Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
18. janúar 2002

Fjárhagsáætlun 2002 - Fréttatilkynning

Á bæjarstjórnarfundi í dag, 17. janúar 2002 var fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar og undirfyrirtækja afgreidd með 7 samhljóða atkvæðum.

Skatttekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar 316 m.kr. Fjárfestingar eru áætlaðar fyrir um 50 m.kr. og skuldir lækkaðar um 24 m.kr. Rekstrargjöld eru því áætluð 78% af skatttekjum og fjármagnskostnaður um 5,5%. Rekstrargjöld eru áætluð 247 m.kr. eftir að 74 m.kr. tekjur málaflokka hafa verið dregnar frá.

 

Í þessari fjárhagsáætlun er stigið annað skrefið til lækkunar skulda eftir þá miklu uppbyggingu sem verið hefur á síðustu árum við hitaveitu- og sundlaugarframkvæmdir hér í Stykkishólmi. Þessi niðurstaða er nokkru betri en áætlað var við afgreiðslu 3ja ára áætlunar 2002-2004 sem afgreidd var í fyrra.

Aukin uppbygging þjónustumannvirkja kallar einnig á aukinn rekstrarkostnað þannig að það er ánægjulegt að geta haldið rekstrarútgjöldum undir 80%.

 

Langstærsti útgjaldaliðurinn er fræðslumál með 126 m.kr. útgjöld, sem er 47,5% áætlaða útgjalda bæjarsjóðs. Aðrir helstu málaflokkar eru félagsþjónustan með um 31 m.kr. og æskulýðs- og íþróttamál með 27 m.kr.

 

Helstu fjárfestingar eru framkvæmdir tengdar undirbúningi vegna Unglingalandsmóts U.M.F.Í. í Stykkishólmi sem haldið verður 2.- 4. ágúst n.k. Til þess verkefnis er varið 20 m.kr. en þar af koma 10 m.kr. á fjárlögum 2002. Einnig er gert ráð fyrir 8 m.kr. fjárfestingum í gatnagerð og 7 m.kr. í húsbyggingum.

 

Aðrar umtalsverðar framkvæmdir sem verða í gangi á þessu ári á vegum stofnana eða fyrirtækja Stykkishólmsbæjar eru:

    1. Framkvæmdir við Stykkishólmshöfn fyrir 22 m.kr. lenging stálþils í Súgandisey o.fl.

    2. Bygging eða kaup á leiguíbúð fyrir allt að 10 m.kr.

 

Tekjur undirfyrirtækja eru áætlaðar 144 m.kr. og rekstrargjöld 94 m.kr. og heildarfjárfestingar þeirra 32 m.kr.

 

 

17.1.2002.

Óli Jón Gunnarsson,

bæjarstjóri.

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré