27. október 2003
Vinna við nýlögn á aðalæð vatnsveitu.

Nú um helgina var unnið að því að leggja nýja vatnslögn yfir Vigrafjörð. Í sumar komu í ljós veikleikar á núverandi lögn í fjarðarþveruninni. Brugðið var á það ráð að leggja nýja lögn sem liggur samsíða núverandi aðveitulögn. Á síðustu vikum hefur verið unnið að undirbúningi s.s. efnisöflunar, kaupum á sökkum o.fl.
Verkið var unnið af starfsmönnum áhaldahússins, björgunar-sveitarmönnum og nokkrum iðnaðar- og tækjamönnum undir verkstjórn Högna Bæringssonar, bæjarverkstjóra.
Áður var búið að koma fyrir tengistykkjum og lokum á aðalæðina þannig að íbúar Stykkishólms yrðu ekki fyrir óþægindum vegna lokunar veitunnar á meðan á þessari framkvæmd stóð.
Lögnin er 10" plastlögn (280 mm.) og 800 metra löng.
Hér fyrir neðan má sjá myndasyrpu frá vinnunni um helgina.











