11. nóvember 2003
Íbúafundur um framtíðarsýn í ferðaþjónustu á Snæfellsnesi
Í tengslum við ákvörðun sveitarfélaganna fimm á Snæfellsnesi um að leita eftir vottun frá umhverfisvottunarsamtökunum Green Globe 21 fer nú fram vinna að stefnumótun um framtíðarsýn í ferðaþjónustu á Snæfellsnesi.
Leitað er til íbúa allra sveitarfélaganna um að taka þátt í þessari vinnu með því að mæta á íbúafundi í sínu sveitarfélagi og tjá sig um hugmyndir sínar og skoðanir um ferðaþjónustu. Ferðaþjónusta snertir flestar greinar atvinnulífsins á Snæfellsnesi á einn eða annan hátt og því er mikilvægt að heyra frá sem flestum úr hópi íbúa. Mætið endilega og látið skoðanir ykkar í ljóst ÁÐUR en stefnumótunin er endanlega unnin, svo hægt sé að taka tillit til þeirra.
Fjallað verður um eftirtalda málaflokka í framtíðarsýn ferðaþjónustu á Snæfellsnesi:
1. Ímynd og sérstöðu Snæfellsness
2. Umhverfismál
3. Gæða- og öryggismál
4. Menntun í ferðaþjónustu
5. Samgöngumál
6. Byggðamál
7. Skipulag ferðamála
8. Rekstrarumhverfi
9. Markaðssetningu Snæfellsness
Leitað er eftir tillögum og hugmyndum um allt það sem snýr að ferðaþjónustu á Snæfellsnesi. Boðið verður upp kaffi á fundunum sem verða sem hér segir:
Fimmtudag 20. nóv.: Kl. 20.30 í Ráðhúsi Stykkishólms. fyrir Stykkishólmsbæ.
Stjórnandi: Arnheiður Hjörleifsdóttir, UMÍS ehf. Environice, Borgarnesi
Miðvikudag 19. nóv.: Vegamótum fyrir Eyja- og Miklaholtshrepp.
Stjórnandi: Ragnhildur Helga Jónsdóttir, UMÍS ehf. Environice, Borgarnesi
Miðvikudag 19. nóv.: Bjarnarhöfn fyrir Helgafellssveit.
Stjórnandi: Arnheiður Hjörleifsdóttir, UMÍS ehf. Environice, Borgarnesi
Fimmtudag 20. nóv.: fyrir Grundarfjarðarbæ.
Stjórnandi: Ragnhildur Helga Jónsdóttir, UMÍS ehf. Environice, Borgarnesi
Fimmtudag 20. nóv.: Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík fyrir Snæfellsbæ.
Stjórnandi: Stefán Gíslason, UMÍS ehf. Environice, Borgarnesi
Allir fundirnir hefjast kl. 20:30.