Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
1. mars 2004

Snæfell deildarmeistari í fyrsta sinn.

Deildarmeistarar 2004

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Snæfell varð deildarmeistari í körfuknattleik í fysta sinn þann 29. febrúar sl. eftir góðan sigur á Haukum með 79 stigum gegn 69. Frábær stemning var í íþróttahúsinu í Stykkishólmi, sem stuðningsmenn Snæfells troðfylltu. Umgjörð leikja hefur verið til fyrirmyndar í vetur, skemmtileg kynning á leikmönnum, lukkudýr, klappstýrur og fleira hefur sett skemmtilegan svip á leikina og hafa áhorfendur verið duglegir að láta til sín taka á pöllunum bæði á heimaleikjum og eins á útileikjum.

Formaður KKÍ, Ólafur Rafnsson, afhenti þeim sigurlaunin að leik loknum við mikil fagnaðarlæti stuðningsmanna.

Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri hélt einnig stutta ræðu og afhenti Gissuri Tryggvasyni, formanni stjórnarinnar, 500.000 króna ávísun frá Stykkishólmsbæ í tilefni þess að liðið er deildarmeistari árið 2004. Lionsmenn afhentu liðinu einnig viðurkenningu í hálfleik kr. 100.000.

 

Deildarmeistarar 2004

Klappstýrur Snæfells

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré