Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
3. janúar 2004

Högni Bæringsson, bæjarverkstjóri kvaddur.

 
 
 
 
 
 
 
 
 
Föstudaginn 2. janúar sl. var haldið kveðjuhóf til heiðurs Högna Bæringssyni, bæjarverkstjóra, en hann ákvað á síðasta ári að ljúka störfum hjá Stykkishólmsbæ um áramót.
 

Högna voru þökkuð góð störf fyrir bæjarfélagið á undanförnum áratugum og afhent innrömmuð mynd af Stykkishólmi og konu hans, Hönsu færður blómvöndur.
Högni starfaði rúmlega 30 ár hjá Stykkishólmsbæ og hafa mörg verkefni, stór og smá, verið unnin á þeim langa tíma og var stiklað á stóru í þeim efnum.
Skipulagsbreytingar hafa orðið á áhaldahúsi bæjarins í kjölfar þessara breytinga.  Starfseminni stýra nú þeir Tómas Enok Thomsen og Högni Högnason en verkaskipting milli þeirra er með þeim hætti að Tómas Enok verður áfram með hitaveituna og til viðbótar vatnsveituna, Högni verður með aðra þjónustustarfsemi á vegum áhaldahússins.
 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré