Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
6. október 2003

Aðalfundur foreldrafélags leikskólans.

Aðalfundur foreldrafélags leikskólans var haldinn fimmtudagskvöldið 2. október 2003.  Foreldrar 22 nemenda, af 70, mættu.
Formaður félagsins, Hidligunnur Jóhannesdóttir bauð fólk velkomið, setti fund og síðan var gengið til dagskrár.  Leikskólastjóri, Sigrún Þórsteinsdóttir, sagði frá því helsta sem er á döfinni næsta skólaár.
 

Deildarstjórar leikskólans héldu síðan fræðslupistla um starfið.  Elín Guðrún Pálsdóttir, deildarstjóri á Krílakoti (18 mán.-3 ára börn), sagði frá starfinu þar.  Þemað hjá þeim er "Ég sjálfur" og mikið lagt upp úr almennri kurteisi og daglegum venjum.  Litirnir eru einnig sérstaklega teknir fyrir hjá þeim.
 
Ásta Valdís Guðmundsdóttir, deildarstjóri Stubbasels (3 ára börn),  sagði frá starfinu á Stubbaseli.  Þar er þemað "Ég sjálfur" útfært enn frekar og unnið með fjölskylduna, heimili, veður og fleira í nánasta umhverfi barnsins.  Ásta sagði einnig frá verkefni sem er að fara af stað í næstu viku, á elstu deildinni, þar sem stunduð verður heimspeki með börnum.
 
Elísabet Lára Björgvinsdóttir, deildarstjóri Bangsabæjar (tveir elstu árgangar leikskólans), sagði frá samstarfi skólanna þriggja í Stykkishólmi þ.e. leik- grunn- og tónlistarskóla, en það hefur verið í gangi síðastliðin ár og gefið góða raun.  Elísabet kynnti einnig það tónlistaruppeldi sem fram fer í leikskólanum og þær kennsluaðferðir sem notaðar eru.  Tónlistarstarfið hefur til þessa mest verið í gangi á Bangsabæ en um leið og farið verður af stað með heimspekivinnuna á Bangsabæ, verður tónlistaruppeldið á Stubbaseli eflt.
 
Hildigunnur, formaður sagði því næst frá því starfi sem foreldrafélagið hefur staðið fyrir síðasta árið og Erla Arnórsdóttir, gjaldkeri félagsins, lagði fram reikninga þess.  Foreldrafélagið hefur m.a. staðið fyrir íþróttadögum, vorferð og jólaföndri, ásamt því að styrkja kaup á ýmsum efnivið fyrir leikskólann.  Þessa dagana er von á endurskinsvestum til nota fyrir börnin þegar þau fara í göngur um bæinn. Það er VÍS sem styrkir félagið við þessi kaup og auk merkis þeirra, verða vestin merkt leikskólanum.  Leikskólinn þakkar foreldrafélaginu og VÍS fyrir velvild í garð skólans.
 
Engar breytingartillögur bárust fyrir fundinn.  Ákveðið var að halda félagsgjaldinu óbreyttu frá fyrra ári.  Í lok fundar var fundarmönnum boðið upp á kaffi og meðlæti inni á deildum, auk þess sem starfsmenn svöruðu fyrirspurnum frá foreldrum.
 
Í nýrri stjórn foreldrafélagsins sitja:
 
Halla Dís Hallfreðsdóttir
Ingi B. Ingason
Dagný Ósk Hermannsdóttir
Guðrún Svana Pétursdóttir
Ragnheiður Valdimarsdóttir.

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré