29. janúar 2004
Til fasteignagjaldenda í Stykkishólmi
Ákveðið hefur verið að færa innheimtu fasteignagjalda til KB BANKA í Stykkishólmi. Öll fasteignagjöld fyrir árið 2004 og meðan samningur stendur skal greiða til bankans sem sér alfarið um innheimtu.
Athygli skal vakin á því að eldri gjaldfallin gjöld skal greiða til Stykkishólmsbæjar, en þeir örfáu sem ekki eru í fullum skilum eiga von á kröftugum innheimtuaðgerðum á næstu vikum.
Varðandi mögulegan 3% staðgreiðsluafslátt er bent á eftirfarandi:
Afslátturinn er því aðeins veittur að viðkomandi sé skuldlaus við bæjarsjóð og fyrirtæki hans. Viðkomandi fasteignagjaldandi skal ganga frá þessu í KB BANKA í Stykkishólmi, sem þá mun reikna afsláttinn út.