á sinni deild. Nefndin fundar reglulega, fer yfir stöðu mála og upplýsir og kemur með ábendingar á næsta starfsmannafundi þar á eftir. Umhverfisnefnd gefur út fréttabréf til foreldra og skrifar á heimasíðu skólans reglulega til að upplýsa foreldra um starfið. Áætlun um endurvinnslu og umhverfisverndarstarf leikskólans er aðgengileg á heimasíðunni.
- Umbúðir. Endurvinnanlegum umbúðum er safnað og þær settar í viðeigandi safntunnur sbr. sorpflokkun Stykkishólmsbæjar eða nýttar undir perlur, málningu og til listrænnar sköpunar eða leiks. ,,Huppa” með mjólk í er staðsett í eldhúsi og hver deild nær sér í mjólk úr henni í könnur og því eru umbúðir undan mjólkurvörum í lágmarki.
- Pappírsvinna. Blöð sem fara forgörðum, pappi og annar pappír er nýttur í skapandi starf t.d. pappamassa og pappírsgerð. Bylgjupappi, kassar og annar pappír sem ekki nýtist í leikskólanum er settur í grænu tunnuna.
- Matarafgangar.Allir matarafgangar eru settir ýmist í brúnu tunnuna eða jarðgerðarkassa (Biodeg) sem svo vikulega eru losaðir í moltugerðartunnuna úti á lóð. Börnin taka virkan þátt í því.
- Fræðslan til barnanna og þátttaka þeirra er mikilvægur þáttur í endurvinnslu- og umhverfisstefnu leikskólans. Hver deild setur sér markmið og leiðir fyrir hvert skólaár og deildirnar halda úti sameiginlegri dagbók úr starfinu sem aðgengileg er foreldrum/forráðamönnum á heimsíðu leikskólans.
Börnin:
o flokka matarafganga í þar til gerð ílát og gera tilraunir með moltugerð.
o aðstoða við að setja í jarðgerðarkassana og tunnuna og hræra í.
o eru hvött til að vinna með verðlaust efni í listsköpun sinni.
o eru virkjuð í flokkun á pappír, kynnast pappírsgerð og notkun pappamassa.
o kynnast sínu nánasta umhverfi og læra að bera virðingu fyrir náttúrunni og ganga vel um.
- Innkaup. Vandað er til vals á pappír og hreinlætisvörum og reynt eftir því sem hægt er að kaupa umhverfismerktar vörur. Einnig að velja það sem hefur í för með sér minnstan flutningskostnað.
(Úr skólanámskrá 1. útgáfu mars 2008)