Veturinn 2011 - 2012.
07:45 Við opnum á Vík og reynum að skapa rólega stund.
08:15 – 09:00 Morgunmatur.
08:00 – 09:40 Frjáls leikur. Förum einhverja daga inn á Mostraskegg til að æfa okkur í grófhreyfingum.
09:45 Skiptum okkur upp og förum í hópastarf. Fáum okkur ávaxtabita og förum svo út.
11:15 Förum við að tínast inn og fáum okkur hreinar bleiur og þvoum hendur og andlit. Skoðum bækur meðan við bíðum eftir að allir verði tilbúnir til að byrja að borða.
11:30 Hádegismatur.
12:30-14:45 Hvíld, frjáls leikur og jafnvel farið út ef veður leyfir.
14:45-16:30 Söngstund, sögustund, nónhressing og frjáls leikur.
16:30 Deildin lokar.