Umhverfisnefndarfundur 19. janúar 2011.
Mættir : Edda, Nanna, Elín Helga, Sigrún og Sólbjört.
- Upp hefur komið sú hugmynd að setja niður krydd inn á Ási.
- Það þarf að endurskoða grænmetisgarðinn næsta vor. Passa upp á að leyfa börnunum taka þátt í að taka upp kartöflur og þá jafnvel hafa einn dag í upptöku. Annars er útivera fyrir hádegi það seint að Ella getur ekki nýtt sér það því hún þarf kartöflur inn fyrr svo þær séu soðnar á hádegi.
- Veður var mjög þurrt seinasta sumar og því var uppskeran úr kössunum ekki eins og vonast hafði verið til. Því þarf að skoða aðrar leiðir til að vökva á meðan starfsfólk leikskólans er í sumarfríi. Annaðhvort er að fá vökvunarkerfi sem hægt er að kveikja á án þess að þurfa að sækja allt langan veg. Eða að athuga með hvort vinnuskólinn geti tekið að sér að vökva fyrir okkur á meðan. Skoða hvað best sé að gera.
- Höfum slakað á í rafmagnssparnaði og meira er farið að bera á því að gluggar séu opnir og ljós séu kveikt í tómum rýmum. Það þurfa allir að vera vakandi.
- Nú er mikið til af pappír sem búinn er til úr pappírsafgöngum af deildum. Það þarf samt sem áður að passa upp á að börnin séu að nýta vel hvert blað sem þau skrifa / teikna á. Jafnvel hægt að minnka pappír í skúffum sem eru aðgengilegir fyrir börnin.
- Grænfáninn þarfnast aðhlynningar. Sigrún ætlar í það mál.
- Spáð var í að skoða þróun á aflestrinum á vatninu. Nú höfum við lesið af reglulega í næstum 2 ár og gaman væri að sjá hvort minnkun sé eða aukning í eyðslunni.
- Það þarf að huga að því að börnin þekki hvað fer í hvaða tunnu. Gott umræðuefni t.d. við matarborðið er í hvaða tunnu matarafgangarnir fara svo þau læri hvað fer í hvaða tunnu. Sum börn þekkja munin á því hvað fer í hvaða tunnu.
- Næsti fundur verður föstudaginn 11 febrúar kl:10:00 og þá kemur allur elsti árgangurinn með á fund. Það þarf t.d. að skipta um miða hjá slökkvurum í leikskólanum og fá fram þeirra hugmyndir um grænmetisgarðinn.
Fundargerðir 2010
Fundargerðir 2009