Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
31. janúar 2012

Lífshlaupið af stað á morgun

Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands verður ræst í fimmta sinn á morgun, miðvikudaginn 1. febrúar.

 

Hægt er að taka þátt í vinnustaðakeppni, hvatningarleik grunnskólanna og einstaklingskeppni.  Markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til að hreyfa sig og huga að sinni daglegu hreyfingu í frítíma, heimilisstörfum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta.

 

Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum embætti landslæknis um hreyfingu. Börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og fullorðnir a.m.k. 30 mínútur á dag.

 

Á síðasta ári tóku um 16.400 landsmenn þátt í Lífshlaupinu og var mikil og góð stemninga jafnt á vinnustöðum sem skólum í febrúar. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á vefslóðinni http://www.lifshlaupid.is/

 

Vinnustaðir, grunnskóli og einstaklingar í Stykkishólmi eru hvattir til þátttöku og nota þannig tækifærið til að skapa létta stemningu og efla í leið líkama, sál og félagsandann með því að hreyfa sig daglega.

 

Samstarfsaðilar ÍSÍ vegna Lífshlaupsins eru: Mennta- og menningarmálaráðuneytið, velferðarráðuneytið, embætti landslæknis, Advania, Rás 2 og Ávaxtabíllinn.

 

www.lifshlaupid.is

 

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré