Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
28. desember 2001

Nýárstónleikar

 

Mánudagskvöldið 7. janúar verður boðið upp á glæsilega nýárstónleika í Stykkishólmskirkju þar sem ungir og ferskir söngvarar koma fram.

 

Davíð Ólafsson bassi og Tomislav Muzek tenór munu syngja aríur og dúetta eftir m.a. Strauss, Mozart, Puccini, Verdi, Rossini auk  söngleikja og ítalskra ástarljóða. Þeir félagarnir slógu rækilega í gegn í Reykjavík með tónleikum sínum fyrir 2 árum og nú mæta þeir enn betri til leiks.  Þeir félagar munu syngja í Íslensku Óperunni 5. janúar, en syngja auk þess aðeins í Stykkishólmi.

 

Tomislav Muzek frá Króatíu er aðeins 25 ára gamall en hefur þegar sungið m.a. við Ríkisóperuna í Vín, Tokyo og í Bologna  og nýlega hefur hann fengið tilboð frá óperunni í La Scala í Mílano og Ríkisóperunni í Zürich.
Stórtenórinn Luciano Pavarotti hefur veitt þessu unga tenór athygli og boðið honum ókeypis kennslu á sumardvalastað sínum á Ítalíu.  Í maí á þessu ári var hann í úrslitum söngkeppninnar í Cardiff í Wales.  Þessi ungi tenór heillar alla upp úr skónum með söng sínum og framkomu.  Hann er án efa einn efnilegasti tenórinn í dag.


Davíð Ólafsson bassi starfar sem óperusöngvari í Luebeck, Þýskalandi.  Hann hefur haldið fjölda tónleika á Íslandi og  Evrópu og vekur hvarvetna mikla athygli fyrir gamanleik sinn og söng. Davíð hefur fengið mjög góða umfjöllun fyrir söng sinn í þýskum blöðum og  alþjóðlegum óperutímaritum. Hann hefur m.a. sungið aðalhlutverk við óperuhús í Sviss, Austurríki, Þýskalandi og SanFrancisco í  Bandaríkjunum.  Til gamans má geta þess að Davíð á ættir sínar að rekja til Stykkishólms, en afi hans er Sigurður bróðir Eyjólfs og Georgs Ólafssona.  Hann er því frændi Ágústs Ólafssonar hins stórefnilega baritonsöngvara sem tvisvar hefur tekið þátt í sumartónleikaröðinni.


Við píanóið situr Ester Ólafsdóttir, systir Davíðs, en hún hefur um langtskeið starfað sem Organisti á Suðurnesjum.


Það er mikill fengur fyrir Snæfellinga að fá þessa glæsilegu tónleika hingað í Hólminn og eru allir hvattir til að fylgjast með nánari auglýsingum þegar7. janúar nálgast og missa nú alls ekki af þeim.

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré