Leiðin þín: Forsíða - Mannlíf - Tíðindi
10. mars 2010 02:51

Bæklingur með hagnýtum upplýsingum fyrir eldri borgara

Í tilefni af formlegri opnun Setursins, félagsaðstöðu eldri borgara, gaf Stykkishólmsbær út bækling um hagnýtar upplýsingar fyrir eldri borgara í Hólminum. Í bæklingnum koma fram upplýsingar um félagsstarf aldraðra, heimahjúkrun og þá þjónustu sem er í boði fyrir aldraða. Bæklinginn má nálgast hér.

meira...
9. mars 2010 10:34

Opnun á Setrinu.

Setrið, aðstaða fyrir eldri borgara í kálfinum, var formlega tekið í notkun á fimmtudaginn í síðustu viku. Eydís Eyþórsdóttir, íþrótta- og tómstundafulltrúi og Gretar D. Pálsson, forseti bæjarstjórnar ávörpuðu gesti. Stykkishólmsbær færði Aftanskini, félagi eldri borgara, tölvu að gjöf. Lionsklúbburinn færði Setrinu blóm og þá hafði kvenfélagið fært félagsstarfi aldraðra saumavél að gjöf. Í tilefni vígslunnar var í Setrinu sýning á ýmsum munum sem unnir hafa verið í félagsstarfi aldraðra, s.s. myndlist, tréskurður og ýmis konar handavinna. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum lögðu margir leið sína í Setrið til að vera viðstaddir vígsluna og spjalla yfir kaffibolla og kleinum.

 

meira...
8. mars 2010 08:24

Skákmót Árnamessu.

Skákmót Árnamessu verður haldið í Stykkishólmi sunnudaginn 14. mars. Nánari upplýsingar hér

meira...
8. mars 2010 08:19

Árnamessa.

Árnamessa verður haldin í Stykkishólmi sunnudaginn 14. mars. Nánari upplýsingar hér

meira...
4. mars 2010 02:33

Námskeið í markaðssetningu á netinu.

SSV-þróun og ráðgjöf og Símenntunarmiðstöð Vesturlands í samvinnu við Útflutningsráð Íslands standa fyrir námskeiði í markaðssetningu á netinu, en það er byggt á samnefndri bók sem kom út á dögunum.

Kennarar eru Guðmundur Arnar, markaðsstjóri hjá Icelandair og Kristján Már hjá Nordic eMarketing.

Um hvað snýst námskeiðið?

Farið verður yfir helstu samskiptaleiðir netsins á hagnýtan hátt með áherslu á ferðaþjónustu og hvernig samskiptaleiðir netsins geta skapað miklar tekjur. Markmiðið er að þátttakendur öðlist þekkingu sem nýtist þeim strax í starfi.

 

Kennslan byggir á bókinni "Markaðssetning á netinu" en bókin er innifalin í þátttökugjaldi námskeiðsins.

Námskeiðið verður haldið á tveimur stöðum á Vesturlandi fyrri partinn í mars:

Þriðjudaginn  9. mars kl. 18:00 - 22:00 í  Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

Miðvikudaginn 10. mars kl. 18:00 – 22:00 í húsnæði Símenntunar Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi 

Verð:  18.500 kr. (bókin innifalin)

 

 

 

meira...
4. mars 2010 08:55

Þjóðaratkvæðagreiðsla um lög vegna ICESAVE

Kjörfundur í Stykkishólmsbæ vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um lög vegna ICESAVE.

 

Laugardaginn 6. mars 2010 hefst kl. 9:00 í Grunnskólanum við Borgarbraut og lýkur kl. 22:00 þann sama dag.

 

Kjörstjórn Stykkishólmsbæjar.

 

meira...
4. mars 2010 08:43

Dagur aldraðra.

Í dag fimmtudaginn 4. mars verður formleg opnun á félagsaðstöðu eldri borgara í Kálfinum frá kl. 16:00 - 18:00

 

Forseti bæjarstjórnar flytur ávarp kl. 16:00

 

Kaffi á könnunni. Allir hjartanlega velkomnir.

 

Íþrótta- og tómstundafullrtúi.

meira...
1. mars 2010 11:41

Lokahátíð Upplestrarkeppninnar - Fréttatilkynning

Hin árlega Lokahátíð Stóru Upplestrarkeppninnar í grunnskólunum hér á Snæfellsnesi verður haldin miðvikudagskvöldið 10. mars n.k, kl. 20.00 í Grundarfjarðarkirkju.

meira...
25. febrúar 2010 10:50
25. febrúar 2010 10:42
11. febrúar 2010 08:20
12. janúar 2010 03:27
12. janúar 2010 12:47
5. janúar 2010 02:58
31. desember 2009 11:09
30. desember 2009 11:00
Eldri fréttir
APR
MAÍ
JÚN
JÚL
ÁGÚ
SEP
OKT
NÓV
DES
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré