Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga, FSSF,- auglýsir lausa til umsóknar stöðu sálfræðings við stofnunina. Um er að ræða 100% stöðugildi.
Verksvið: Félagsþjónusta og velferðarmálefni; ráðgjöf, greining, leiðsögn, einstaklinga og fjölskyldna; barnavernd, málefni fatlaðra; teymisviðfangsefni.
Starfssvæði FSSF eru sveitarfélögin á Snæfellsnesi, ennfremur er stofnunin hluti Þjónustusvæðis Vesturlands í málefnum fatlaðra. Auk forstöðumanns starfa við stofnunina skólasálfræðingur, félagsráðgjafi, kennslu- og námsráðgjafi, þroskaþjálfi og talmeinafræðingar. Skrifstofa FSSF er á Hellissandi í Snæfellsbæ.
Umsækjandi skal hafa starfsbundin réttindi til starfa sem sálfræðingur á Íslandi, hafi til að bera góða samskiptahæfni, ríkt frumkvæði og samstarfsvilja til þverfaglegs samstarfs.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Laun eru greidd skv. samningum Sálfræðingafélagsins og sveitarfélaganna.
Frekari upplýsingar veitir Sveinn Þór Elinbergsson, forstöðumaður, s. 430 7800. Skriflegar umsóknir er tilgreini menntun, fyrri störf og umsagnaraðila berist Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, Klettsbúð 4, 360 Hellissandi, Snæfellsbæ eða á netfangið sveinn@fssf.is. Slóð heimasíðu er fssf.is.
Umsóknarfrestur er til 26. janúar 2011