22. október 2003
Deiliskipulag Laufásvegur/Borgarbraut samþykkt.
Bæjarstjórn Stykkishólms samþykkti á fundi sínum þann 16. október sl., deiliskipulag fyrir Laufásveg/Borgarbraut. Deiliskipulagið tekur til alls svæðisins sem nú er óbyggt, milli Laufásvegar, Borgarbraut og SKúlagötu. Á svæðinu verða einbýlishús, raðhús og verslunar- og þjónustubyggingar.
Um leið er gert ráð fyrir að opna Laufásveg inn á Borgarbraut.