Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
13. desember 2001

Jólalegur laugardagur

Laugardaginn 15. desember mun verða ýmsilegt um að vera í Norska húsinu. Við byrjum á jólastund fyrir börnin kl. 11.00. Á jólastundinni, sem er í samvinnu Ráðhússins, Amtsbókasafnsins og Byggðasafnsins, munu starfsmenn bókasafnsins lesa fyrir börnin, jólasveinar koma í heimsókn, nemendur og kennarar tónlistarskólans munu leika jólalög undir söng og svo er aldrei að vita nema einhvers staðar leynist gott í poka.
Húsið opnar svo á venjulegum tíma kl. 14.00 og kl. 14.30 munu nemendur og kennarar úr tónlistarskólanum spila jólalög fyrir gesti og kl. 15.00 - 16.00 verður upplestur úr nýjum jólabókum. Er upplesturinn í samvinnu við Sjávarborg og Amtsbókasafnið. Að lestri loknum munu tónlistarnemar og kennarar spila fyrir gesti og að lokum mun Jón Svanur spila á harmonikuna.

 

Þeir sem koma að þessum degi með Byggðasafninu eru: Amtsbókasafnið, Sjávarborg, Tónlistarskólinn, Leikfélagið, Ráðhúsið og Jón Svanur Pétursson.
Á jarðhæðinni er jólasýningin og enn er að berast jólaskraut frá fólki sem tók við sér þegar það skoðaði það sem komið var og er það mjög ánægjulegt. Sýning Elínborgar Kjartansdóttur "Ást og englar" er í gráa salnum og að sjálfsögðu er krambúðin opin.
Við hvetjum alla til að koma í Norska húsið laugardaginn 15. desember og upplifa sannan jólaanda og bragða á heitum epladrykk með piparkökum og fá sér sneið af hangikjötinu sem hangir í risinu. Húsið er opið kl. 14.00 - 18.00
Verið velkomin
Norska húsið

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré