10. maí 2012.
Við höfum lagt áherslu á að nýta góða veðrið þessa vikuna og verið mikið úti að leika og einnig farið í gönguferð. Eftir hádegi í gær var sameiginleg söngstund inn á Mostraskegg. Við förum líka í sameiginlega söngstund fyrir hádegi á morgun.
4. maí 2012.
Þessi vika hefur farið í að aðlaga ný börn inn á deildina og að aðlaga fjögur af okkar börnum inn á Nes. Í morgun fluttu þau dótið sitt í nýtt hólf á Nesi. Það gekk mjög vel og eru þau alsæl núna að leika sér á nýrri deild. Við þökkum þeim og foreldrum þeirra fyrir samveruna á Vík. Eftir að þessi fjögur börn eru farin eru 18 börn á Vík.
Við höfum verið mikið úti að leika þessa vikuna enda veðrið búið að vera mjög gott og meira að segja var hægt að vera léttklæddur úti í gær.
26. apríl 2012.
Þessa vikuna hefur veðrið verið okkur hliðhollt og við því getað verið mikið úti að leika. Undirbúningur fyrir opið hús hefur staðið sem hæst og hluti af afrakstri vetrarins komið upp á veggi. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á morgun á opnu húsi.
25. apríl 2012.
Miðvikudaginn 2. maí munu fjögur börn byrja í aðlögun á Nes frá okkur. Það eru Gergö, Kristbjörg María, Jón Breki og Sölvi Freyr. Ef allt gengur vel munu þau færa hólfin sín föstudaginn 4. maí og munu foreldrar sækja börnin á Nes þann daginn.
Þau börn sem munu færast yfir á Nes fyrir haustið þ.e. annað hvort fyrir eða eftir sumarfrí eru: Arnar Franz, Aron Elvar, Aron Gunnar, Igor Mikolaj, Natalía Mist og Þorvarður Daníel.
Við munum taka stöðuna seinnipartinn í maí um hvort við getum fært fleiri börn yfir fyrir sumarfrí. Við munum láta ykkur vita um leið og það verður ljóst hjá okkur.
Á mánudaginn 30. apríl munu tvö ný börn byrja í aðlögun hjá okkur en það eru Lena og Norbert Krystian.
17. apríl 2012.
Nú er alltof langt liðið síðan fréttir hafa verið settar hér þannig að nú verður gerð smá bót á því. Það gleymdist að segja frá því í síðasata pistli að við fengum gest í heimsókn til okkar. Það var hún Lína kananínan hennar Sissu. Hún vakti mikla athygli hjá börnunum. Því miður gleymdist að taka myndir af þeirri heimsókn en við mundum eftir að taka myndir af þeim sem komu næst til okkar í heimsókn. Þær Jóhanna og Kristín komu með litla hænuunga til að sýna okkur sem vakti mikla gleði hjá börnuum.
Þessar vikurnar höfum við reynt eftir fremsta megni að nýta okkur ef veðrið hefur verið gott og verið lengi úti. Einnig erum við farin að fara meira út eftir hádegi líka. Við höfum verið að æfa okkur að púsla og perla og sjáum við miklar framfarir hjá börnunum. Þessa dagana erum við leggja loka frágang á verkefni vetrarins og undirbúa sýninguna sem verður í næstu viku.
Við erum líka að æfa okkur að bíða og skiptast á. Við þurfum að bíða eftir að fá matinn okkar og skiptast á með dótið svo fátt eitt sé nefnt. Með þessu er meðal annars verið að efla sjálfstjórn barna. En samkvæmt rannsóknum sem gerðar hafa verið bæði hérlendis og erlendis að þá skiptir sjálfstjórn miklu máli í öllu námi barnanna. Einnig hefur komið fram í rannsóknum að leikskólabörn með góða sjálfstjórn myndi jafnframt jákvæðari tengsl við jafnaldra og kennara.
29. mars 2012.
Við viljum byrja á að þakka ykkur kæru foreldrar fyrir góða mætingu í foreldraviðtölin.
Á mánudaginn vorum við að gera páskaunga úr saltkeramiki og munu þau koma með þá heim á morgun. Á þriðjudaginn fórum við snemma út að leika og allir svo glaðir og ánægðir að leika úti í þessari líka rigningu sem var. Á miðvikudaginn fórum við í könnunarleik, einhverjir voru að mála og einnig vorum við að leira. Í dag var góða veðrið notað og allir voru lengi úti. Sum voru jafnvel ekki sátt við að þurfa að fara inn eftir rúman klukkutíma útiveru.
Við viljum minna ykkur á páskaeggjaleitina sem verður kl. 16 í dag á vegum foreldrafélagsins.
22. mars 2012.
Þessi vika hefur flogið áfram og hefur margt verið haft fyrir stafni. Á mánudaginn var yndislegt veður og fórum við því snemma út og voru lengi úti að leika. Pjakkað var upp og niður brekkurnar á stóru lóðinni, snjórinn mokaður og margt fleira. Á þriðjudaginn vorum allir að leira áður en farið var út. Í gær vorum við inni fyrir hádegi. Börnin fóru á milli svæða þar sem í boði var að mála, teikna, fara í könnunarleik, leika með smíðadót og skoða bækur. Við fórum út eftir hádegi. Í dag ætlum við að nýta góða veðrið og bjóða einhverjum upp á gönguferð á meðan aðrir verða úti að leika.
Í fataklefanum er blað þar sem þið getið skráð ykkur í foreldraviðtal sem verða í næstu viku.
15. mars 2012.
Í morgun fórum við út að leika í þessu líka dásamlega verði og stefnum á að fara aftur út eftir kaffitímann í dag. Í gær komu krakkarnir í 6. bekk í heimsókn og fóru nokkur börn inn á Mostraskegg til þeirra að leika við þau. Á þriðjudaginn voru allir að vatnslita. Á mánudaginn gerðu allir mánaðarmyndina sína með vaxlitum og vatnslituðu yfir.
Undirbúningur fyrir foreldraviðtöl er lokið en við erum búin að fresta viðtölunum þar til 28. og 29. mars. Ninna er í veikindaleyfi í tvær vikur. Við brúum það tímabil með því að Sissa og Auður skiptast á því að vera hjá okkur og einnig er smávægileg hagræðing á okkar vinnutíma.
8. mars 2012.
Þessa dagana erum við að leggja lokahönd á að undirbúa okkur fyrir foreldraviðtölin og hefur því vinna deildarinnar snúist mikið í kringum þann undirbúning. Á mánudaginn fórum við snemma úti og vorum að leika á stóru lóðinni. Þar lögðum við áherslu á að efla grófhreyfingar með því fara upp og niður brekkurnar sem getur tekið mikið á litla fætur. Í gær vorum við inni og vorum að teikna, pinna og sulla. Við höfum verið dugleg að fara inn á Mostraskegg þessa vikuna.
1. mars 2012.
Í dag byrjar Julia Krystyna í aðlögun hjá okkur. Við bjóðum hana og fjölskyldu hennar velkomin til okkar.
Eins og fram kom í síðustu viku leggjum við áherslu á þessa dagana að undirbúa okkur fyrir foreldraviðtöl. Í gær fóru nokkur börn í gönguferð. Núna eru allir inn á Mostraskegg þar sem þau eru búin að vera í boltaleik og spila á hljóðfæri.
23. febrúar 2012.
Þessi vika hefur ekki verið með hefðbundnu sniði. Á mánudaginn fengum við bollukaffi í tilefni af bolludeginum. Þar sem mjög gott veður var þann dag fórum við beint út eftir bollukaffið og vorum lengi úti. Því voru allir svangir og sofnuðu vel eftir góða útiveru.
Á þriðjudaginn vorum við inni og skiptum okkur upp í hópa. Við vorum að spila á hljóðfæri, teikna, klæða okkur í drusluföt svo fátt eitt sé nefnt. Þeir sem áttu eftir að klára öskudagsbúningana sína gerðu það. Í hádegismat fengum við saltkjöt og baunir og voru börnin dugleg að borða þennan þjóðlega rétt.
Mikil gleði var í gær á öskudaginn. Kötturinn var sleginn úr tunnunni og dansað á eftir. Inn í tunnunni var popp fyrir eldri krakkana en við á Vík fengum cheerios, rúsínur og vatn að drekka. Eftir hvíldina fórum við út að leika. Eins og foreldrar urðu varir við urðu börnin frekar blaut í útiverunni en voru mjög sæl og glöð að henni lokinni.
Næstu dagar fara í að undirbúa foreldraviðtöl hjá okkur sem verða vikuna 18. til 23. mars.
16. febrúar 2012.
Undirbúningur fyrir öskudaginn er í fullum gangi hjá okkur þessa vikuna. Börnin eru að útbúa sér öskudagsbúninga og væri því gott að þeir sem ekki eru búnir að koma með boli komi með þá hið fyrsta. Lítið hefur verið um útiveru þessa vikuna og var því mjög gott að komast út í smá stund í gær. Börnin hristu af sér rokið og undu sér vel úti í svolitla stund og var matarlistin í góðu lagi þegar inn var komið. Allra yngstu börnin fóru ekki út.
Við erum búin að vera dugleg að fara inn á Mostraskegg þessa inni daga okkar og fengið smá útrás þar. Við höfum skipt okkur upp í hópa og verið í kubbaleikjum, perlað, skoðað bækur, sungið og margt fleira.
9. febrúar 2012.
Heldur fámennt hefur verið hjá okkur þessa vikuna. Við höfum því verið í frekar miklum rólegheitum og starfið verið með óhefðbundnum hætti. Ekki hefur verið skipt upp í hópa heldur hafa þau sem eru þann daginn verið saman í leik. Við höfum verið að fara inn á Mostraskegg þar sem við höfum verið í boltaleik og ýmsum þrautaæfingum. Við fórum út mánudag og þriðjudag en ekkert í gær. Við stefnum á að fara eitthvað í dag. Í þessum skrifuðum orðum voru börnin að fara inn á Áshala að leika með stóru holukubbana. Við hlökkum til að fara í búningagerð fyrir öskudaginn í næstu viku með börnunum. Gaman verður að sjá hver útkoman verður úr því verkefni.
2. febrúar 2012.
Í þessari og síðustu viku höfum við nota hvert tækifæri til að fara út að leika. Eins og sjá má á myndum sem teknar voru í síðustu viku hafa börnin notið þess að komast út að leika í snjónum. Þessa dagana höfum við verið að perla, leira, púsla, klæða okkur í drusluföt, leika okkur með hljóðfæri, farið í könnunarleik og kubbað. Við erum byrjuð að gera aðra tilraun í pappamassagerð sem ekki gekk upp í haust en nú eru börnin orðin eldri.
Rósa er búin að vera í veikindafrí þessa og síðustu viku en kemur aftur á mánudaginn til vinnu. Við höfum verið svo heppin að Sissa og Auður hafa hjálpað okkur á meðan.
Hugrún María ætlar að vera í fríi í febrúar og mars og hlökkum við til að fá hana aftur í skólann í apríl.
Garpur Nói byrjar hjá okkur í aðlögun á mánudaginn 6. febrúar. Við bjóðum hann og fjölskyldu hans velkomin til okkar.
Við minnum á foreldrakaffið n.k. mánudag frá kl. 7:45 til 10. Ella ætlar að baka kryddbrauð fyrir ykkur. Hlökkum til að sjá ykkur öll.
Megið þið eiga góða þorrablótshelgi.
22. janúar 2012.
Á mánudag og þriðjudag í síðustu viku var hver hópur fyrir sig að þrykkja myndir með þekjulitum. Einnig var verið að leika með kubba og könnunarleik svo fátt eitt sé nefnt. Á miðvikudag og fimmtudag lögðum við áherslu á að fara út að leika sem var öllum kærkomið. Nokkur yngstu börnin voru samt inni.
Á föstudaginn vorum við með þorrablót sem hófst með sameiginlegri söngstund inn á Mostraskegg. Ellý sýndi okkur myndir frá fyrri tíð og síðan var smá ball í framhaldi, almennilegt þorrablót. Okkar börn höfðu nú ekki mikið úthald í ballið og fóru bara inn á Vík í sín róleg heit. Í hádeginu fengum við þorramat sem börnin voru dugleg að smakka þrátt fyrir að þau væru nú ekkert sérlega hrifin af honum. En enginn fór svangur frá borðum því Ella hafði eldað fyrir okkur grjónagraut sem allir borðuðu með bestu list.
Á morgun mánudaginn 23. janúar byrjar Kristbjörg María í aðlögun hjá okkur. Við bjóðum hana og fjölskyldu hennar velkomin til okkar.
12. janúar 2012.
Eitthvað er hlaupabólan enn að stinga sér niður en ekki hefur verið nema um eitt og eitt tilfelli að ræða í einu. Að öðru leiti eru börnin nokkuð hraust.
Við höfum haldið okkur inni þessa vikuna. Meðal þess sem við höfum verið að dunda okkur við er að leika okkur með ljós og skugga með myndvarpa og vasaljósum. Höfum verið með slæður, klætt okkur í drusluföt, sungið og teiknað svo fátt eitt sé nefnt. Hver hópur hefur líka verið að mála sameiginlegt listaverk þessa vikuna. Ekki voru notaðir penslar til að mála að þessu sinni heldur máluðu börnin með blöðrum. Eins og sjá má á myndum nutu börnin sín vel í þessari vinnu. Þið foreldrar kærir hafi líklega orðið vör við þessa málningarvinnu á líkömum barnana þegar heim var komið.
9. janúar 2012.
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.
Allir mættu glaðir á nýju ári í skólann sinn í síðustu viku. Við vorum inni alla vikuna þar sem ekki gaf til útiveru. Við dunduðum okkur því við eitt og annað inni í staðinn. Það byrjuðu hjá okkur nýjir nemendur þau Valdís Helga og Víkingur Leó og lögðum við því aðaláherslu á að aðlögun þeirra, bæði börn og fullorðnir.
15. desember 2011.
Síðastliðinn mánudag vorum við svo heppin að komast út að leika. Allir voru svo sælir og glaðir að komast út í snjóinn. Á þriðjudaginn vorum allir að pakka inn jólgjöfunum til mömmu og pabba. Þar sem allir á Nesi og Ási voru í kirkjuferð fórum við yfir og lékum okkur þar og í Holukubbunum. Á miðvikudaginn rúlluðu Gullhólmi, Grensás, Móvík og Móholt sér á milli í að vera í könnunarleik og að leika sér með hálsfestar, skó og fleira. Á meðan voru allir í Nónsker að mála. Eftir hádegi komu krakkar frá tónlistarskólanum og héldu tónleika fyrir okkur inn á Mostraskegg. Þeir sem voru vaknaðir fóru á tónleika. Eftir nónhressingu fórum við út að leika.
Í morgun voru litlu jólin hjá okkur þar sem við horfðum á elstu nemendur skólans flytja helgileikinn, dönsuðum í kringum jólatréð og fengum jólasveina í heimsókn. Þetta voru skemmtilegir sveinar sem léku sér í kastalanum úti á lóð en voru svo stiltir og rólegir inni hjá okkur. Ekki voru mörg börn á deildinni hrædd við þá. Á morgun er afmælishátíð desember barna.
8. desember 2011.
Þá er enn ein vikan senn að lokum og það fara að koma jól. Við höfum haldið okkur inni þessa viku vegna kulda. Eitt og annað höfum við verið að gera. Við fórum í jólaskrautssmiðju á þriðjudaginn með öllum nemendum skólans. Þar gerðum við skraut á jólatréð okkar. Eins og þið sáuð í gær komu þau heim með kertastjaka sem þau bjuggu til úr saltkeramiki og máluðu og settu glimmer á. Einnig hefur vikan farið í að vinna við leyndarmálið okkar.
Ekki má nú gleyma að segja frá því að Bergur setti upp fyrir okkur gjafabakka á girðinguna fyrir utan gluggann hjá okkur þannig að nú getum við fylgst með þegar við erum að gefa smáfuglunum að borða.
1. desember 2011.
Þessa vikuna höfum við ekkert farið út að leika vegna veðurs. Á þriðjudaginn vorum við að baka piparkökur. Misjafnt var hve margar kökur komust á plötuna því að sjálfsögðu þurfti að athuga hvort deigið væri í lagi hjá Ellu. Í gær vorum við svo með hið árlega jólaföndur með forldrafélaginu. Mjög skemmtileg og notaleg stund eins og alltaf.
Í dag erum við að búa til hurðakrans. Við ætlum að stimpla hendurnar okkar og klippa þær út og líma í vináttukrans. Þessa dagana er líka vinna við jólaleyndarmálið í gangi.
Já ekki má nú gleyma að segja frá gangi mála í pappírsgerðinni okkar. Börnunum fannst þetta frekar "ógeðslegt" þegar pappírinn var orðinn blautur og voru ekki fáanleg til að búa til pappír nema eitt barn sem var til í þetta sull. Þannig að hann gerði nokkur blöð fyrir okkur. Við munum gera aðra tilraun með pappírsgerð seinna í vetur. Gaman verður að sjá hvort þau verða til í "drullumallið" þá.
24. nóvember 2011.
Nú kemur tvöfaldur frétta skammtur þar sem ekki komu fréttir inn í síðustu viku. Mikið var um að vera hjá okkur í síðustu viku. Við útbjuggum kertastjaka úr saltkeramiki sem er að þorna og munu koma heim í desember. Útkoman var skemmtilega fjölbreytt, kertastjakar þar sem jafnvel leyndust putta- og tannaförum á.
Á degi íslenskrar tungu komu krakkarnir úr 6. bekk í heimsókn til okkar. Þau skoðuðu bækur með okkur og léku við okkur. Það var mjög gaman að fá þau í heimsókn og voru þau dugleg að byggja með okkur. Alltaf gaman að fá skemmtilega gesti í heimsókn. Á fimmtudeginum kom svo litla lúðrasveitin og hélt mjög flotta tónleika fyrir okkur.
Síðast liðinn þriðjudag kom Möguleikhúsið í heimsókn til okkar og sýndi fyrir okkur leikritið Prumpuhóllinn. Mjög skemmtilegt og fyndið verk. Flest öll börnin á deildinni sátu og horfðu á leikritið en nokkur fóru inn á deild þar sem þeim fannst þetta frekar ógnvekjandi leikrit. En yfir heildina voru þau ótrúlega dugleg að sitja og horfa.
Í gær fórum við að undirbúa pappamassagerð. Það byrjaði frekar rólega við að rífa niður pappír en svo var pappírinn kominn út um alla stofu og við farin að láta hann snjóa yfir okkur. Þetta var ótrúlega skemmtilegt og skemmtu flestir sér mjög vel og ekki síst kennararnir. En einhverjum fannst þetta nú frekar óspennandi. En pappírinn komst svo ofan í bala að lokum og var lagður í bleyti. Við munum svo halda áfram að vinna í pappamassagerðinni á næstu dögum. Eftir hádegi fórum við í söngstund inn á Mostraskegg.
Börnin eru mjög dugleg og áhugasöm þegar við syngjum vinalögin okkar og eru mjög dugleg að nota táknin með. Mikill áhugi er þessa dagana hjá börnunum á tunglinu og gripum við það áhugasvið þeirra og erum mikið að skoða tunglið, búin að hengja nokkur tungl upp í glugga og skoðum söguna um Stubb og Alla Nalla. Þau eru líka mikið að velta krummanum fyrir sér þegar við erum úti og leika þau hljóðin í honum. Mjólkurfernurnar vekja líka mikla athygli þessa dagana Ho ho ho.
Á morgun verður afmælishátíð nóvember barna.
10. nóvember 2011.
Í þessum rituðu orðum eru allir úti að leika sér í þessu yndislega veðri sem er hjá okkur í dag. Við höfum farið út að leika alla daga vikunnar nema þegar logið fór svolítið hratt hér yfir Stykkishólm á þriðjudaginn.
Ýmislegt hefur verið brallað þessa vikuna. Við höfum verið að leika okkur með drusluföt, setja á okkur hálsfestar og klæða okkur í skó. Höfum verið að mála, teikna, kubba, leika okkur með vasaljós og slæður svo fátt eitt sé nefnt. Svo höfum við verið dugleg að syngja vinalögin okkar. Við erum líka alltaf að æfa okkur í að vera góð við hvort annað með því að klappa hvort öðru laust en ekki fast.
3. nóvember 2011.
Veðurguðirninr hafa ekki verið okkur hliðhollir þessa vikuna þannig að ekki höfum við komist út. En við höfum verið að dunda okkur við ýmislegt inni. Við erum búin að vera að syngja mikið kærleikslögin okkar. Börnin eru ótrúlega dugleg að herma eftir okkur og nota táknin með textunum. Það er oft mjög gaman að sjá að stundum eru þau komin á undan okkur í textunum með notkun táknana. Þau eru alveg með á hreinu hvað kemur næst. Við erum búin að vera vinna með mánaðamyndinirnar í vikunni og að þessu sinni erum við að mála með brúsum með svamptöppum. Mikið er búið að vera að kubba og hafa ýmsar kubbategundir verið notaðar. Þar má nefna legókubba (miðstærð og stóra) og einnig trékubbum. Leikið hefur verið föt, skó, hálsfestar og ýmislegt annað verið brallað.
Við minnum á ömmu og afa daginn á morgun.
31. október 2011.
Kæru foreldrar!
Við höfum útbúið hús sem við hengdum upp á ganginum inn á deild hjá okkur. Inn í húsið eru settar myndir af börnunum þegar þau mæta í leikskólann. Því langar okkur að biðja ykkur kæru foreldrar hvort þið gætuð gefið ykkur tíma til að setja myndirnar með börnunum inn í húsið á morgnana þegar þið komið og tekið þær svo aftur af þegar þið farið heim með börnin. Hugsunin hjá okkur með þessu er að það verði meira sjónrænt fyrir börnin hverjir eru mættir í leikskólann. Þarna fer líka fram málörvun þar sem gefst tækifæri á að spjalla um hverjir eru mættir. Við kennararnir munum líka setja myndir af okkur inn í húsið.
Með kveðju og þakklæti,
Kennarar á Vík
25. október 2011.
Jæja þá kemur loksins pistill til ykkar. Þessa vikuna hafa hópaskiptingar verið á annan hátt en venjuleg þar sem þau yngri voru að mála á taupoka. Nú er pokarnir tilbúnir til kaups fyrir ykkur. Í gær fóru nokkur börn í gönguferð á meðan önnur voru að mála. Þar var um nokkra drengi að ræða sem fengu að mála sameiginlegt listaverk. Þetta var mjög skemmtileg stund sem fór aðeins úr böndunum en drengirnir skemmtu sér vel og voru mjög duglegir við að efla sinn sköpunarkraft. Ef blaðið dugði ekki var bara málað á gólfið, ef ekki kom nógu mikið úr penslinum var málningunni bara hellt á gólfið. Þeir máluðu fæturnar á sér, hendur, andlit og hár þannig að sennilega hafa verið málingaafgangar á þeim þegar þeir komu heim í gær. Klósettinn voru máluð og svo flutt frumsamið tónverk þar sem penslarnir voru kjuðar og klósettseturnar trommurnar. Ég held að við kennarnir höfum nú ekki skemmt okkur síður þetta var ótrúlega fyndin og skemmtileg stund sem tekin var upp á vídeó og einnig teknar myndir.
Bangsadagurinn gekk vel hjá okkur og nú höldum við áfram að vinna með okkar gildi sem eru Virðing - Gleði - Kærleikur. Í dag voru settir í hólfin söngtextar sem við ætlum að syngja á næstu viku. Þau lög sem við á Vík munum leggja áherslu á eru:
Kæri vinur
Vinur minn
Vinalagið
Við erum góð
Við erum vinir
Lítill heimur
Broslagið
Jesús er besti vinur barnanna
Filli
Þetta litla ljósið mitt
Daginn í dag
Önnur lög í textabókinni koma þau til með að heyra í sameiginlegum söngstundum.
Í dag var afmælishátíð október barna. Við fórum í söngstund í sal áður en við fengum okkur köku og fórum síðan út að leika. Misjafnt hefur verið eftir dögum þessa vikuna hvort börnin hafa farið út eða ekki. Í gær fóru t.d. þeir ekki út sem voru að mála og einnig var það í fyrradag þannig að þau börn sem voru að mála á taupoka fóru ekki út.
Megið þið eiga ánægjulega helgi.
13. október 2011.
Þennan mánuðinn ætlum við aðallega að syngja þessi lög:
- Afi minn og amma mín og sú syrpa
- Þrisvar sinnum smell
- Babú babú
- Gúkk-gú-gú
- Kubbahús
- Þumalfingur hvar ert þú?
- Þumalfingur er mamma
13. október 2011.
Við viljum byrja á að þakka foreldrum fyrir góða mætingu á foreldrafundinn. Vonum að foreldrar hafi verið eitthvað upplýstari eftir fundinn. Endilega sendið póst ef það er eitthvað sem ykkur finnst þurfa að fá nánari útskýringa með.
Á mánudaginn vorum við öll inn á Mostraskegg þar sem við fórum í boltaleik, æfðum okkur að fara í kollhnís, ganga á jafnvægisslá og dansa.
Á þriðjudaginn unnu hóparnir Grensás, Móholt og Móvík saman í að klæða sig í skemmtilega búninga sem keyptir voru í sumar. Gullhólmi og Nónsker voru saman í boltaleik.
Í gær vorum krakkarnir í Móvík að fara að leika sér með ljós og skugga. Öðrum hópum fannst það svo áhugavert að allir skelltu sér inn með og úr varð hinn skemmtilegasti tími þar sem börnin prófuðu sig áfram með ljós og skugga. Því miður eigum við ekki nema tvær myndir frá þessari stund en við eigum vídeóupptöku sem verður sýnd síðar.
Þá er hópmyndatakan afstaðin og gekk bara ótrúlega vel. Það var nú misjafnt hversu skemmtilegur þeim fannst ljósmyndarinn vera en held að þetta verði bara fínar myndir enginn með snuð og ekki mikill grátur.
Búið er að setja inn á Hópastarfslinkinn nöfnin á hópunum og hver er í hverjum hóp.
30. september 2011.
Í dag var afmælishátíð september barna. Aðeins einn átti afmæli á deildinni þennan mánuðinn og var það nýji nemandinn okkar hann Guðmundur Arnar sem varð eins árs í gær. Þá verða ekki fleiri afmæli hjá okkur á deildinni þetta árið en afmælishrinan byrjar svo í febrúar.
Við héldum áfram að skipta okkur upp í hópa og vorum meðal annars með áframhaldandi speglaþrykk. Við tíndum laufblöð í garðinum okkar sem við ætlum að nota í listaverk í næstu viku. Við höfum farið nokkrum sinnum inn á Mostraskegg þessa vikuna. Þar höfum við verið að leika okkur með bolta, æft okkur í að fara í kollhnís og ganga á jafnvægisslá.
Síðustu vikurnar höfum við bara farið með nokkur börn í einu í söngstund þar sem börnin hafa verið að átta sig á aðstæðum en í morgun fóru allir. Þar var nú ekki leiðinlegt að hitta eldri systkini og vini.
Veðrið er aðeins farið að stoppa okkur af í að fara út. Í gær fóru elstu börnin út en yngri voru inni og í dag fór enginn út.
Það er nú gaman að segja frá því að loksins erum myndirnar komnar í tímaröð á heimasíðuna okkar.
22. september 2011.
Það sem af er liðið viku höfum við haldið áfram að skipta okkur upp í hópa. Okkur finnst þetta koma vel út og erum að þjálfast meira í þessu skipulagi. Börnin hafa verið að teikna myndir sem við geymum fram á vorið og hengjum upp með myndum sem þau teikna í vor. Með því sjáum við þróun barnana í teikningu yfir veturinn. Þau voru líka að gera speglaþrykksmyndir, fóru í könnunarleik, pinna, skoða bækur spila á hljóðfæri, farið í sameiginlega söngstund svo fátt eitt sé nefnt.
Næsta mánudag 26. september byrjar Guðmundur Arnar í aðlögun hjá okkur. Við bjóðum hann og fjölskyldu hans velkomin til okkar.
15. september 2011.
Þá er enn ein vikan senn á enda. Eins og foreldrar hafa sennilega orðið vör við hafa allir hópar verið að mála þessa vikuna. Við höfum haft börnin á bleiunum meðan þau eru í þeirri vinnu og reynt að þrífa þau vel á eftir en sennilega höfum við ekki alltaf náð allri málningunni af þeim. Afrakstur þessarar vinnu mun verða settur upp á vegg næstu dagana. Við tókum margar skemmtilegar myndir af þessari vinnu sem ekki verða settar á heimasíðuna en við munum hafa myndasýningu í foreldrakaffinu sem verður 5. október.
Á morgun munu kennarar frá leikskólanum Steinahlíð í Reykjavík koma í heimsókn til okkar.
30. september mun leikskólinn loka kl. 14 vegna starfsmannafundar.
9. september 2011.
Við höfum haldið áfram að fikra okkur með að skipta okkur upp í hópa í þessari viku. Eins og sjá má á nýjum myndum voru fyrstu málningardagar skólaársins í vikunni.
Megið þið eiga ánægjulega helgi.
1. september 2011.
Í þessari viku höfum við verið að prófa að vinna í þeim hópum sem við ætlum að vinna í þetta skólaárið. Við skiptum börnunum upp í fimm hópa. Börnin eru ekki búin að finna nöfn á hópana en það er allt í vinnslu :) á meðan þeir eru nafnlausir kennum við þá við kennarana.
Í Eddu hóp eru Aron Elvar, Einir Hugi og Igor Mikolaj.
Í Rósu hóp eru Hugrún María, Sölvi Freyr og Þorvarður Daníel.
Í Ninnu hóp eru Gergö, Natalía Mist og Tristan Blær.
Í Sólbjartar hóp eru Arnar Franz, Brynja Rún og Jón Breki.
Í Elínar hóp eru Aron Gunnar, Kristofer Dean og Guðmundur Arnar sem byrjar í leikskólanum seinnipartinn í mánuðinum.
Við munum skipta okkur upp í hópana um klukkan tíu á morgnana. Í hópavinnuni er lögð áhersla á leikinn. Í gegnum leikinn förum við í könnunarleik, þemavinnu, málum, púslum, sullum förum út að leika svo fátt eitt sé nefnt. Í hópavinnunni munum við líka syngja og skoða/lesa bækur.
Eftir þessa fyrstu daga í þessari vinnu finnst okkur skapast meiri ró á deildinni. Við skiptum á milli okkar frá degi til dags í hvaða stofu við erum og er ákveðinn efniviður í boði á hverju svæði fyrir sig. Við munum fara nánar yfir þetta skipulag á foreldrafundi í október. Þá verður komin meiri reynsla á þessa vinnu hjá okkur. Ef að það vantar einn kennara á deildinna að þá skipta hinir kennararnir þeim nemendum á milli sín.
25. ágúst 2011.
Þessa vikuna höfum við verið að taka á móti nýjum börnum. Við höfum lagt áherslu á aðlögun þeirra. Ekki síst höfum við lagt áherslu á að nýtt starfsfólk fái tíma til að kynnast börnunum, starfsfólki og nýjum starfsvettvangi.
18. ágúst 2011.
Nú er allt að komast í fastar skorður hjá okkur eftir sumarfrí. Börnin eru að ná áttum eftir frí og aðskilnaður við foreldra er að verða þeim auðveldari.
Í síðustu viku fluttu börn yfir á Nes frá okkur. Við þökkum þeim og foreldrum þeirra fyrir samveruna. Síðast liðinn mánudag byrjuðu Hugrún María, Sölvi Freyr og Tristan Blær í aðlögun hjá okkur. Í næstu viku byrja Brynja Rún og Einir Hugi. Við bjóðum þau og fjölskyldur þeirra velkomin til okkar.
Rósa Kristín byrjaði hjá okkur í síðustu viku og Jónína Arnfríður mun byrja hjá okkur 1. september. Við bjóðum þær velkomnar til okkar.
Á starfsdeginum í síðustu viku skipulögðum við starf vetrarins. Í september munum við byrja að vinna eftir því skipulagi og munu setja hér inn hvernig þeirri vinnu verður háttað.
1. júlí 2011.
Þá er komið að síðasti degi fyrir sumarfrí. Megið þið eiga gott sumarfrí og hlökkum við til að hitta ykkur aftur 8. ágúst.
23. júní 2011.
Þessa dagana er verið að skipuleggja næsta skólaár. Strax fyrstu dagana eftir sumarfrí munu Bæring Breiðfjörð, Guðbrandur Gridtin, Lena, Matthías og Róbert Maron færast yfir á Nes. Í framhaldi af færslum yfir á Nes munu Brynja Rún, Einir Hugi, Hugrún María, Sölvi Freyr og Tristan Blær byrja í aðlögun hjá okkur.
Þeir kennarar sem vitað er að verði á Vík næsta vetur eru Elín Guðrún, Sólbjört Sigríður og Ólöf Edda. Við munum láta vita um leið og búið er að ganga frá ráðningum.
Síðustu dagana höfum við reynt að vera sem mest úti bæðir fyrir og eftir hádegi. Sunna Þórey og Camilla Rós hafa komið í heimsókn til okkar síðustu daga og að leika við börnin.
31. maí 2011.
Líney hefur látið af störfum hjá okkur af heilsufarsástæðum. Við þökkum henni fyrir samveruna og óskum henni góðs bata. Gugga hefur sagt upp og mun láta af störfum um sumarfrí. Við óskum henni góðs gengis á nýjum starfsvettvangi.
Síðustu daga hafa börnin verið að leggjast í veikindi. Bæði er um hlaupabólutilfelli að ræða og einnig er vírus í gangi sem nefndur er hinu skemmtilega nafni gin og klaufaveiki.
Um miðjan maí byrjaði Kristofer Dean hjá okkur á Vík. Við bjóðum hann og fjölskyldu hans velkomin til okkar. Á næstu dögum mun Gunnar flytja sig yfir á Nes. Við þökkum honum og fjölskyldu hans fyrir samveruna á Vík.
2. maí 2011.
Kæru foreldrar!
Eftir sumarfrí munu þau börnm sem eftir eru af 2008 árgangnum og öll börn fædd árið 2009 færast frá okkur yfir á Nes. Ástæðan er að við eigum von á stórum árgang barna sem fædd eru árið 2010. Við munum láta ykkur vita með fyrirvara áður en hvert og eitt barn færist yfir.
28. apríl 2011.
Jæja er nú ekki löngu orðið tímabært að setja inn vikupistil. Þessi vika hefur verið frekar stutt þar sem bæði var frí hjá okkur á mánudaginn og svo starfsdagur á þriðjudaginn. Í gær vorum við að mála með gulum þekjulit í þemavinnu. Í dag vorum við með afmælishátíð apríl barna og á morgun er opið hús hjá okkur. Allir eru velkomnir.
Í næstu viku ætla Bence, Elín Eygló, Jónas Bjartur og Ksenia Lilja að flytja yfir á Nes. Við þökkum þeim fyrir samveruna á Vík. Á mánudaginn byrja Gergö og Natalía Mist í aðlögun hjá okkur. Við bjóðum þau og fjölskyldur þeirra velkomin til okkar.
7. apríl 2011.
Eitt og annað hefur verið viðhafst þessa vikuna eins og endranær. Á mánudaginn gátum við nýtt okkur góða veðrið og vorum góðan tíma úti. Á þriðjudaginn byrjaði Igor í aðlögun hjá okkur. Við bjóðum hann og fjölskyldu hans velkomin til okkar. Á miðvikudaginn fóru nokkur börn í gönguferð og hin voru í frjálsum leik áður en þau fóru út. Í dag fóru yngri börnin í könnunarleik og eldri börnin fóru að sulla. Allir fóru út nema allra yngstu börnin.
N.k. mánudag byrjar Jón Breki í aðlögun hjá okkur. Við bjóðum hann og fjölskyldu hans velkomin til okkar.
31. mars 2011.
Okkur langar til að biðja ykkur foreldra að aðstoða okkur við að safna nýju dóti í könnunarleikinn hjá okkur. Við erum þá að hugsa um verlausan efnivið sem getur t.d. verið eggjabakkar, jógúrt og skyrdollur, dósir undan t.d. pringles og fleiri álíka dollum. Ef ykkur dettur eitthvað annað verðlaust efni í hug eru allar hugmyndir vel þegnar.
31. mars 2011.
Ég vil byrja á því að þakka foreldrum fyrir góða mætingu og gott spjall í foreldraviðtölunum í síðustu viku.
Þar sem ekki kom inn pistill fyrir síðustu viku byrja ég á þeirri viku núna og fer svo yfir í þessa viku.
Á mánudeginum bjuggum við til leir og voru að leira saman. Á þriðjudeginum skiptum við börnunum upp og sum fóru að leira og skoða bækur og önnur fóru í könnunarleik. Á miðvikudeginum fóru allir í þemavinnu þar sem við náðum okkur í snjó í bala og settum gulan matarlit út í og hrærðum í. Við settum vatn út í til að sjá hvað myndi gerast við það. Næstu daga ætlum við að fylgjast með hvað verður um snjóinn. Á fimmtudeginum voru eldri börnin að leika með litlu holukubbana og litlu börnin voru í frjálsum leik. Á föstudeginum var afmælishátíð marsbarna.
Síðast liðinn mánudag fóru yngri börnin í könnunarleik og eldri börnin fóru í holu- og greiðukubbana. Á þriðjudaginn fóru eldri börnin inn á Smiðjutanga að vatnslita á meðan yngri börnin voru í frjálsum leik í rólegheitunum inn á deild. Á miðvikudaginn fóru elstu börnin í þemavinnu og yngri börnin voru í kubbaleik og að leika sér með slæðurnar okkar. Í dag fara yngri börnin í þemavinnu og eldri börnin ætla að fara í gönguferð. Í þemavinnu vorum við að þæfa gular kúlur sem við ætlum að setja á ljósagreinina okkar. Einnig skoðuðum við hvað hefði orðið um snjóinn okkar. Við ákváðum að prófa að vatnslita með vatninu sem snjórinn var orðinn að á endurunninn pappír. Við sjáum svo hvort við getum ekki gert eitthvað meira með þetta listaverk. Á morgun verður sameiginleg söngstund fyrir hádegi inn á Mostraskegg en við fórum eftir hádegi í gær.
Við erum búin að vera það lánsöm að hafa getað farið út að leika alla dagana í þessari viku. En í gær voru yngstu börnin samt inn á meðan hin fóru út að leika.
17. mars 2011.
Heldur kalt er búið að vera þessa vikuna þannig að við treystum okkur ekki út nema á miðvikudaginn. Á mánudaginn fóru elstu börnin að leika sér í litlu holukubbunum og litlu börnin fóru að skoða ýmiss "gull" í körfu. Í dag voru allir að fingramála í þemavinnu. Við notuðum gulan lit þar sem nú erum við farin að vinna með hann. Einnig fórum við í könnunarleik.
Í næstu viku eru foreldraviðtöl og eru foreldrar vinsamlegast beðin um að panta sér viðtal.
14. mars 2011.
Eitt og annað var aðhafst í síðustu viku þó að ekki væri mikið um útiveru vegna veðurs. Við áttum Smiðjutanga á þriðjudeginum og fóru eldri börn þangað inn að mála. Allra yngstu börnin fóru líka inn á Smiðjutanga til að mála á taupoka sem foreldrum stendur til boða að kaupa af foreldrafélaginu. Á miðvikudag var öskudagur og fóru öll börnin í búningana sína sem þau voru búin að búa til. Eldri börnin fóru inn á Mostraskegg á öskudagsball þar sem kötturinn var sleginn úr tunninni, fengu popp og dönsuðu. Yngri börnin voru í rólegheitum inni á deild á meðan og fengu sér cheerios og rúsínur. Á fimmtudeginum voru nokkur börn að mála önnur í könnunarleik og einhverjir fóru í litlu holukubbana. Á föstudag var söngstund inn á Mostraskegg.
3. mars 2011.
Í þemavinnu þessa vikuna höfum við haldið áfram að útbúa öskudagsbúninga. Einnig er verið að gera bolluvendi.
Misjafnt hefur verið hvort við höfum farið út eða ekki. Við höfum metið það dag frá degi hvort hægt er að fara út. Stundum geta elstu börnin á deildinni farið út þó að við förum ekki út með litlu börnin vegna veðráttu.
Þau sönglög sem við komum til með að syngja í mars eru:
Sólargeislinn
Sá ég spóa
Í grænni lautu
Karl gekk út um morguntíma
Einnig komum við til með að syngja þau lög sem við erum búin að vera að syngja í haust.
23. febrúar 2011.
Veikindi er enn eitthvað að stinga sér niður hjá okkur en ekki í eins miklu mæli og um daginn. Þessa vikuna er Þorvarður Daníel búin að vera í aðlögun hjá okkur.
Við höfum haldið áfram við gerð öskudagsbúninga. Okkur langar til að biðja þá foreldra sem ekki eru búnir að koma með bol að gera það við fyrsta tækifæri.
Í gær fóru einungis allra elstu börnin út að leika í pollunum og rigningunni og skemmtu þau sér mjög vel. Að öðru leiti hefur vikan verið hefðbundin með söng, útiveru og ferðum inn á Mostraskegg svo fátt eitt sé nefnt.
Á morgun er afmælishátíð febrúarbarna.
N.k. þriðjudag 1. mars byrjar Arnar Franz í aðlögun hjá okkur. Við bjóðum hann og fjölskyldu hans velkomin til okkar.
17. febrúar 2011.
Eitt og annað hefur verið gert þessa vikuna. Á þriðjudaginn nýttum við góða veðrið og fórum út bæði fyrir og eftir hádegi. Þann dag fórum við fyrir hádegi inn á Smiðjutanga með nokkra drengi til að mála taupoka. Til upplýsinga til nýrra foreldra að þá hefur þetta verið samstarfsverkefni milli leikskólans og foreldrafélagins í nokkur ár. Pokinn fæst keyptur á þúsund krónur sem rennur í sjóð foreldrafélagsins. Pokarnir eru nýttir fyrir óhrein föt hér í leikskólanum og er liður í grænfánavinnunni okkar. Við munum halda áfram í næstu viku með þessa viku.
Þessar vikurnar snýst þemavinnan um að undirbúa öskudaginn. Í dag ætlum við að byrja að skoða bolina og hvað við getum gert úr þeim.
Við höfum farið einhverja daga inn á Mostraskegg í boltaleik og þrautabraut. Í gær fórum við þangað í sameiginlega sönstund eftir hádegi og förum líka í fyrramálið.
N.k. mánudag byrjar Þorvarður Daníel í aðlögun hjá okkur. Við bjóðum hann og fjölskyldu hans velkomin til okkar.
11. febrúar 2011.
Þessa vikuna höfum við verið að klára aðlaganir hjá Aroni Elvari og Aroni Gunnari. Guðbrandur kom líka inn seinnipart vikunnar eftir veikindi og má því segja að hann sé að byrja aðlögun upp á nýtt. Á n.k. mánudag byrjar Gunnar í aðlögun hjá okkur. Við bjóðum hann og fjölskyldu hans velkomin til okkar.
Á miðvikudaginn nýttum við okkur pollana úti og vorum lengi úti að leika í þeim. Sjá má myndir af því inn á daglegt líf í febrúar. Í gær fóru eldri börnin í þemavinnu þar sem byrjað var að undirbúa öskudagsbúningana. Við tókum þá stefnu að lesa fyrir þau söguna um geiturnar þrjár og sjá hvort hægt er að spinna búningagerð út frá þeirri sögu. Þetta er spennandi tilraunarverkefni hjá okkur sem gaman verður að fylgjast með hvernig tekst til. Eftir hádegi í gær fórum við í jafnvægisæfingar og fleira inn á Mostraskegg. Sameiginlegar söngstundir voru eftir hádegi á miðvikudaginn og fyrir hádegi í dag.
3. febrúar 2011.
Í dag eru aftur orðið mikið um veikindi, aðeins eru tvö börn hjá okkur. Þessa vikuna höfum við einbeitt okkur að því að vera í aðlögun.
Þar sem aldurdreifing barnanna á deildinni er mikill munum við skipta þeim í tvo hópa og verða þau ekki endilega gera það sama yfir daginn. Það fer eftir þroska þeirra hvað þau gera dag frá degi. Í gær voru stóru börnin t.d. að pinna og fóru út að leika á meðan litlu börnin voru inni. Þannig munum við hafa það fram á vorið.
31. janúar 2011.
Enn meiri veikindi voru hjá okkur í síðustu viku en vikunni þar á undan. Suma dagana voru þau aðeins tvö til þrjú. Því var dagurinn frekar rólegur hjá okkur og vorum við aðallega í frjálsum leik, skoða bækur, í boltaleik ofl. Nú eru börnin að hressast og voru þau tíu í morgun.
Aron Gunnar byrjaði í aðlögun í morgun og Aron Elvar byrjar á morgun. Við bjóðum þá og fjölskyldur þeirra velkomin til okkar.
Þau sönglög sem við sungum aðallega í janúar voru:
Krummi svaf í klettagjá, Frost er úti, Þorravísan, Upp og niður og einnig sungum við vísurnar okkar um afa og ömmu, fljúga hvítu fiðrildin ofl.
Þau sönglög sem sungin verða í febrúar eru:
Skýin, Nú er úti norðanvindur, Óskasteinar, Dúkkan hennar Dóru, Dansi, dansi dúkkan mín, Ef þú ert í góðu skapi, Húsdýrin, Ef sérðu krókódíl. Einnig höldum við áfram að syngja vísurnar um ömmu og afa, fljúga hvítu fiðrildin ofl.
21. janúar 2011.
Mikið hefur verið um veikindi á deildinni þessa vikuna. Þrátt fyrir það höfum við ýmislegt gert eins og farið í gönguferð, gerðum okkur þorrahatta, fórum í könnunarleik, sungum og frjálsi leikurinn var í hávegum hafður.
Í dag er þorrablót í leikskólanum. Við tókum þá ákvörðun á Vík að bjóða ekki upp á þorramat hjá okkur. Okkur fannst börnin svo ung og einnig er Guðbrandur Gridtin er með mikið matarofnæmi.
Nú á vormánuðum eru dagar sem hafa sínar hefðir og þykir okkur ástæða til að halda í þær. Öskudagur er einn af þessum dögum og höfum við tekið þá ákvörðun að börnin geri sjálf sína búninga. Á næstu vikum munum við fara þess á leit við ykkur hvort þið getið komið með bol að heiman sem börnin munu svo breyta í búning. Mismunandi útfærsla verður á búningunum eftir deildum og áhugasviði barnanna.
17. janúar 2011.
Síðast liðinn vika var í rólegri lagi hjá okkur. Við vorum mikið í frjálsum leik, fórum inn á Mostraskegg, sungum og lásum. Þar sem það var frekar kalt úti og dimmt fyrir hádegi fórum við meira út eftir hádegi.
Hróbjartur Ingi var í aðlögun hjá okkur en Guðbrandur Gridtin var lasinn þannig að hann byrjaði í dag í aðlögun.
4. janúar 2011.
Við viljum byrja á að óska ykkur gleðilegs árs. Nú standa fyrir dyrum færslur á milli deilda hjá okkur. Á morgun miðvikudag, munu Adda Sigríður, Hekla María, Hjalti Jóhann, Ragnheiður Emma, Óðinn Ernir og Óskar Örn byrja í aðlögun á Nesi, n.k. föstudag 7. janúar flytja þau alveg yfir. Við þökkum þeim og foreldrum þeirra fyrir samveruna á Vík.
Í næstu viku byrja tveir nýjir nemendur í aðlögun hjá okkur þeir heita Guðbrandur Gridtin og Hróbjartur Ingi. Við bjóðum þá og fjölskyldur þeirra velkomin til okkar.
16. desember 2010.
Við höfum lagt áherslu á að vera á rólegu nótunum þessa vikuna. Á mánudaginn fórum við í gönguferð um Tjarnarásin að skoða jólaljósin þar. Kiddý og Benni buðu okkur inn í garð til sín að skoða jólasveininn þeirra. Gaman er að segja frá því að ein daman hjá okkur fór til Bryndísar þegar við komum til baka og sagði henni frá því að við höfðum farið til mömmu hennar.
Á miðvikudaginn komu Karíus og Baktus í heimsókn til okkar. Börnin horfðu stórum augum á þá og vildu ekkert við þá tala á meðan önnur voru mjög hrædd og horfðu í aðra átt. Í dag er jólaballið hjá okkur, elstu börnin á Ási munu leika helgileikinn. Dansað verður í kringum jólatréð og eigum við von á að fá jólasveina í heimsókn.
Á morgun ætla allir í leikskólanum að borða saman morgunmat inni á Mostraskegg við upp dúkað borð og huggulegheit. Afmælishátíð desember barna er líka á morgun. Elín Eygló og Ksenia Lilja eiga afmæli í desember og verða báðar tveggja ára.
13. desember 2010.
Nóg var um að vera hjá okkur í síðustu viku. Á mánudeginum fengum við brúðuleiksýningu "Pönnukakan hennar Grýlu". Á þriðjudeginum vorum við með jólaksrautssmiðju þar sem við bjuggum til skraut á jólatréð okkar. Á fimmtudeginum fóru börnin á deildinni sem fædd eru 2008 í kirkjuferð með eldri deildum skólans. Farið var með rútu. Á föstudeginum komu nokkrir krakkar frá Tónlistarskólanum í heimsókn til okkar og héldu tónleika fyrir okkur. Óhætt er að segja að þetta hafi verið viðburðarík og skemmtileg vika.
Þar sem mikið er um að vera hjá okkur þessar vikurnar var ákvörðun tekin um að hvíla valið í desember.
7. desember 2010.
Við viljum byrja á að þakka foreldrum og foreldrafélaginu fyrir skemmtilega stund í jólaföndrinu síðast liðinn föstudag. Nóg var að gera hjá okkur alla viku. Við kláruðum að vinna með "leyndarmálið" í þemavinnunni.
Þar sem börnin eru farin að sofa styttra hjá okkur, erum við farin að fara út um kl. 14 með þau börn sem eru vel vöknuð. Sum sofa þó inni á meðan.
25. nóvember 2010.
Nú erum við byrjuð að undirbúa aðventun. Í gær vorum við að baka piparkökur fyrir foreldraföndrið sem verður á föstudaginn í næstu viku. Eins og sjá má á myndum að þá þurftu börnin að athuga hvort Ella hefði ekki verið með rétt hlutföll af pipar í uppskriftinni. Ekki var annað hægt að sjá en að svo hefði verið þar sem deigið rann ljúflega ofan í börnin.
Á morgun verður afmælishátíð nóvember barna hjá okkur.
19. nóvember 2010.
Nú er sá tími sem mikið er um leyndarmál og því er ekki gefið upp hvað við vorum að gera í þemavinnu þessa vikuna. Það kemur allt í ljós um jólin. Þess fyrir utan erum við búin að vera að syngja og leika okkur í frjálsum leik. Höfum farið inn á Mostraskegg, farið í könnunarleik ásamt ýmsu öðru. Þó nokkuð er búið að vera um veikindi á börnunum þessa daga og má næstum því segja að þau séu öll með kvef.
Líney byrjaði í veikindafríi á siðastliðnum þriðjudegi og kemur sennileg ekki aftur til starfa fyrr en á nýju ári. Sissa kemur til með að vera alfarið hjá okkur á meðan.
11. nóvember. 2010.
Bæring Breiðfjörð er í aðlögun hjá okkur þessa dagana. Við bjóðum hann og fjölskyldu hans velkomin til okkar. Í þemavinnu þessa vikuna vorum við að þæfa. Þar sem við erum að vinna með rauða litinn núna vorum við með rauða ull. Þar sem við erum búin að vera að vinna með bláa litinn ákváðum við að hafa hann líka.
Ákvörðun hefur verið tekin að prófa að leyfa börnunum sem fædd eru 2008 hjá okkur að fara í val. Valið er eftir hádegi á þriðjudögum og fimmtudögum og byrjar kl. 14. Til að byrja með ætlum við að stýra börnunum frá okkur á svæðin. Þau svæði sem eru í boði eru: Smiðjutangi, Mostraskegg, Áshali, Einbúi og Ás. Við skráum hjá okkur á hvaða svæði börnin fara í hvert skipti. Þannig höldum við utanum að þau fái að kynnast öllum svæðum. Öll börnin af Ási og Nesi eru í valinu. Þessi tilraun byrjaði í síðustu viku. Við höfum ekki vakið þau börn sem mega sofa til að fara í val en þau eru samt öll búin að prófa að fara eitthvað. Börnin virðast vera mjög ánægð með þetta og eru ótrúlega dugleg þrátt fyrir að þau séu ekki með sínum konum. Á val dögum fá tvö af elstu börnunum á Ási að velja að koma inn á Vík.
Þrátt fyrir að kalt sé höfum við getað farið út flesta daga þessa vikuna. Að öðru leiti hefur vikan verið hefðbundin með söng, lestri, könnunarleik og fjrálsum leik.
Sönglögin sem við erum aðallega að lesa þennan mánuðinn eru:
- Dýragarðslagið
- Ég ætla að syngja
- Vikan og mánuðurnir
- Droparnir
- Ég er mús
- Mér er kalt á tánum
- Fyrst með fingrum gerum smell
- Tutt, tutt
- Buxur, vesti, brók og skó
- Nú er úti veður vont
8. nóvember 2010.
Í síðustu viku var nóg um að vera hjá okkur í leikskólanum. Í þemavinnu vorum við að búa til gluggamyndir. Við límdum laufblöð á glær plastlok. Eitthvað fórum við lítið út þar sem það var bæði kalt og mikið rok einhverja daga. Í staðinn fórum við inn á Mostraskegg í boltaleiki eða vorum inni á deild að leika.
Á fimmtudaginn flögguðum við Grænfánanum okkar í annað sinn. Það var skemmtileg stund. Af því tilefni var ætlunin að setja niður haustlauka en börnunum fannst ráðlegra að fresta því þar til snjórinn færi. Á föstudaginn áttum við mjög skemmtilegan dag með ömmum og öfum sem höfðu tækifæri á að koma til okkar í heimsókn. Þetta var mjög vel heppnaður dagur að okkar áliti og viljum við þakka öllum ömmum og öfum kærlega fyrir komuna.
28. október 2010.
Við viljum byrja á að þakka foreldrum kærlega fyrir góða samvinnu á kvennafrídaginn.
Nóg er búið að vera um að vera þessa vikuna. Við erum búin að vera tvö litadaga, bleikan og bláan. Þetta er síðasta vikan hjá okkur að vinna með bláa litinn og í næstu viku byrjum við að vinna með rauða litinn. Við höfum haldið áfram í þessari viku í pappírsgerðinni okkar og gengur það mjög vel. Eins og sjá má á myndum eru börnin full áhuga á þessu skemmtilega verkefni.
Börnin eru aðeins að æfa sig að smyrja brauðið sitt sjálf í kaffitímanum. Það gengur vel og eru þau full áhuga og sjálfstraust með að geta þetta sjálf þó að stundum sé sagt "þetta er erfitt".
21. október 2010.
Í þemavinnu þessa vikuna erum við að gera tilraun með að búa til pappír. Við höfum ekki áður gert það með þetta ungum börnum. Þetta ferli mun taka nokkra þematíma hjá okkur. Fyrsti tíminn þar sem pappírinn var tættur og lagður í bleyti gekkk mjög vel og hlökkum við til áframhaldandi vinnu.
Þó að það sé farið að kólna í veðri, getum við ennþá verið góða stund úti á morgnana. Ekki hefur mikið verið farið út seinni partinn þessa dagana en við nýtt okkur Mostraskegg í staðinn.
Gaman er að segja frá því að við finnum miklar framfarir hjá börnunum í samleik. Þau eru mikið að skoða bækur saman, eru í dúkkubúinu svo fátt eitt sé nefnt. Alltaf skemmtilegt þegar við sjáum þroska framfarir hjá börnunum sem eru örar hjá þetta ungum börnum.
Ekki er hægt að sjá annað en að börnin séu ánægð nýja fyrirkomulagið á fjölskyldumyndunum.
14. október 2010.
Við viljum byrja á að þakka foreldrum fyrir góða mætingu á foreldrafundinn hjá okkur s.l. mánudag. Eitt sem gleymdist að ræða á fundinum var að sú hugmynd hefur komið upp að leyfa börnunum að búa til sína eigin búninga fyrir öskudaginn. Þegar nær dregur öskudegi munum við leyta til ykkar í samstarf með okkur. Við munum fara þess á leit við ykkur að leyfa börnunum að koma með gamla boli að heiman. Okkur finnst þetta liður í Grænfánavinnuni. Ef spurningar vakna eða ef ykkur líst ekki á þetta verkefni að þá endilega hafið samband við okkur.
Þessa vikuna höfum við einbeitt okkur að aðlögun. Eitt nýtt barn var að byrja hjá okkur og annað að koma inn eftir langt frí. Við höfum því ekki farið í hópastarf en einbeitt okkur enn frekar að daglegum venjum og skapað okkur öllum svigrúm til að kynnast og nýjum nemendum að kynnast nýjum aðstæðum.
Við gerðum þá breytingu á morgunmatnum þessa vikuna að nú erum við með hafragraut alla daga vikunar hér á Vík. Ástæðan er sú að okkur fannst börnin borða lítið þegar súrmjólk og cheerios var í boði. Ef við sjáum að þau fara að vera leið á grautnum munum við endurskoða þetta.
Hér að neðan koma þau lög sem við höfum aðallega verið að syngja í september og október.
Þau sönglög sem við munum syngja í október eru:
Þrisvar sinnum smell.
Ding dong.
Brunalið, köttur og skógarþröstur.
Krummi krunkar úti.
Upp, upp, upp á fjall.
Ég heyri þrumur.
Fingurnir.
Þumalfingur.
Hreyfa litla fingur.
Ég ætla að syngja.
Þau sönglög sem við sungum í september voru:
Út um mó, inn í skóg.
Ég þekkti eitt sinn könguló.
Kalli litli könguló.
Kalli litli kálormur.
Ég elska blómin.
Í leikskóla er gaman.
Snæfellingar erum við.
Gúkk-gú-gú.
5. október 2010.
í gær nýttum við okkur góða veðrið og tíndum laufblöð. Í dag ætlum við að leggja laufblöðin í dagblöð til að þurrka þau og pressa. Við munum svo nota laufblöðin í föndur. Við viljum minna á starfsdaginn n.k. föstudag.
30. september 2010.
Í þemavinnu þessa vikuna vorum við að mála með bláum þekjulit. Eitthvað af börnunum fóru heim með blá-grænar strípur í hárinu. En vonandi hefur það náðst vel úr. Eins og sjá má á forsíðunni okkar voru börnin mjög glöð að komast út í gær. Við vorum með efasemdir um að þau gæti verið úti þar sem mikið rok og rigning var. En Gleðin skein úr hverju andliti og má sjá fleiri myndir af þessari útiveru undir daglegt líf í september.
Við viljum minna á foreldrakaffið sem verður á morgun föstudaginn 1. október. Vonandi geta sem flestir foreldrar séð sér fært að stoppa og fá sér kaffi og heimabakað brauð hjá okkur áður en farið er inn í amstur dagsins.
24. semptember 2010.
Í byrjun vikunnar fórum við í berjamó og gerðum síðan myndir úr safanum úr berjunum. Við eigum Smiðjutangann á þriðjudögum og fóru nokkur börn þangað inn í vikunni að vatnslita. Við erum búin að fara nokkrum sinnum inn á Mostraskegg í vikunni. Þar höfum við farið í boltaleiki og börnin æft sig að fara í kollhnís og ganga á jafnvægisslá. Í dag er komin ný söngbók í hólfin hjá börnunum sem þið megið taka með heim. Við erum að æfa okkur að syngja lögin í bókinni.
14. september 2010.
Í þemavinnu þessa vikuna erum við að ræða um og skoða hendurnar okkar og fætur. Við stimplum hendur og fætur með bláum þekjulit á blað. Þetta er bæði einstaklings- og hópverkefni. Í hópverkefninu erum við með eitt stórt blað þar sem allar hendur og fætur fara á. Við erum líka að syngja lagið "ég ætla að syngja". Í því lagi er sungið um hendur og fætur.
10. september 2010.
Í þessari viku byrjuðum við í þemavinnu. Allir hóparnir teiknuðu myndir með klessulitum. Þessar myndir verða svo hengdar upp á sýningunni í vor ásamt mynd sem þau teikna þá. Með því sjá foreldrar þróun á teikningum barna sinna. Við fórum í hóký, póký og höfuð, herðar, hné og tær í þemavinnunni. Grænihópur málaði á taupoka sem foreldrum stendur til boða að kaupa. Þetta er samvinnuverkefni með foreldrafélaginu. Meðan þemavinnan stóð yfir fór sá hópur sem ekki var í þeirri vinnu í könnunarleik.
Gott veður er búið að vera þessa viku þannig að við höfum getað verið góða stund úti á morgnana og suma dagana höfum við endað úti seinni partinn. Flesta daga vikunar höfum við farið eitthvað í boltaleik inn á Mostraskegg.
1. september 2010.
Í dag breytast vinnutímar starfsfólks á deildinni og má sjá á forsíðu deildarinnar hvernig vinnutíminn verður í vetur. Bryndís hættir að vera föst inni hjá okkur og mun Sigurdís (Sissa) sjá um afleysingar hjá okkur í vetur. Bryndís mun samt eitthvað vera hjá okkur næstu daga þar sem Elín er að fara í skólann.
Eftir hvíld á daginn hafa börnin verið að æfa sig að setjast á koppa. Það gengur mjög vel og eru þau ánægð með að vera tvö og tvö saman á koppum. Í næstu viku áætlum við að byrja á þemavinnu vetrarins.
26. ágúst 2010.
Nú erum við að leggja loka hönd á skipulag vetrarins. Við stefnum á að byrja í hópastarfi fljótlega í byrjun september. Þá vonum við að nýju nemendurnir okkar verði orðnir vel sáttir við veru sína hjá okkur.
Búið er að uppfæra heimasíðuna þannig að nú er komið inn hvernig hópaskiptingin verður í vetur. Undir linknum um hópastarfið má sjá hvernig hópaskiptingarnar verða og hvaða þema verður tekið fyrir.
Vikan hefur að öðru leiti verið nokkuð hefðbundin með daglegum venjum. Í morgun fóru elstu börnin af deildinni í berjamó. Þau voru dugleg að tína upp í sig krækiber og komu vel berjablá og sæl til baka.
20. ágúst 2010.
Þessi vika hefur farið í aðlaganir á nýjum nemendum.
13. ágúst 2010.
Nú er fyrsta vikan eftir sumarfrí á enda. Ekki er hægt að finna annað en að allir séu glaðir og ánægðir með að vera komnir aftur í sína rútinu. Börnin hafa ekki gleymt neinu í fríinu má þar nefna sem dæmi að þau ganga beint að sínu fleti og fara að sofa. Börnin hafa mikið þroskast og stækkað í sumarfríinu og farið mikið fram í máli.
Börnin sem áttu að flytjast frá okkur yfir á Nes eru flutt og munu tvö ný börn byrja í aðlögun hjá okkur á mánudaginn.
Að lokum viljum við minna á að leikskólinn verður lokaður á n.k. mánudag frá kl. 14 vegna starfsdags.
24. júní 2010.
Ýmisslegt hefur verið gert þessa viku eins og aðrar vikur. Á mánudaginn fór hópur eitt í gönguferð niður í sjóræningjafjöru sem staðsett er í Fúluvík. Hópur tvö fór yfir í Móholt að æfa sig að ganga í þúfum. Á þriðjudaginn var hópur eitt að pinna á meðan hópur tvö og þrjú fór inn á Smiðjutanga að mála með þekjulitum. Á miðvikudaginn fór hópur þrjú að þekjulita inn á Smiðjutanga en hópur tvö og þrjú fóru yfir í Vatnsás lægri að ganga í þúfum og horfa á hestana. Það getur tekið vel á að labba í þúfum fyrir svona litlar fætur en er jafnframt mjög góð æfing fyrir þau. Í morgun fór hópur eitt að leika sér inni á Mostraskegg á meðan hópur tvö og þrjú voru í könnunarleik.
Þessa dagana er verið í tiltekt og drifum á dóti þannig að allt verður hreint og fínt þegar við komum úr sumarfríi.
Á morgun er afmælishátíð júní og júlíbarna. Þau sem eiga afmæli þennan mánuðinn eru Hjalti Jóhann, Hekla María og Adda Sigríður og eru þau öll 2 ára.
Elín byrjar í sumarfríi eftir daginn í dag. Við óskum ykkur alls hins besta í sumarfríinu og sjáumst hress og fersk að því loknu.
16. júní 2010.
Í dag ætlum við að hafa sumarhátíð hjá okkur í leikskólanum. Við ætlum að skreyta garðinn, hafa ýmsa leiki í boði, fara í skrúðgöngu og grilla pylsur.
Á mánudaginn s.l. fór hópur eitt í gönguferð og kom við á rólóvellinum upp í Áskinn. Hópur tvö var að klippa og líma og hópur þrjú fór í könnunarleik. í gær fór hópur tvö að leika inn á Mostraskegg, hópur tvö fór í gönguferð og kom við á róló upp í Áskinn og hópur þrjú fór upp í Holtasel að skoða dýrin sem þar eiga heima.
10. júní 2010.
Á mánudaginn fór hópur eitt í gönguferð upp í Nýrækt. Þar sáum þau hesta og folöld út í haga. Hópnum var boðið inn í fjárhús hjá Stínu og Steina að skoða nýfædd lömb. Þar fengu þau að gefa kindunum brauð að borða. Þar var líka hundurinn Hrólfur sem borðar gras. Hópur tvö var að mála inn á Smiðjutanga og hópur þrjú fór í heimsókn inn á Ás og fékk að leika þar í dúkkubúinu. Á þriðjudaginn fóru allir saman í gönguferð út Hjallatanga í góða veðrinu. Á miðvikudag skiptust hóparnir á að leika inn á Mostraskegg. Í morgun fóru allir hóparnir út að sulla og drullumalla í rigningunni. Það var mikið fjör.
Sjö börn munu færast yfir á Nes eftir sumarfrí. Það eru: Apríl Ýr, Ásgeir, Erla Vala, Guðmundur Gísli, Hjörtur Jóhann, Katrín Mjöll og Melkorka Líf. Leikskólakennarar munu sjá um að aðlaga börnin yfir á Nes í fyrstu vikunni eftir sumarfrí.
Þrjú ný börn munu byrja hjá okkur á Vík á haustmánuðum. Í ágúst byrja Róbert Maron og Lena. Í nóvember byrjar Bæring Breiðfjörð.
3. júní 2010.
Hóparnir hafa unnið hver fyrir sig þessa vikuna. Á mánudaginn var hópur 1 að mála með þekjulitum og hópur 2 og 3 að vatnslita. Á þriðjudaginn var hópur 1 að æfa sig að klæða sig í útifötin sín og fóru svo í gönguferð upp á holtasvæði með nesti. Hópur 2 og 3 var að sulla. Á miðvikudaginn var hópur 1 að sulla og hópur 2 og 3 í könnunarleik. Í dag fór hópur 1 í gönguferð niður í fjöru og borðaði nesti á leiðinni. Hópur 2 fór í gönguferð og voru Olla og Dói svo elskuleg að bjóða þeim inn á pall til sín. Gott að hafa svona góða nágrannar. Hópur 3 fór líka í gönguferð.
27. maí 2010.
Þar sem gott veður hefur verið þessa viku hefur útivera verið í lengra lagi hjá okkur. Við erum farin að fara út eftir að við erum búin að drekka eftir hádegi. Börnunum er því skilað úti nema þá helst á miðvikudögum þegar er sameiginleg söngstund.
Á þriðjudaginn fóru hópur 1 og 3 í gönguferð í sitthvoru lagi. Hópur 1 tók með sér nesti. Hópur 2 var heima að gróðursetja ávaxtasteina sem þau ætla svo að vökva í sumar og vonandi verður árangur af þessari ræktun hjá þeim.
Á miðvikudaginn buðu elstu krakkarnir á Ási okkur í skuggaleikhús inn á Mostraskegg. Í dag var hópur eitt að vatnslita og hópur 2 og 3 fóru í könnunarleik. Á morgun föstudag er afmælishátíð maíbarna.
20. maí 2010.
Nú erum við búnar að skipuleggja sumarstarfið hjá okkur. Áhersla verður lögð á útiveru. Farið verður í gönguferðir þegar veður leyfir um nærumhverfi skólans. Einnig munum við reyna að fara og kíkja á dýrin á Nýræktarsvæðinu. Þegar veðrið verður okkur ekki hliðholt munum við að dunda okkur inni. Við munum setja áfram hér inn hvað hóparnir gera í hverri viku fyrir sig.
Börnunum verður skipt upp í 3 hópa eins og hér segir:
Hópur 1 Hópur 2 Hópur 3
Katrín Mjöll Hekla María Gunnar Steinn
Hjörtur Jóhann Adda Sigríður Jónas Bjartur
Melkorka Líf Hjalti Jóhann Elín Eygló
Apríl Ýr Óskar Örn
Ásgeir Ragnheiður Emma
Erla Vala Óðinn Ernir
Guðmundur Gísli
14. maí 2010.
Í þessari viku er vorhreinsunarátak í Stykkishólmi. Að sjálfsögðu lögðum við okkar að mörkum í því átaki og fórum út fyrir girðingu að tína rusl. Börnin voru mjög virk í tiltektinni og var aftrakstur ferðarinnar fullur Bónuspoki.
6. maí 2010.
Nú er allt í fullum gangi við að undirbúa opna húsið sem er á morgun, föstudaginn 7. maí kl. 14-16. Að öðru leiti hefur vikan verið hefðbundin. Við höfum farið inná Mostra, farið út, sungið og lesið og margt fleira. Í dag er grænn dagur og komu allir í einhverri grænni flík.
29. apríl 2010.
Þá er farið að líða undir lok í hópastarfi hjá okkur í vetur. Undirbúningur fyrir opið hús, sem verður föstudaginn 7. maí stendur yfir þessa dagana. Í þessari viku vorum við að líma pappír á geisladiska. Við notuðum þá liti sem við erum búin að vera að vinna með í vetur, gulan, rauðan og grænan. Vikan hefur gengið fyrir sig með hefðbundnu sniði, sungið, lesið og farið inná Mostra. Brúðan Lalli hefur heimsótt okkur og við höfum farið út að leika í góða veðrinu. Á morgun föstudag er afmælishátíð aprílbarna.
Ekki er endanlega búið að skipuleggja sumarstarfið hjá okkur. En þær hugmyndir sem við höfum rætt er að leggja áherslu á útiveru og gönguferðir í nærumhverfi okkar. Lengd ferðanna færi þá alfarið eftir aldri barnanna. Yngstu börnin verða jafnvel bara á leikskólalóðinni og rétt fyrir utan hana.
21. apríl 2010.
Í hópastarfi í þessari viku vorum við að stimpla fótinn okkar á blað. Bæði einstaklingsblað og sameiginlegt listaverk. Fóturinn var málaður með grænum þekjulit. Við erum búin að fara á Mostraskegg á hverjum degi að æfa okkur að ganga á jafnvægisslá, skríða undir slánna, fara í kollhnís og boltaleik. Haldið var áfram þar sem frá var horfið í síðustu viku að lesa um Alla Nalla og fara með þuluna um þumalfingur. Í morgun fórum við ekki út. Við vorum að leika okkur með ljós og skugga með vasaljósum. Börnin voru alveg hugfangin að leika með vasaljósin. Við erum búin að vera að æfa okkur að fara í höfuð, herðar, hné og tær. Nýjar myndir eru inná daglegt líf í apríl.
Að lokum viljum við þakka fyrir veturinn og óskum ykkur gleðilegs sumars. Góða skemmtun á sumardaginn fyrsta.
15. apríl 2010.
Allir hópar máluðu grænar myndir í hópastarfi þessa vikuna. Börnin vorum dugleg að æfa sig að labba eftir jafnvægisslá, vera í boltaleik og fleira inni á Mostraskegg. Á miðvikudaginn fóru allir í könnunarleik. Alli Nalli hefur verið lesin fyrir börnin þessa vikuna. Einnig hefur verið farið með þuluna, þumalfingur er mamma með fingrabrúðum. Söngur, púsl og aðrar daglegar venjur hafa verið á sínum stað.
9. apríl 2010.
Þessi vika var frekar stutt hjá okkur. Þar sem við vorum með starfsdag í framhaldi af páskafríinu. Dagarnir voru frekar hefðbundnir hjá okkur, söngur, lestur, Mostri og útivera. Melkorka Líf varð 2 ára 7. apríl. Bence mætti í leikskólann í dag eftir langt frí, við bjóðum hann velkomin aftur.
31. mars 2010.
Mikill kuldi er búinn að vera úti þessa viku og þar af leiðandi höfum við bara haldið okkur inni. Við erum búin að vera mikið inná Mostraskegg í ýmsum æfingum. Nýjar myndir eru í Mostraskeggs möppunni. Elstu börnin fóru að æfa sig að smíða í gærmorgun með Bryndísi. Einnig erum við búin að syngja, lesa, perla, kubba og ýmislegt annað.
Við óskum ykkur öllum gleðilegra páska.
25. mars 2010.
Páskaföndur hefur verið allsráðandi hjá okkur þessa vikuna í hópastarfi. Börnin eru búin að búa til páskaunga úr saltkeramiki sem þau koma með heim í næstu viku. Við vorum lengi úti í góða veðrinu í morgun að leika. Einnig æfðu flest börnin sig að fara í gönguferðir. Gulur dagur var í leikskólanum í dag því notuðum við tækifærið og ræddum um gula litinn þegar við fórum í gulu vestinn okkar, áður en farið var í gönguferðina. Ekki var farið langt í þetta sinn, aðeins var gengið á gangstéttinni í kringum bílastæðið við leikskólann. Á morgun verður afmælishátíð mars barnanna. Guðmundur Gísli og Hjörtur Jóhann verða báðir 2 ára 27. mars.
19. mars 2010.
Í þessari viku hafa foreldraviðtöl staðið yfir og hafa þau gengið mjög vel. Í hópastarfi máluðum við hendurnar okkar gular og stimpluðum bæði á sameiginlegt listaverk og einnig á sér blað. Í morgun fórum við í sameiginlega söngstund áður en við fórum út í góða veðrið.
Góða helgi.
11. mars 2010.
Veðráttan hefur verið okkur hliðholl þessa vikuna og við getað farið út alla dagana. Að vísu hafa börnin verið nokkuð skítug eftir útiveruna en það er nú bara gaman af því. Í hópastarfi þessa vikuna vorum við að æfa okkur að klæða okkur í buxur, peysur og húfur. Í Mostraskegg höfum við verið að æfa okkur að labba á jafnvægislá, skríða undir hana, leika okkur með bolta og fleira skemmtilegt. Söngur og sögur hafa verið á sýnum stað þessa vikuna ásamt frjálsum leik.
Næsta fimmtudag, 18. mars verður Elín með foreldraviðtöl. Foreldrar eru beðnir um að panta sér tíma.
4. mars 2010.
Minna hefur verið um veikindi hjá okkur þessa vikuna, heldur en undanfarnar vikur. Adda Sigríður byrjaði aftur hjá okkur síðastliðinn mánudag, eftir tveggja mánaða frí. Ýmislegt hefur verið haft fyrir stafni síðustu dagana. Við erum búin að vera inná Mostraskegg, fara í könnunarleik og hreyfileiki, svo fátt eitt sé nefnt. Guli- og Rauðihópur voru að þjálfa munn- og aðra andlitsvöðva, með því að blása sápukúlur í hópastarfi. Grænihópur málaði sameiginlegt gult listaverk. Í morgun var mjög gott að komast út í góða veðrið og snjóinn. Börnin voru mjög sæl með útiveruna.
24. febrúar 2010.
Ennþá er eitthvað um veikindi hjá okkur, þau sem voru veik í síðustu viku eru mætt en önnur orðin lasin núna. Í hópastarfi þessa vikuna vorum við að leika okkur með snjó og gulan matarlit. Við vorum að upplifa hvað snjórinn er kaldur og sumir voru að smakka á honum. Síðan settum við gulan matarlit í og heitt vatn og hræðrum þetta allt saman. Mjög skemmtilegur tími. Í morgun var alveg stillt veður þannig að við drifum okkur út að leika. Erum líka búin að fara inná Mostra að æfa okkur að ganga á jafnvægislá, fara í boltaleiki og dansa. Erla Vala er 2 ára í dag.
19. febrúar 2010.
Við vorum að sulla í morgun. Þeir sem vildu sulla voru mjög glaðir og mikið var hlegið. Aðrir vildu ekki sulla og voru því í frjálsum leik.
18. febrúar 2010.
Mikið er búið að vera um veikindi þessa vikuna.
Í hópastarfi æfðu börnin sig að klæða sig sjálf í búninga. Sum þurftu meiri aðstoð en önnur. Þessi skemmtilega stund var tekin upp á myndband. Foreldrar fá að horfa á það á opnu húsi í vor.
Við erum búin að vera í boltaleikjum inná Mostraskegg, æfa okkur að labba á jafnvægisslá og fleira. Í morgun fórum við í könnunarleik. Í gær vorum við með skemmtilegt öskudagsball. Við erum líka búin að vera í frjálsum leik, syngja og lesa. Við höfum ekkert farið út þessa viku þar sem það er búið að vera svo kalt og mikið rok. Á morgun, föstudagin 19. febrúar verður Katrín Mjöll 2 ára.
11. febrúar 2010.
Þessa vikuna vorum við að búa til bolluvendi í hópastarfi. Við fórum líka inní Mostraskegg að leika okkur.
4. febrúar 2010.
Í hópastarfi þessa vikuna héldum áfram með sameiginlega listaverkið okkar. Grænihópur er ekki byrjaður með sitt verk, þar sem mikið hefur verið um veikindi innan hópsins. Á morgun, föstudaginn 5. febrúar er dagur stærðfræðinnar. Af því tilefni gerðum við tilraun í gær með börnunum. Öll börnin voru á bleijunni og lékum við okkur með hveiti, haframjöl, hrísgrjón og baunir. Með því voru þau að upplifa rýmið í kringum sig og t.d. að teikna hringi. Mörgum fannst þetta mjög notalegt á meðan önnur vildu ekki snerta þetta. Við tókum þessa stund uppá vídeó sem við ætlum að sýna ykkar í foreldrakaffinu á morgun. Okkur kennurunum fannst þetta skemmtileg stund þrátt fyrir mikil þrif á eftir.
28. janúar 2010.
Við erum farin að æfa okkur í að vera í hópastarfi. Við byrjum á að takast í hendur og bjóða alla velkomna í hópastarfið. Síðan höfum við sungið lagið um gula blómið, þar sem gulur er liturinn sem verið er að vinna með núna. Við erum búin að mála einstaklingsmyndir með gulum þekjulit. Núna er hver hópur fyrir sig að gera sameiginlegt verkefni. Við byrjuðum á að mála stórt blað með gulum þekjulit. Í þessari viku vorum við að klippa gulan pappír, sem oft var bara rifinn. Þetta ætlum við að líma á stóra listaverkið ásamt ýmsu öðru verðlausu efni.
Búið er að skipta börnunum í þrjá hópa Gulahóp, Rauðahóp og Grænahóp.
Í Gulahóp eru: Adda Sigríður, Apríl Ýr, Erla Vala, Guðmundur Gísli, Hjörtur Jóhann, Katrín Mjöll og Melkorka Líf. Gulihópur fer í hópastarf á þriðjudögum.
Í Rauðahóp eru: Ásgeir Thor, Hekla María, Hjalti Jóhann, Ragnheiður Emma, Óðinn Ernir og Óskar Örn. Rauðihópur fer í hópastarf á miðvikudögum.
Í Grænahóp eru: Bence, Elín Eygló, Gunnar Steinn, Jónas Bjartur og Ksenia. Grænihópur fer í hópastarf á fimmtudögum.
Á morgun, föstudaginn 29. janúar verður afmælsihátíð janúar barnanna. Þá verður Apríl Ýr 2 ára og Ásgeir Thor verður 2 ára laugardaginn 30. janúar. Þriðja afmælisbarn janúar mánuðar er Gunnar Steinn en hann varð eins árs 3. janúar.
Með kveðju,
Kennarar á Vík.