18. febrúar 2004
Deiliskipulag fyrir Frístundabyggð.
Endanlegt deiliskipulag fyrir Frístundabyggð er nú aðgengilegt hér á vefnum, undir Skipulag - til vinstri á síðunni.
Skipavík hf. í Stykkishólmi hefur hafið smíði frístundahúsa sem munu rísa á svæðinu en Skipavík hf. sér einnig um alla framkvæmd á svæðinu s.s. skipulagningu, lagningu vega, hitaveitu, vatnsveitu og annað sem nauðsynlegt verður að teljast til að svæðið teljist fullbúið.
Fyrstu húsin verða afhent um mánaðarmótin júní-júí.