27. janúar 2012
Tónlistarnám nemenda sem stunduðu tónlistarnám utan Stykkishólms skólaárið 2010-2011, en með lögheimili í Stykkishólmi
Á fundi bæjarráðs Stykkishólmsbæjar sem haldinn var fimmtudaginn 12. janúar 2012 var samþykkt að styrkja nemendur með lögheimili í Stykkishólmi sem stunduðu tónlistarnám utan Stykkishólms skólaárið 2010-2011 um allt að kr. 171.792.
Hér með er bent á að umsóknarfrestur er til 1. maí 2012.
Hægt er að senda inn umsókn um styrk til Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3 í pósti eða í tölvupósti á netfangið: baejarstjori@stykkisholmur.is.
Nánari upplýsingar veitir Gyða Steinsdóttir, bæjarstjóri í síma 433 8100, netfang: gyda@stykkisholmur.is.
Stykkishólmsbær