11. nóvember 2003
Stykkishólmur verði leiðandi í "Lífsstíl 21"

Í framtíðinni hefur Stykkishólmur mikla möguleika á koma til móts við lífsstíl sem virðist vera að vinna mjög á í hinum Vestræna heimi á nýrri öld. Í flóknum borgarsamfélögum þar sem nágrannar þekkjast ekki og leita þarf langt til að komast í óspillta náttúru, sækjast æ fleiri eftir einfaldari, fjölskylduvænni og heilbrigðari lífsstíl. Frá þessu sjónarmiði er það eftirsóknarvert að heimsækja eða búa á stað þar sem er fallegt umhverfi, gott samfélag og lítt mengandi atvinnustarfsemi. Allt þetta hefur Stykkishólmur til að bera og hefur þar jafnvel nokkurt forskot.
Í umhverfismálum má nefna hreina og óspillta náttúru, ríkt lífríki, heitt vatn sem er vottað af Institut Fresenius í Þýskalandi, sem heilsuvatn og að höfnin var fyrsta höfn landsins til að fá umhverfisvottunina Bláfánann. Atvinnustarfsemi í bænum er lítt mengandi, St. Franciskusspítalinn hefur sérhæft sig í meðferð bak- og hálsvandamála. góð íþróttamannvirki eru á staðnum og góður grunnur er til staðar í ferðaþjónusta. Í Stykkishólmi þrífst gott íþrótta- og félagslíf, skólar eru góðir og gamall og fallegur miðbærinn er aðlaðandi. Smæð samfélagsins og þar með sterkari samfélagsvitund er einnig jákvæður kostur.
Þetta er ein af niðurstöðum íbúaþings sem haldið var í Stykkishólmi síðastliðinn laugardag, 1. nóvember, undir yfirskriftinni „Tökum höndum saman".
Þingið er liður í eins árs verkefni, sem miðar að því að stilla saman strengi íbúa, fyrirtækja, félagasamtaka og bæjaryfirvalda, til að styrkja stöðu Stykkishólms.
Þingið sóttu um 140 manns en auk þess unnu allir nemendur Grunnskóla Stykkishólms glæsileg verkefni sem tengdust viðfangsefni þingsins og var afrakstur þeirrar vinnu til sýnis í Félagsheimilinu þar sem þingið var haldið og nokkrir nemendur kynntu niðurstöður. Þá unnu nemendur framhaldsdeildar verkefni og unnið er með þemað „bærinn okkar" í allan vetur á leikskólanum.
Þinginu stýrði ráðgjafarfyrirtækið Alta, sem hefur sérhæft sig í samráðsverkefnum af ýmsu tagi og var þetta 15. íbúaþingið sem Alta stýrir.
Umræðan um atvinnumál var fyrirferðarmikil á þinginu, en þau hafa brunnið talsvert á íbúum eftir að tilkynnt var um bann við veiðum á hörpuskel, sem hefur verið veigamikill þáttur í atvinnulífi bæjarins. Svartsýni virðist á undanhaldi, en þátttakendur lögðu þó mikla áherslu á mikilvægi þess að allir leggist á eitt við eflingu atvinnulífs, þar sem stefnt verði að aukinni fjölbreytni og nýtingu sóknarfæra í ferðaþjónustu og annarri nýsköpun. Ferðaþjónusta var sá atvinnuvegur sem þátttakendur töldu bjóða upp á mesta möguleika, ekki síst á sviði heilsuferðaþjónustu. Unnið hefur verið að verkefni á því sviði, af hálfu Heilsueflingar Stykkishólms ehf. Af öðrum sóknarfærum var meðal annars nefnt virkjun sjávarfalla í Breiðafirði og aukin fullvinnsla í sjávarútvegi.
Greinilega kom fram að íbúar telja mikil verðmæti felast í sögu og menningu bæjarins og telja mikilvægt að meira verði gert úr þeirri auðlind. Mikil áhersla var á safnamál og komu fjölmargar hugmyndir um söfn af ýmsu tagi og leiðir til að miðla sögunni, t.d. með merkingum og leiðsögn.
Útivist er vaxandi þáttur í lífsstíl bæjarbúa og var á þinginu lögð áhersla á að þær kjöraðstæður sem eru til útivistar í Stykkishólmi og nágrenni verði bættar enn frekar. Mest var kallað eftir göngustígum út fyrir bæinn og meðfram ströndinni. Þá er greinilegt að Hólmarar hafa mikinn metnað fyrir umhverfi og umgengni í bænum og vildu þátttakendur að með samstilltu átaki verði unnið að úrbótum á svæðum þar sem þessu er ábótavant.
Varðandi opinbera þjónustu voru þátttakendur sammála um að bygging nýs leikskóla sé forgangsverkefni en að í framhaldi af því væri æskilegt að marka stefnu um að Grunnskólinn fari undir eitt þak, skólinn er einsetinn en kennt er á tveimur stöðum. Fram kom að framtíðarskipulag Grunnskólans þurfi einnig að taka mið af starfsemi og húsnæðisþörfum Tónlistarskólans.
Um 7-8% íbúðarhúsnæðis í Stykkishólmi eru svokölluð frístundahús. Fyrir þingið var eigendum þessara húsa sent bréf og þeir hvattir til að taka þátt í þinginu. Því kalli var vel sinnt og var fróðlegt að heyra sjónarmið þessara íbúa. Meðal annars kom fram að þeim þætti það góður kostur ef leyfilegt væri að greiða útsvar í tveimur sveitarfélögum svo framarlega sem það skerti ekki rétt til þjónustu í heimasveitarfélaginu.
Fram kom áhugi á stofnun Hollvinasamtaka Stykkishólms, sem gæti höfðað til brottfluttra Hólmara, núverandi íbúa, eigenda frístundahúsa og annarra velunnara.
Á íbúaþinginu kom fram að það veiki stöðu Stykkishólms að samstaða íbúa sé ekki næg. Með jákvæðni og bjartsýni geti íbúar, félagasamtök, fyrirtæki og bæjaryfirvöld lyft grettistaki, ef þessir aðilar taka höndum saman.
Þátttakendur tjáðu þá framtíðarsýn fyrir Stykkishólm að íbúum fjölgi eitthvað, gjarnan í 2000 íbúa, en í dag eru íbúar um 1230. Nokkur áhersla var þó lögð á að stækkun sveitarfélagsins gerist með sameiningu allra sveitarfélaga á Snæfellsnesi, sem fékk mikinn hljómgrunn á þinginu.
Þær hugmyndir sem fram komu á þinginu verða nú greindar frekar. Tillaga Alta að eftirfylgni miðar að því að til verði samstarfsvettvangur allra hagsmunaaðila í bænum, þ.e. íbúa, félagasamtaka, fyrirtækja og bæjaryfirvalda. Hópurinn vinni að sameiginlegri framtíðarsýn og skilgreindum verkefnum um tiltekinn tíma. Þann 19. janúar n.k. verður stigið fyrsta skrefið í að fylgja íbúaþinginu eftir, en þá verður haldinn opinn fundur þar sem verkefni verða sett í farveg.
Í gegnum tíðina hefur, líkt og annars staðar skipst á skin og skúrir í Stykkishólmi. Nýjar atvinnugreinar hafa komið upp og vaxið eða dáið eftir atvikum. Óhætt er þó að segja að að Stykkishólmur hefur staðið af sér þau áföll sem fylgt hafa breyttum tímum. Nú standa Hólmarar enn á ný frammi fyrir breyttum tímum, en með því að taka höndum saman, mun Stykkishólmur óhikað snúa vörn í sókn og búa sig undir þau tækifæri sem framtíðin ber í skauti sér.
Nánari upplýsingar:
Nánari upplýsingar veita Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri í síma 438 1700, netfang olijon@stykkisholmur.is <mailto:olijon@stykkisholmur.is> og Sigurborg Kr. Hannesdóttir, verkefnastjóri hjá Alta, í símum 533 1672 eða 866 5527, netfang sigurborg@alta.is