15. nóvember 2010
Fyrirlestur um innkaup þann 17. nóvember 2010
Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá Environice, heldur fyrirlestur á ráðhúsloftinu í Stykkishólmi, miðvikudaginn 17. nóvember kl. 20. Fyrirlesturinn nefnist „Sjálfbær – eða alla vega meðvituð – innkaup“ en þar verður fjallað um þau áhrif sem val á vörum hefur á umhverfi og samfélag og hversu mikilvægt er að neytandinn sé meðvitaður um afleiðingar vals síns.
Stórfróðlegur fyrirlestur sem á erindi við alla sem einhvern tíma kaupa eitthvað!
Sjá nánar á heimasíðu Náttúrustofu Vesturlands.