Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi

 

Málörvun á Vík

 

Málreynsla barna fyrir lestarnám skipti miklu máli. Sagt hefur verið: ,,Svo læra börnin málið að það er fyrir þeim haft”. Mörg börn fá málörvun strax á fyrstu ævidögum þegar þau eru hvött til að taka þátt í samræðum með hjali sínu. Það að byrja snemma að fara með vísur og þulur, syngja og segja börnunum sögur er talið skipta miklu máli. Vert er að hafa í huga að fyrsta lestarkennsla á sér stað þegar litla barnið er tekið í fangið, opnuð bók og rætt um myndirnar.

Foreldrar útbúa plaggat heima með myndum af sínu barni og fjölskyldunni sem við plöstum og hengjum upp á vegg. Þessi plaggöt skapa tækifæri til umræðna og frásagna.

 

Tákn með tali


Stór liður í málörvun hér á Vík er notkun tákns með tali.  Tákn með tali er tjáskiptaaðferð sem notuð er til málörvunar og tjáskipta fyrir heyrandi fólk.  Í byrjun var tákn með tali eingöngu notað fyrir börn með málþroskafrávik, en okkar reynsla er sú að þetta ýti undir og örvi málþroska hjá öllum börnum.  Tákn með tali hefur einnig verið notað með tvítyngdum börnum með góðum árangri.  Tákn með tali byggir á líkamstjáningu og notkun tákna sem eru bæði náttúruleg og tilbúin.  Táknin eru ávallt notuð samhliða tali og líkjast sum þeirra táknum úr táknmáli heyrnarlausra.  Tákn með tali byggir á eðlilegu talmáli þar sem aðeins lykilorð hverrar setningar er táknuð og hrynjandi málsins er gerður skýrari með táknum.  Þegar tákn með tali eru notuð er stefnt að tali hjá barninu.  Hér á Vík eru börn að koma 12 mánaða í leikskóla og eru ekki öll farin að ná valdi á talmáli, þau eru fljót að læra að tjá sig með táknum, og hafa gaman af þeim.  Táknin eru notuð í söngstundum, matartímum, hópastarfi og eins er þetta notað í leik og öðrum daglegum athöfnum.  Táknin eru einföld og myndræn og byggja á látbragði sem er öllum eiginlegt.  Börn eiga auðveldara með að læra það sem þau sjá en það sem þau heyra.  Með því að tákna lykilhugtök setningarinnar er börnunum gefin “vísbending” um hvað verið er að tala um.  Táknanotkun dregur úr talhraða þeirra sem tala við börnin.  Setningarnar verða styttri og hnitmiðaðri.  Táknanotkun stuðlar því að skýrara tali.  Táknanotkun stuðlar einnig að því að barn og viðmælandi séu í augnsambandi.  Gott augnsamband er mikilvægt til að barnið nemi málið, hvort sem það eru orð eða tákn.  Mörgum börnum veitist auðveldara að mynda tákn en tala.  Útfærsla talhljóða er flókið ferli. Auðveldara er fyrir börn með málþroskafrávik að hreyfa hendurnar á ákveðinn hátt en að segja skiljanleg orð.  Táknin gefa börnunum möguleika til tjáskipta, oft löngu áður en þau læra að tala.  Að ná valdi yfir hreyfingum sínum og samhæfingu þeirra er undanfari þess að ná valdi yfir talfærunum.  Talið tekur oftast við af táknum smám saman.  Eftir því sem talgetan eykst minnkar þörfin fyrir táknin.  Það er alltaf eðlilegra að tjá sig með tali, ef maður skilst, en að tala með táknum.

 

Sjá nánar um táknin á tmt.is

 

Annað efni

 

 

 

Leikskólinn í Stykkishólmi - Búðanesvegi 2 - 340 Stykkishólmi - Sími 433-8128 - leikskoli@stykkisholmur.is