6. júlí 2010
Þjóðbúningadagur Norska hússins
Hinn árlegi búningadagur Norska hússins verður að þessu sinni haldinn laugardaginn 10. júlí og er það í sjötta sinn. Íslenska þjóðbúningnum er þar gert hátt undir höfði. Eigendur þjóðbúninga, konur sem karlar, eru hvattir til að koma uppáklæddir í Norska húsið milli kl. 14 og 16. Þar mun þeim verða boðið í kaffi í betri stofunum. Eyjólfur Eyjólfsson söngvari mun syngja við undirleik Ástríðar Öldu Sigurðardóttur. Útskurðarsýningin Dillidó og Korriró er nú í Norska húsinu og mun listakonan Ingibjörg H. Ágústsdóttir verða með leiðsögn um sýninguna eftir hádegi á laugardag og sunnudag. Íslenski safnadagurinn er á sunnudaginn og af því tilefni er frítt á sýningar Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla um helgina.
Verið velkomin í Norska húsið