25. febrúar 2004
Opin vika í tónlistarskólanum
Í tilefni af Degi tónlistarskólanna þann 28. febrúar, verður opin vika í tónlistarskólanum 1.-5. mars. Þá gefst öllum kostur á að heimsækja skólann og kynna sér kennslu og hljóðfæri. Kennsla verður með venjubundnumhætti og getur fólk bankað upp á í kennslustofum og fengið að fylgjast með. Kennsla fer fram frá kl. 10.00 til 18:30 - aðeins misjafnt milli daga - en best er að hitta á kennslu á bilinu kl. 14.00-18.00. Eru foreldrar og aðrir aðstandendur tónlistarnemenda sérstaklega hvattir til að koma við og sjá hvað fram fer en allir eru vissulega velkomnir.
Skólastjóri.