2. september 2010
Menningarminjadagur Evrópu
Menningarminjadagur Evrópu hér á landi verður haldinn sunnudaginn 5. september n.k. Þema dagsins að þessu sinni er sjávar- og strandminjar. Magnús A. Sigurðsson minjavörður Vesturlands mun þá halda erindi í Ráðhúsinu í Stykkishólmi sem hann nefnir Neðansjávarfornleifafræði og strandminjar. Hvað má búast við að finna við Ísland ? Fyrirlesturinn hefst klukkan 14:00.
Tilgangur menningarminjadagsins er að vekja athygli almennings á gildi menningararfsins og skapa vettvang til þess að almenningur geti kynnst sögulegu umhverfi sínu. Dagskrá menningarminjadagsins má finna í heild á heimasíðu Fornleifaverndar ríkisins, www.fornleifavernd.is