Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
13. desember 2001

Kynningarfundur

Þann 12. desember sl. var haldinn almennur kynningrfundur um aðalskipulag og sorpmál á Fosshótel Stykkishólmi.  Á milli 60 og 70 manns sóttu fundinn. Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri bauð fundargesti velkomna og fór yfir dagskrá fundarins.  Að því loknu gaf hann Bæring B. Jónssyni orðið.

Bæring Bjarnar Jónsson, arkitekt kynnti vinnuferlið við aðalskipulagið.  Samhliða þeirri vinnu hefur verið unnið að deiliskipulagi fyrir miðbæinn sem áður hefur verið kynnt á borgarafundi.  Helstu þættir aðaskipulagsins hafa verið kynntir í Stykkishólmspóstinum og á heimasíðu Glámu/Kím og Stykkishólmsbæjar.  Einnig var farið yfir breytingar í sorpmálum en í uppbyggingu er gámastöð við gamla flugvöllinn.  Kynntur var jarðgerðarkassi en notkun safnkassa/jarðgerðarkassa dregur úr magni sorps sem flutt er til urðunar og þannig sparast umtalsverðir fjármunir.

Fram komu fyrirspurnir varðandi hin ýmsu mál og svöruðu Óli Jón og Bæring þeim.  Að umræðum loknum þakkaði Óli Jón fundarmönnum fyrir komuna og Bæring fyrir kynningu á aðalskipulaginu og sagði fundi slitið.

Áfram er hægt að kynna sér aðalskipulagið á eftirfarandi slóð:

http://glamakim.is/verkaskr/adalsk_stykkisholmur/index.html

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré