6. september 2010
Tékkar í Stykkishólmi
Í lok ágúst kom 20 manna hópur tékkneskra sveitarstjórnarmanna í heimsókn á Vesturland til að kynna sér vinnu sveitarfélaganna á Vesturlandi að umhverfismálum. Mánudaginn 23. ágúst komu þeir í heimsókn í Ráðhúsið til að kynna sér starfsemi Náttúrustofu Vesturlands, Earth Check vottun Snæfellsness og lausnir Stykkishólmsbæjar í úrgangsmálum. Þar fræddi Róbert A. Stefánsson, forstöðumaður Náttúrustofunnar, Tékkana um starfsemi stofunnar. Menja von Schmalensee, líffræðingur og starfsmaður Náttúrustofunnar, hélt fyrirlestur um ágengar tegundir og sagði meðal annars frá því hvernig tekið hefur verið á þeim í Stykkishólmsbæ. Theódóra Matthíasdóttir, umhverfisfulltrúi, fjallaði um EarthCheck-verkefnið sem sveitarfélögin á Snæfellsnesi, ásamt Þjóðgarðinum Snæfellsjökli, eru aðilar að. Ennfremur hélt Birgir Á. Kristjánsson frá Íslenska Gámafélaginu kynningu á lausnum Stykkishólmsbæjar í úrgangsmálum. Átti það vel við þar sem Stykkishólmsbær er frumkvöðull í hinu svo kallaða ,,þriggja tunnu kerfi“ og er sú leið sem bærinn hefur farið í sorpmálum oft kölluð Stykkishólmsleiðin. Að lokinni heimsókn í Ráðhúsið skoðuðu gestirnir aðstöðu Íslenska gámafélagsins á Snoppu og aðferðir þeirra við jarðgerðarvinnu.
Í framhaldi af heimsókn Tékkanna til Vesturlands hefur verið boðað til allstórrar umhverfisráðstefnu í Prag síðar í haust. Þangað hefur sex Vestlendingum verið boðið til að endurgjalda móttökurnar, og er allur kostnaður greiddur af Þróunarsjóði EFTA. Á ráðstefnunni munu Vestlendingarnir halda erindi um umhverfismál sveitarfélaga og fleira þeim tengt, auk þess sem efnt verður til skoðunarferða og heimsókna til sveitarfélaga í norðanverðu Tékklandi. Tilgangurinn með þessum gagnkvæmu heimsóknum er annars vegar að skiptast á reynslu og þekkingu og hins vegar að reyna að koma á tengslum og viðskiptasamböndum sem nýtast báðum aðilum.
http://www.nsv.is/100827_heimsokn_fra_tekklandi.html